Bændablaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Umhverfis- og auðlinda ráðu-
neytið hefur gefið út breytingar
á reglugerð um baðstaði í
náttúrunni.
Breytingarnar snúast til að mynda
um viðbætur á skilgreiningu á
laugum og svo er breyting á orðalagi
í skilgreiningu á baðstað í náttúrunni.
Afþreyingarlaugum fjölgað
Í upplýsingum frá ráðuneytinu
um breytingarnar kemur fram
að undanfarin misseri og ár hafi
laugum fjölgað sem fá heitt vatn
leitt frá borholum eða affallsvatn
frá hitaveitu og áform séu uppi um
að reisa fleiri slíkar laugar. Hingað
til hafi hluti af þessum laugum ekki
fallið undir reglugerð um baðstaði
í náttúrunni en með breytingu á
reglugerðinni sé nú kveðið á um
afþreyingarlaugar. Gert er ráð fyrir
að þær séu starfsleyfisskyldar og að
heimilt sé að takmarka gestafjölda
ef gerlafjöldi mælist ítrekað yfir
hámarksgildum.
Óheimilt verður að nota
sótthreinsiefni á baðstöðum í
náttúrunni en heilbrigðisnefnd
getur þó heimilað eða fyrirskipað
sótthreinsun á tilteknum baðstöðum
til að draga úr gróðurmyndun
eða til að sótthreinsa vatnið ef
gerlafjöldi mælist endurtekið yfir
hámarksgildum.
Afþreyingarlaug er þannig í
breytingunum skilgreind sem laug
sem er frá grunni hlaðin og/eða steypt
úr föstu efni, það er botn og hliðar.
Kalt vatn, affallsvatn frá hitaveitu
eða jarðhitavatn er leitt í laugina
úr nálægum hver eða afrennsli
frá virkjun þó að undangenginni
kælingu. Heilnæmi vatnsins er
stjórnað með tíðri endurnýjun
vatnsins og aðgangsstýringu, svo
sem takmörkun á fjölda gesta í laug.
Baðstaður í náttúrunni er þannig
náttúrulaug, afþreyingarlaug eða
baðströnd sem er notuð til baða af
almenning og vatn er ómeðhöndlað
af sótthreinsiefnum, geislun eða
á annan hátt. Til baðstaðar telst
einnig búnings- og salernisaðstaða
og önnur aðstaða fyrir baðgesti sé
hún til staðar.
Líka reglur um köldu kerin
Breytingar verða líka á reglugerð um
hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
Þær varða meðal annars kröfur sem
gerðar eru til kaldra kerja sem hefur
fjölgað mjög undanfarin misseri á
sundstöðum. Hitastig vatnsins í
þessum kerjum er á bilinu 0–16
gráður. Sömu reglur munu gilda
um heilnæmi vatns í þessum kerjum
og í öðrum laugum sem falla undir
reglugerðina, en ekki er gerð krafa
um hreinsibúnað eða sótthreinsun í
köldum kerjum ef hægt er að tryggja
heilnæmi vatnsins á annan hátt. /smh
Reglugerðarbreytingar um
baðstaði í náttúrunni
– Skilgreining á hvað sé afþreyingarlaug bætt við
FRÉTTIR
Frá því í haust hafa nokkrir
bændur á Vesturlandi rekið
Sláturhús Vesturlands í Brákarey
í Borgarnesi. Starfsemin hefur
gengið vonum framar og áfram
verður slátrað í vetur í Brákarey,
hrossum, svínum, nautgripum og
sauðfé eftir þörfum.
Þorvaldur T. Jónsson, bóndi
í Hjarðarholti í Stafholtstungum
í Borgarfirði, er einn bændanna
sem reka húsið sem er rekið sem
þjónustusláturhús.
Að mörgu leyti vonum framar
„Slátrunin hjá okkur hefur gengið
samkvæmt væntingum og að mörgu
leyti vonum framar. Við stukkum til
um miðjan september og opnuðum
húsið með litlum fyrirvara, auðvitað
hefði undirbúningur mátt vera meiri
en samt hefur þetta gengið í heildina
mjög vel. Það sem skiptir öllu máli
er að það náðist saman frábær hópur
fólks til að vinna við slátrunina en
starfsmenn hafa verið átta talsins.
Við höfum slátrað þrjá daga í viku en
við viljum gjarnan geta látið kjötið
hanga í nokkra daga og höfum því
látið kæliplássið stjórna dálítið
afköstunum,“ segir Þorvaldur.
Rúmlega 1.400 fjár slátrað í haust
Sláturkostnaður fyrir sauðfé hefur
verið 270 krónur á kílóið, jafnt
fyrir dilka og fullorðið fé, og
þurfa bændur sjálfir að koma með
gripina að sláturhúsi. Hægt er að
slátra 80 dilkum á dag í Sláturhúsi
Vesturlands.
Ríflega 1.400 fjár frá 65 bændum
Að sögn Þorvaldar var rúmlega
1.400 fjár slátrað í haust, frá 65
bændum.
„Eingöngu er um að ræða slátrun
sem þjónustu fyrir þá sem nýta eða
selja kjötið sjálfir, það er við höfum
ekki keypt neitt kjöt af bændum. Nú
í framhaldinu munum við svo slátra
hrossum, svínum og nautgripum eftir
þörfum og auðvitað verður hægt að
slátra sauðfé líka ef þess er óskað,“
svarar Þorvaldur þegar hann er
spurður um hvort reksturinn muni
halda áfram.
„Nú í framhaldi af sauðfjárslátrun
munum við meta næstu skref
en að okkar mati er vel hægt að
halda þessu húsi í rekstri allt árið
með stórgripaslátrun og einhverri
úrvinnslu og frágangi á kjöti. Við
munum meta þau mál núna, meðal
annars með eigendum hússins. Það
er því of snemmt að segja fyrir um
sauðfjárslátrun næsta haust en með
betri undirbúningi og þeim lærdómi
sem við fengum núna í haust væri
hægt að auka afköstin og veita betri
þjónustu að ári,“ segir Þorvaldur.
Bændur huga að sölu
á eigin afurðum
Þegar Þorvaldur er inntur eftir
skoðun hans á framtíðarhorfum
fyrir slátrun á dilkum og sölu
sauðfjárafurða, segir Þorvaldur
að sú staða sem nú er uppi í
sauðfjárræktinni hljóti að ýta við
bændum í þeirri viðleitni að selja
sjálfir afurðir sínar. Vísar hann
þar til hins lága afurðaverðs sem
bændum hefur staðið til boða hjá
afurðastöðvum.
Munu selja meira sjálfir
„Ég held að bændur muni fara
meira að hugsa um að selja sjálfir
afurðirnar til dæmis beint frá býli eða
með samningum við veitingastaði
og verslanir. Okkar upplifun af
samskiptum við bændur í haust er sú
að margir séu að hugsa á þessa leið.
Ég held því að þetta fyrirkomulag á
slátrun eigi framtíðina fyrir sér og
muni vaxa þó það sé ef til vill langt
í að það verði ríkjandi í greininni.
Fjölbreytnin í þessu hefur aukist
mikið undanfarin ár og mun áfram
þróast og blómstra.“
Þorvaldur hefur þó ekki orðið var
við að bændur væru í meira mæli að
vinna kjötið sjálfir.
„Við höfum ekki orðið þess vör,
enda er uppsetning viðurkenndrar
vinnslu heima á hverjum sveitabæ
kannski ekki hagkvæm. En það er
mikið um að bændur leiti samstarfs
við smærri kjötvinnslur og nýti
viðurkennda aðstöðu og fagfólk
sem finna má víða um landið.“
/smh
Sláturhús Vesturlands í Borgarnesi:
Reksturinn gekk framar vonum í haust
– Bændurnir á Vesturlandi ætla að halda rekstrinum áfram í vetur
Brákarey, Borgarnesi. Mynd / HKr.
Undanfarnar vikur hefur
töluvert verið um væga
ö n d u n a r f æ r a s ý k i n g u
meðal hunda og katta á
höfuðborgarsvæðinu og nú virðist
hún vera að stinga sér niður úti
á landi. Einkenni sýkingarinnar
eru oftast hnerri og hósti sem
gengur yfir á nokkrum dögum.
Fá dýr hafa veikst alvarlega.
Á heimasíðu Matvælastofnunar
segir að ekki sé enn vitað um hvaða
sýkingu er að ræða en rannsókn á
sýnum stendur yfir á Tilraunastöð
Háskóla Íslands á Keldum.
Í lok september bárust
Matvælastofnun upplýsingar um
mögulegan grun um smitandi
öndunarfærasýkingu í hundum og
köttum á suðvesturhorni landsins.
Matvælastofnun hóf strax að
kanna útbreiðslu og nokkrum
vikum síðar fóru að berast fleiri
tilkynningar um gæludýr með
slík einkenni. Virtist smit dreifast
hratt milli dýra og helstu einkenni
vera hnerri, mildur hósti og önnur
væg einkenni frá efri öndunarvegi.
Aðallega var um að ræða hunda,
en einnig var tilkynnt um einstaka
ketti sem hefðu fengið svipuð
einkenni. Fá dýr virðast verða það
veik að þau missi matarlyst eða
fái hita, þótt einstaka dýr sýni slík
einkenni. Í gær bárust fyrstu fréttir
um einkenni í hundum og köttum
á Akureyri.
Þegar ljóst var að um
bráðsmitandi sjúkdóm væri að
ræða, óskaði Matvælastofnun eftir
sýnum úr nokkrum hundum og
óskaði eftir því að Tilraunastöð
Háskóla Íslands að Keldum
rannsakaði þau í því skyni að kanna
um hvaða smitefni væri að ræða.
Niðurstaða rannsóknanna liggur
ekki enn fyrir, en ef orsökin finnst
mun Matvælastofnun strax tilkynna
um hana.
Eigendum gæludýra sem sýna
einkenni þessarar hnerripestar er
ráðlagt að forðast allt álag á dýrin
og fylgjast náið með heilsu þeirra.
Ef þau þróa alvarlegri einkenni, svo
sem lystarleysi, slappleika, mikinn
hósta eða hita að þá er rétt að hafa
samband við dýralækni.
Athugið að til að forðast smit
á milli dýra í biðstofu skal ekki
fara með dýrið á dýralæknastofu
án undangengins samráðs við
dýralækni. /VH
Hnerripest í hundum
og köttum
Eldvarnaátak í grunnskólum
landsins fyrir jólin
Fimmtudaginn 23. nóvember
var eldvarnaátak LSS (Lands-
samband slökkviliðs og sjúkra-
flutningamanna) opnað á
landsvísu við hátíðlega athöfn í
Sunnulækjarskóla á Selfossi.
Nemendur hófu dagskrána með
söngatriði og Stefán Pétursson,
formaður LSS, ávarpaði nemendur
í 3. og 4. bekk, starfsfólk og gesti
og setti átakið formlega. Ásta
Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Sveitarfélagsins Árborgar, ásamt
Hauki Grönli, varaslökkviliðsstjóra
Brunavarna Árnessýslu, sáu um
eldvarnafræðslu fyrir nemendur
3. bekkjar og slökkviliðsmenn
spjölluðu við krakkana sem höfðu
frá ýmsu að segja.
Á slaginu kl. 11 fór brunakerfið
í gang og þar með rýmingaræfing.
Æfingin tókst mjög vel enda eru
nemendur og starfsfólk vant slíkum
æfingum árlega. Allir nemendurnir,
tæplega 670 talsins, voru komnir
út úr skólanum á 4 mínútum og
búið að fullvissa sig að engan
vantaði 5 mínútum síðar. Kalt
var úti og vindur en nemendurnir
létu það ekki á sig fá og stóðu sig
frábærlega. Eftir rýmingaræfinguna
hélt skóladagurinn áfram hjá
nemendunum og starfsfólk skólans
fékk þjálfun í notkun slökkvitækja.
Brunavarnir Árnessýslu,
Sjúkraflutningar HSu auk
Lögreglunnar á Suðurlandi sýndu
búnað sinn fyrir utan skólann og
vakti það athygli nemandanna,
sérstaklega þeirra yngstu. „Við
viljum þakka starfsfólki og
nemendum Sunnulækjarskóla fyrir
góðar móttökur og skemmtilegan
morgun. Á næstu dögum munu
aðrir grunnskólanemendur
um land allt fá heimsókn frá
eldvarnaeftirlitsmönnum og fræðslu
um eldvarnir,“ sagði Haukur Grönli.
/MHH
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson