Bændablaðið - 30.11.2017, Qupperneq 54

Bændablaðið - 30.11.2017, Qupperneq 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017 Gífurleg aukning hefur verið í sölu og framboði á vistvænum bílum, en mesta aukningin er af bílum sem eru með annaðhvort bensín- eða dísilvél, og rafmótor hafa og eru almennt nefndir „tvinnbílar“. Flest umboð bílategunda hafa verið að bjóða svona bíla og hef ég reynt að prófa þá sem flesta. Til gamans má geta þess að um þriðji hver nýr seldur bíll síðustu þrjá mánuði hefur verið tvinnbíll. Í tvígang hef ég kosið Mitsubishi Outlander tvinnbílinn sem bíl ársins hér í Bændablaðinu. Um 500 slíkir bílar hafa verið seldir það sem af er ári, en alls er sala rafmagns- og tvinnbíla orðin yfir 2.000 bílar á árinu 2017. Nýjasti tvinnbíllinn á markaðnum er Hyundai IONIQ og er með fimm ára ábyrgð og tók ég stuttan hring á bílnum um síðustu helgi. Ábyrgð á rafhlöðu er 8 ár og 200.000 km. Kemst allt að 63 km á rafmagninu Eins og vinsælustu tvinnbílarnir fer Hyundai IONIQ fyrstu kílómetrana á rafmagninu einu saman sé ekki alltaf verið á botngjöf. Sé ekið mjúklega á minni hraða en 70–80 getur Hyundai IONIQ komist allt að 63 kílómetra sé bíllinn með fullhlaðna rafhlöðu í upphafi bílferðar. Þegar ég fékk bílinn var eitthvað búið að prófa hann fyrr um daginn og samkvæmt aksturstölvu bílsins voru 35 km eftir á rafhlöðunni og yfir 500 á bensíntanknum. Strax og ég setti bílinn í gang fór bensínvélin líka í gang þar sem ég setti miðstöðina á mesta hita, sætishitarann í botn og kveikti á stýrishitaranum. Bensínvélin er 1600 cc. og skilar 105 hestöflum. Við svona mikla rafmagnsnotkun fer bensínmótorinn sjálfkrafa í gang. Eftir smá stund að læra á alla takkana í mælaborðinu var bíllinn orðin heitur og ég lagði af stað í stuttan bíltúr. Hvimleitt veghljóð frá vetrarhjólbörðunum Nánast strax og ég lagði af stað, drap bensínmótorinn á sér af því að bíllinn var orðinn heitur og ég búinn að slökkva á sætishitaranum og lækka í miðstöðinni. Ég leið áfram nánast hljóðlaust um bæinn í fyrstu og ók svo til Keflavíkur. Mér til undrunar, strax við álverið í Straumsvík þegar ég var kominn upp fyrir 70 km hraða, byrjaði að heyrast mikið veghljóð frá vetrarhjólbörðunum. Stuttu seinna fór bensínmótorinn í gang sem blandaðist við veghljóð hjólbarðanna. Að keyra bílinn er mjög ljúft, fótapláss gott, sæti þægileg, hljómgæði í hljómtækjum mjög gott. Pláss í farangursrými er ekki mikið, en rafhlöðurnar eru aftur í bílnum og undir honum sem gerir hann stöðugri í beygjum og hálku. Þó fannst mér frekar lágt undir lægsta punkt, en í snjó inni á bílaplani varð ég var við að ég væri kominn að þolmörkum bílsins í snjóakstri. Fjölskylduvænsti tvinnbíllinn til þessa Ég get ekki sleppt því að vera með smá samanburð á milli nokkurra tvinnbíla sem ég hef prófað síðastliðið ár. Mini-bíllinn sem ég prófaði í síðasta blaði var með fjórhjóladrif og mun kraftmeiri, en eyðir líka miklu meira eldsneyti á bensínvélinni. Kia Optima er líka miklu kraftmeiri og eyðir meiru. Sísti tvinnbíllinn er litli BMW-bíllinn sem ég prófaði á vormánuðum, lítill, tekur nánast engan farangur (óttalegur dúkkuvagn), en afgerandi skemmtilegasta leikfangið var WV tvinnbíllinn sem ég prófaði í vor (endalaus orka og stórhættulegur fyrir ökuskírteinið). Hyundai IONIQ PHEV Premium er hins vegar fjölskylduvænsti tvinnbíll sem ég hef prófað. Hann er með 141 hestafl og gefinn upp í eyðslu samkvæmt bæklingi með 1,1 lítra á hundraðið. Eftir 93 kílómetra akstur var mín eyðsla 4,4 lítrar. Ekki bestu aðstæður til sparaksturs, snjór, kalt og hálka. Jákvæðir punktar Verðið er með lægra móti en Hyundai IONIQ, eða frá 3.990.000 krónum, og bíllinn sem ég prófaði kostar 4.290.000 kr. Akreinalesarinn virkar vel og blindhornsvarinn einnig. Hitarinn í stýrinu er mun heitari en almennt í öðrum bílum sem ég hef prófað og svo er hiti í aftursætum sem ekki er í mörgum bílum. Þráðlaus farsímahleðsla, rafdrifin sæti með tveim minnum eru fyrir ökumann. Neikvæðir punktar Ekkert varadekk er í bílnum, eitthvað sem ég sætti mig aldrei við. Hliðarspeglarnir fara niður á veginn sjálfkrafa þegar sett er í bakkgír. Það er gott fyrir þá sem nota bakkmyndavélina, en fyrir þá sem nota hana ekki og bakka með gamla laginu eftir hliðarspeglunum og baksýnisspeglinum, er þetta mjög truflandi (ekki fyrsti bíllinn sem ég prófa með þetta svona, en ég stilli bara hliðarspeglana til baka). Ég hef aldrei verið hrifinn af því að sjá í baksýnisspeglinum tvískipta afturrúðu, en af einhverjum orsökum hefur svona sýn alltaf truflað mig. É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is – Mikil aukning á framboði og sölu tvinnbíla Hyundai IONIQ PHEV Premium. Myndir / HLJ Gott fótapláss fyrir ökumann og þegar drepið er á bílnum fer sætið töluvert aftur til að auðvelda það að komast út úr bílnum. Ekki sást mikið út um neðri afturrúðuna eftir saltpækilinn á Reykjanesbrautinni. afturrúða hentar mér ekki. Sett í bakkgír, þá fara speglarnir svona niður, hentar ekki öllum. venjulega svona á öllum bílum. Frekar lágt undir lægsta punkt. Hæð 1.450mm Breidd 1.820 mm Lengd 4.470 mm Helstu mál og upplýsingar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.