Bændablaðið - 30.11.2017, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Gífurleg aukning hefur verið í sölu
og framboði á vistvænum bílum,
en mesta aukningin er af bílum
sem eru með annaðhvort bensín-
eða dísilvél, og rafmótor hafa og
eru almennt nefndir „tvinnbílar“.
Flest umboð bílategunda hafa
verið að bjóða svona bíla og hef
ég reynt að prófa þá sem flesta. Til
gamans má geta þess að um þriðji
hver nýr seldur bíll síðustu þrjá
mánuði hefur verið tvinnbíll.
Í tvígang hef ég kosið Mitsubishi
Outlander tvinnbílinn sem bíl ársins
hér í Bændablaðinu. Um 500 slíkir
bílar hafa verið seldir það sem af
er ári, en alls er sala rafmagns- og
tvinnbíla orðin yfir 2.000 bílar á
árinu 2017.
Nýjasti tvinnbíllinn á markaðnum
er Hyundai IONIQ og er með fimm
ára ábyrgð og tók ég stuttan hring
á bílnum um síðustu helgi. Ábyrgð
á rafhlöðu er 8 ár og 200.000 km.
Kemst allt að 63 km á
rafmagninu
Eins og vinsælustu tvinnbílarnir fer
Hyundai IONIQ fyrstu kílómetrana á
rafmagninu einu saman sé ekki alltaf
verið á botngjöf. Sé ekið mjúklega á
minni hraða en 70–80 getur Hyundai
IONIQ komist allt að 63 kílómetra
sé bíllinn með fullhlaðna rafhlöðu í
upphafi bílferðar.
Þegar ég fékk bílinn var eitthvað
búið að prófa hann fyrr um daginn og
samkvæmt aksturstölvu bílsins voru
35 km eftir á rafhlöðunni og yfir 500
á bensíntanknum. Strax og ég setti
bílinn í gang fór bensínvélin líka í
gang þar sem ég setti miðstöðina
á mesta hita, sætishitarann í botn
og kveikti á stýrishitaranum.
Bensínvélin er 1600 cc. og skilar
105 hestöflum. Við svona mikla
rafmagnsnotkun fer bensínmótorinn
sjálfkrafa í gang. Eftir smá stund að
læra á alla takkana í mælaborðinu
var bíllinn orðin heitur og ég lagði
af stað í stuttan bíltúr.
Hvimleitt veghljóð frá
vetrarhjólbörðunum
Nánast strax og ég lagði af stað,
drap bensínmótorinn á sér af því
að bíllinn var orðinn heitur og ég
búinn að slökkva á sætishitaranum
og lækka í miðstöðinni.
Ég leið áfram nánast hljóðlaust
um bæinn í fyrstu og ók svo til
Keflavíkur. Mér til undrunar, strax
við álverið í Straumsvík þegar
ég var kominn upp fyrir 70 km
hraða, byrjaði að heyrast mikið
veghljóð frá vetrarhjólbörðunum.
Stuttu seinna fór bensínmótorinn í
gang sem blandaðist við veghljóð
hjólbarðanna.
Að keyra bílinn er mjög ljúft,
fótapláss gott, sæti þægileg,
hljómgæði í hljómtækjum mjög gott.
Pláss í farangursrými er ekki mikið,
en rafhlöðurnar eru aftur í bílnum og
undir honum sem gerir hann stöðugri
í beygjum og hálku. Þó fannst mér
frekar lágt undir lægsta punkt, en í
snjó inni á bílaplani varð ég var við
að ég væri kominn að þolmörkum
bílsins í snjóakstri.
Fjölskylduvænsti tvinnbíllinn
til þessa
Ég get ekki sleppt því að vera með
smá samanburð á milli nokkurra
tvinnbíla sem ég hef prófað
síðastliðið ár.
Mini-bíllinn sem ég prófaði í
síðasta blaði var með fjórhjóladrif
og mun kraftmeiri, en eyðir
líka miklu meira eldsneyti á
bensínvélinni.
Kia Optima er líka miklu
kraftmeiri og eyðir meiru.
Sísti tvinnbíllinn er litli
BMW-bíllinn sem ég prófaði
á vormánuðum, lítill, tekur
nánast engan farangur (óttalegur
dúkkuvagn), en afgerandi
skemmtilegasta leikfangið var WV
tvinnbíllinn sem ég prófaði í vor
(endalaus orka og stórhættulegur
fyrir ökuskírteinið).
Hyundai IONIQ PHEV Premium
er hins vegar fjölskylduvænsti
tvinnbíll sem ég hef prófað. Hann
er með 141 hestafl og gefinn upp í
eyðslu samkvæmt bæklingi með 1,1
lítra á hundraðið. Eftir 93 kílómetra
akstur var mín eyðsla 4,4 lítrar. Ekki
bestu aðstæður til sparaksturs, snjór,
kalt og hálka.
Jákvæðir punktar
Verðið er með lægra móti en
Hyundai IONIQ, eða frá 3.990.000
krónum, og bíllinn sem ég prófaði
kostar 4.290.000 kr.
Akreinalesarinn virkar vel og
blindhornsvarinn einnig. Hitarinn
í stýrinu er mun heitari en almennt
í öðrum bílum sem ég hef prófað og
svo er hiti í aftursætum sem ekki er
í mörgum bílum.
Þráðlaus farsímahleðsla,
rafdrifin sæti með tveim minnum
eru fyrir ökumann.
Neikvæðir punktar
Ekkert varadekk er í bílnum,
eitthvað sem ég sætti mig aldrei við.
Hliðarspeglarnir fara niður á
veginn sjálfkrafa þegar sett er í
bakkgír. Það er gott fyrir þá sem
nota bakkmyndavélina, en fyrir þá
sem nota hana ekki og bakka með
gamla laginu eftir hliðarspeglunum
og baksýnisspeglinum, er þetta
mjög truflandi (ekki fyrsti bíllinn
sem ég prófa með þetta svona, en ég
stilli bara hliðarspeglana til baka).
Ég hef aldrei verið hrifinn af því
að sjá í baksýnisspeglinum tvískipta
afturrúðu, en af einhverjum
orsökum hefur svona sýn alltaf
truflað mig.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
– Mikil aukning á framboði og sölu tvinnbíla
Hyundai IONIQ PHEV Premium. Myndir / HLJ
Gott fótapláss fyrir ökumann og þegar drepið er á bílnum fer sætið töluvert
aftur til að auðvelda það að komast út úr bílnum.
Ekki sást mikið út um neðri afturrúðuna eftir saltpækilinn á Reykjanesbrautinni.
afturrúða hentar mér ekki.
Sett í bakkgír, þá fara speglarnir svona niður, hentar
ekki öllum. venjulega svona á öllum bílum.
Frekar lágt undir lægsta punkt.
Hæð 1.450mm
Breidd 1.820 mm
Lengd 4.470 mm
Helstu mál og upplýsingar