Bændablaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017 – Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN HUSQVARNA FS 400 LV Sögunardýpt 16,5 sm HUSQVARNA K 760 Sögunardýpt 12,5 sm HUSQVARNA K 2500 Sögunardýpt 14,5 sm HUSQVARNA DM 230 HUSQVARNA K 3600 MK II Sögunardýpt 27 sm HUSQVARNA Steinsagarblöð og kjarnaborar Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500 Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526 www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is Weidemann smávélar og skotbómur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara Weidemann er þýskur framleiðandi og er einn af frumkvöðlum í smíði smærri og meðalstórra mokstursvéla, fyrirtækið var stofnað árið 1960. Weidemann hefur fyrir löngu sannað gæði sín hér á landi og hefur alla tíð verið meðal mest seldu smávéla hér á landi. Kynntu þér vöruúrval Weidemann smávéla með nýju íslensku myndbandi á slóðinni www.kraftvelar.is/weidemann Landssamtök skógareigenda héldu tuttugasta aðalfund sinn í liðnum októbermánuði á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Fundurinn var haldinn í samstarfi við Félag skógarbænda á Vestfjörðum. Aðalfundarstörf voru með venjubundnum hætti, formaður og framkvæmdastjóri fóru yfir sínar skýrslur og gjaldkeri kynnti reikninga félagsins. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og Björgvin Örn Eggertsson, verkefnastjóri LbhÍ, fluttu ávörp. Málþing um umhirðu ungskóga Þá var haldið málþing um umhirðu ungskóga þar sem flutt voru þrjú erindi. Arnlín Óladóttir, ráðgjafi Skógræktarinnar á Vestfjörðum, flutti erindi um gæði ungskóga. Hún kom meðal annars inn á mikilvægi þess að vanda vel til verka við framkvæmdir og strax frá upphafi að sinna skóginum, fara inn með íbætur, þó ekki of snemma, bera á og sinna annarri umhirðu. Björgvin Örn Eggertsson fjallaði um umhirðu ungskóga, tvítoppaklippingu, uppkvistun og fyrstu grisjun. Síðan kom Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og lokaði umræðunni með erindi sem fjallaði um að læra af reynslunni. Björn Helgi Barkarson, sérfræðingur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, flutti erindi með yfirskriftinni „Auðlindin skógrækt“. Mörg áhugaverð mál voru til umfjöllunar í nefndum, m.a. tillaga um stuðning við aukna skógrækt sauðfjárbænda vegna fækkunar á sauðfé í landinu. Skógrækt er áhugaverður kostur til að treysta búsetu. Lagt var til að stjórn LSE vinni með Landssamtökum sauðfjárbænda, Bændasamtökum Íslands og Skógræktinni að útfærslu verkefnisins. Tillaga kom fram um að greiða 5. árs nema í lögfræði við Háskólann á Akureyri fyrir að gera verkefni um eignarétt kolefnisbindingar í skógrækt. Verkefnið yrði síðan eign LSE og samþykkt um að fela stjórn LSE að ganga frá þátttöku samtakanna um samstarf aðila í fræðslu- og kynningarmálum. Kynning á fræðslu og erlendu samstarfi Að loknum nefndarstörfum var boðið upp á áhugaverða umfjöllun um fræðslu og erlent samstarf. Björn B. Jónsson, Björgvin Örn Eggertsson, Sigríður Jóna Sigurfinnsdóttir og Sigríður Júlía Brynleyfsdóttir sögðu frá hvað er að gerast í fræðslumálum fyrir skógarbændur og sögðu frá því erlenda samstarfi sem er í gangi hjá stofnuninni. Einnig sagði Maríanna Jóhannsdóttir, formaður Félags skógarbænda á Austurlandi, frá upplifun sinni í fræðsluferð sem farin var til Svíþjóðar þar sem meðal annars var boðið upp á fræðsludag í skógi. /MÞÞ SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA Tuttugasti aðalfundur Landssamtaka skógareigenda: Mikilvægt að vanda til verka við umhirðu ungskóga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.