Bændablaðið - 30.11.2017, Síða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 760
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
Weidemann smávélar og skotbómur til
afgreiðslu með stuttum fyrirvara
Weidemann er þýskur framleiðandi og er einn
af frumkvöðlum í smíði smærri og meðalstórra
mokstursvéla, fyrirtækið var stofnað árið 1960.
Weidemann hefur fyrir löngu sannað gæði sín
hér á landi og hefur alla tíð verið meðal mest
seldu smávéla hér á landi.
Kynntu þér vöruúrval Weidemann smávéla
með nýju íslensku myndbandi á slóðinni
www.kraftvelar.is/weidemann
Landssamtök skógareigenda héldu
tuttugasta aðalfund sinn í liðnum
októbermánuði á Reykjanesi við
Ísafjarðardjúp.
Fundurinn var haldinn í
samstarfi við Félag skógarbænda
á Vestfjörðum. Aðalfundarstörf
voru með venjubundnum hætti,
formaður og framkvæmdastjóri
fóru yfir sínar skýrslur og gjaldkeri
kynnti reikninga félagsins. Þröstur
Eysteinsson skógræktarstjóri,
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson,
formaður Bændasamtaka Íslands,
og Björgvin Örn Eggertsson,
verkefnastjóri LbhÍ, fluttu ávörp.
Málþing um umhirðu ungskóga
Þá var haldið málþing um umhirðu
ungskóga þar sem flutt voru þrjú
erindi. Arnlín Óladóttir, ráðgjafi
Skógræktarinnar á Vestfjörðum,
flutti erindi um gæði ungskóga. Hún
kom meðal annars inn á mikilvægi
þess að vanda vel til verka við
framkvæmdir og strax frá upphafi
að sinna skóginum, fara inn með
íbætur, þó ekki of snemma, bera á
og sinna annarri umhirðu. Björgvin
Örn Eggertsson fjallaði um umhirðu
ungskóga, tvítoppaklippingu,
uppkvistun og fyrstu grisjun.
Síðan kom Þröstur Eysteinsson
skógræktarstjóri og lokaði umræðunni
með erindi sem fjallaði um að læra af
reynslunni. Björn Helgi Barkarson,
sérfræðingur frá umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu, flutti erindi með
yfirskriftinni „Auðlindin skógrækt“.
Mörg áhugaverð mál voru til
umfjöllunar í nefndum, m.a. tillaga
um stuðning við aukna skógrækt
sauðfjárbænda vegna fækkunar
á sauðfé í landinu. Skógrækt er
áhugaverður kostur til að treysta
búsetu. Lagt var til að stjórn
LSE vinni með Landssamtökum
sauðfjárbænda, Bændasamtökum
Íslands og Skógræktinni að útfærslu
verkefnisins.
Tillaga kom fram um að greiða 5.
árs nema í lögfræði við Háskólann
á Akureyri fyrir að gera verkefni
um eignarétt kolefnisbindingar
í skógrækt. Verkefnið yrði síðan
eign LSE og samþykkt um að fela
stjórn LSE að ganga frá þátttöku
samtakanna um samstarf aðila í
fræðslu- og kynningarmálum.
Kynning á fræðslu og
erlendu samstarfi
Að loknum nefndarstörfum var
boðið upp á áhugaverða umfjöllun
um fræðslu og erlent samstarf.
Björn B. Jónsson, Björgvin
Örn Eggertsson, Sigríður Jóna
Sigurfinnsdóttir og Sigríður Júlía
Brynleyfsdóttir sögðu frá hvað
er að gerast í fræðslumálum fyrir
skógarbændur og sögðu frá því
erlenda samstarfi sem er í gangi
hjá stofnuninni. Einnig sagði
Maríanna Jóhannsdóttir, formaður
Félags skógarbænda á Austurlandi,
frá upplifun sinni í fræðsluferð sem
farin var til Svíþjóðar þar sem meðal
annars var boðið upp á fræðsludag
í skógi. /MÞÞ
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Tuttugasti aðalfundur Landssamtaka skógareigenda:
Mikilvægt að vanda til verka við umhirðu ungskóga