Bændablaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
það frævur, blómið lokar sér eftir
tvo til þrjá tíma og helst lokað þar
til daginn eftir en þá skartar það
fræflum sem gefa af sér frjó. Eftir
það lokar blómið sér endanlega og
hafi frævurnar frjóvgast myndar
tréð aldin. Undur og fegurð
grasafræðinnar eru takmarkalaus.
Aldinið kallast avókadó, eða
lárpera. Húðin slétt eða hrjúfótt,
græn og stundum með svörtum,
gulum eða rauðleitum blæ,
egg-, hnatt- eða kúlulaga og eru
samkvæmt grasafræðinni stór ber
með einu stóru fræi. Yfirleitt 7 til
20 sentímetra löng og 150 til 1000
grömm að þyngd eftir yrkjum. Kjöt
aldinsins er gulgrænt og inniheldur
meiri fitu en nokkur annar ávöxtur
eða grænmeti. Megnið af fitunni
er ómettuð og því ekki hörð fita.
Þrátt fyrir að fræ villtra
lárviðartrjáa hafi verið
minni en ræktaðra trjáa
voru þau talsvert stór.
Vegna þess hefur
vafist fyrir þeim sem
láta sig slíkt varða
hvernið plantan
dreifist í náttúrunni.
Sennilegasta skýr-
ingin er að stórir
grasbítar hafi gleypt
fræin og seinna skilað þeim
í lífrænum áburðarpúða langt
frá móðurplöntunni. Það
skýrir þó ekki hvernig fræið,
sem er tiltölulega auðmelt, þoldi
að fara í gegnum meltingarveg
dýranna óskemmt.
Lárperutrjám í ræktun er fjölgað
með ágræðslu. Trén gefa af sér
aldin á fjórða til sjötta ári og að
jafnaði gefur hvert tré í ræktun af
sér 120 aldin á ári og uppskera á
hektara getur farið í 20 tonn við
góðar aðstæður. Í trjánum eru ensím
sem draga úr ofþroska aldinanna og
geta ræktendur því „geymt“ aldinin
á trjánum í allt að sjö mánuði. Strax
eftir að aldinið er tekið af trénu
byrjar það að þroskast. Þyngsta
lárperualdin sem vitað er um vó
1,3 kíló og óx á tré í Suður-Afríku.
Trén þrífast best í næringarríkum
jarðvegi við 18 til 25° á Celsíus.
Þau þola illa mikinn vind en til eru
yrki af lárperutrjám sem þola allt að
-6°á Celsíus í stuttan tíma.
Helstu yrki í ræktun
Rannsóknir benda til að lárperutré
hafi verið tekin til ræktunar á
þremur mismunandi stöðum í
Mið-Ameríku á svipuðum tíma þar
sem nú eru Mexíkó, Gvatemala og
eyjar í Vestur-Indíum og að ólík
ræktunaryrki hafi breiðst út þaðan
með fólki.
Til er fjöldi afbrigða, yrkja og
staðbrigða af lárperutrjám sem
hver um sig hefur sín sérkenni
þegar kemur að stærð, lögun, lit,
ilm, bragði og áferð.
Algengasta yrkið í ræktun
kallast 'Hass' og er aldin þess um
80% af lárperum á heimsmarkaði.
Allir einstaklingar yrkisins eru
komnir af sömu móðurplöntu sem
avókadó-áhugamaðurinn Rudolph
Hass í Kaliforníu ræktaði upp og
fékk einkaleyfi á árið 1935. Ekki
er vitað af hvaða undirtegund
móðurtréð var en það drapst vegna
rótarfúa árið 2002. Aldin yrkisins
eru 150 til 250 grömm að þyngd og
húðin hrjúfótt með svörtum blæ.
Talið er að ríflega 80 milljón tré af
yrkinu séu í ræktun víða um heim.
Helsti gallinn við 'Hass' er að yrkið
gefur ekki hámarksuppskeru nema
annað hvert ár og á það til að taka
sér eins árs hlé milli blómgana.
Yrkið 'Choquette' sem ræktað
var upp af fræi í Miami í Flórída
ber mörg og stór aldin auk þess sem
það er laust við margar óværur sem
herja á lárviðartré. Vinsælt yrki í
heimaræktun.
'Gwen' er blendingur milli 'Hass'
og 'Thille' frá 1982 sem gefur af
sér fleiri en minni aldin en 'Hass'.
Aldinið er hnattlaga og 100 til
200 grömm að þyngd. Húðin er
smáhrufótt og ljósgræn og kjötið
með hnetukeim.
'Lula' er fræplanta sem talið er
að sé afkomandi lárperutrjáa frá
Mexíkó og Gvatemala. Aldinin eru
feit og þykja bragðgóð. Algengt
rótaryrki við ágræðslu.
Yrkið 'Maluma' er fræplanta
sem upprunnin er á Suður-Afríki
kom á markað árið 1990. Plantan
fannst fyrir tilviljun og tekið til
ræktunar og ekkert er vitað um
ætterni hennar.
'Pinkerton' er blendingur
milli 'Hass' og 'Rincon' sem var
ræktaður upp í Kaliforníu á sjöunda
áratug síðustu aldar. Aldinið
er stórt en fræðið minna en hjá
móðurplöntunum. Húð aldinsins
ljós í fyrstu en dökknar við aukin
þroska. Aldinið bragðgott og feitt.
Yrkið 'Reed' er komið af
fræplöntu sem tekin var til
ræktunnar af James Reed í
Kaliforníu árið 1948. Fremur
lágvaxið yrki sem verður fjórir
til fimm metra að hæð. Aldinið er
stórt og hnöttótt að lögun. Húðin
gljádökkgræn og með slétta áferð
og kjötið með hnetukeim.
Af öðrum yrkjum má nefna
'Bacon', 'Brogden', 'Ettinger',
'Monroe', 'Zutano' og 'Sharwil' sem
er upprunið á Nýja Sjálandi.
Flest ofangreind yrki er fremur
ný komin fram á sjónarsviðið en
dæmi um eldri ræktunaryrki eru
'Challenge', 'Dickinson', 'Kist',
'Queen', 'Rey', 'Royal', 'Sharpless'
og 'Taft'.
Nafnaspeki
Víða um Mið- og Suður-Ameríku
kallast aldinið awa gualt en það
heiti mun vera dregið af orðinu
ahuacacuahalt sem þýðir tré sem
ber eistu og vísar til lögunar
aldinsins og hugmyndarinnar um
kynörvandi áhrif þess. Réttnefni
trésins er því eistnaaldinstré.
Spánverjar breyttu nafninu á
avocado og hefur það heiti fest
við aldinið á mörgum tungumálum.
Íslenska heitið lárpera er líklega
hingað komið úr dönsku eins og
svo margt annað gott.
Saga og nytjar
Lárviðartré er manngerð planta
og finnst ekki lengur í náttúrunni.
Elstu leifar um neyslu avókadós
eru frá Perú og taldar vera allt að
15.000 ára gamlar.
Við fornleifarannsóknir í
Oaxaca í Mexíkó hafa fundist
lítil og nánast hnöttótt fræ villtra
lárviðartrjáa. Fræin eru talin vera
frá því milli 6.000 og 5.000 árum
fyrir Krist eða um svipað leyti
og ræktun trjánna hófst í Mið-
Ameríku. Aldinið var í miklum
metum hjá Mæjum og Astekum.
Lyktin af blöðum sumra yrkja
minnir á anís og notuð sem krydd
eða vafin utan um mat sem bakaður
er í ofni.
Elsta evrópska lýsingin á
avókadó í riti er eftir Gonzalo
Fernandez de Oviedo y Valdés
í bók sem kallast Sumario de la
natural historia de las Indias og er
frá 1526.
Spænskir sjófarendur fluttu með
sér fyrstu lárperutrén eða fræ þeirra
til Spánar 1601. Fyrstu lárperutrén
bárust til Indónesíu 1750, eyjunnar
Máritíus 1780, Brasilíu 1809,
Suðurríkja Norður-Ameríku 1825
og til Suður-Afríku og Ástralíu
á síðasta áratug nítjándu aldar.
Ræktun á þeim hófst fyrir botni
Miðjarðarhafs 1908.
Mexíkó hóf fyrst útflutning
á avókadó til Bandaríkjanna
skömmu fyrir aldamótin 1900.
Bandaríkjastjórn lokaði fljótlega
á innflutning á þeim forsendum
að með aldininu gæti borist
ávaxtafluga sem væri skaðleg
ávaxtarækt í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna. Í kjölfarið lokaði
Mexíkó á innflutning á korni frá
Bandaríkjunum. Samningar náðust
síðar um gagnkvæm viðskipti með
avókadó og korn milli ríkjanna og
hafa vinsældir avókadós aukist
jafnt og þétt síðan þá.
Þrátt fyrir að fyrstu evrópsku
landafundamennirnir hafi kynnst
avókadó hjá frumbyggjum Mið-
Ameríku var aldinið nánast
óþekkt í Evrópu og annars staðar
í heiminum þar til eftir lok seinni
heimsstyrjaldarinnar.
Lárpera í munni og maga
Yfirleitt er avókadó borið fram
hrátt og flestir þekkja guacamole-
ídýfu og að nota lárperu í salat. Í
Brasilíu, Víetnam og Indlandi er
avókadó vinsælt í mjólkurhristing
og eftirrétti. Í Eþíópíu er aldinið
maukað í djús með sykri, vatni
og sítrónusafa. Ástralir og
Nýsjálendingar smyrja avókadó
á brauð og borða það með sushi
eða kjúklingum. Í Mexíkó og
Mið-Ameríku þykir gott að blanda
hrísgrjónum og avókadó saman og
borða með kjöti og í Perú er þess
neytt með fiski.
Einnig er gott að setja avókadó
á hamborgara og hafa með pylsum
ásamt hráum lauk.
Ræktun í heimahúsum
Auðvelt er að koma fræi, eða
steinum eins og Íslendingar kalla
fræ úr ávöxtum iðulega, til og
rækta upp lárperutré í heimahúsum.
Nóg er að taka fræið úr aldininu
og stinga því að hálfu leyti niður
í frjóa mold og halda moldinni
rakri og geyma pottinn á björtum
og hlýjum stað. Líka má stinga
tveimur til þremur tannstönglum
í fræið og láta það standa í staupi
hálft á kafi í vatni. Breiðari endinn
stal vísa niður. Sé gætt að vökvun
klofnar fræið eftir nokkra daga og
niður af því kemur rót og upp úr
því blöð. Best er að rækta plöntuna
í góðri og frjósamri mold á björtum
stað en ekki beinni sól, og vökva
reglulega.
Plönturnar eru blaðfallegar
en ólíklegt er að hún gefi af sér
aldin þrátt fyrir að slíkt sé ekki
ómögulegt.
Lárpera á Íslandi
Fljótt á litið virðist sem fyrst sé
minnst á avókadó eða lárperu í
dagblaði hér á landi árið 1970 og þá
í auglýsingu. Á þeim tæpu fimmtíu
árum sem liðin eru síðan þá hafa
vinsældir aldinsins hér á landi
aukist gríðarlega og þær þykja
orðið eins sjálfsagðar og blóðmör
og lifrarpylsa þóttu í eina tíð.
Í aldininu er eitt stórt fræ og auðvelt er að rækta avókadó
upp af slíku fræi.
Algengasta yrkið í ræktun kallast 'Hass' og er aldin þess um 80% af lárperum
á heimsmarkaði.
Til er fjöldi afbrigða, yrkja og staðbrigða af lárperutrjám sem hver um sig
hefur sín sérkenni þegar kemur að stærð, lögun, lit, ilm, bragði og áferð.
Blóm lárperutrjáa eru eitt af undrum náttúrunnar.
Lárperutré gefa af sér aldin á fjórða til sjötta ári og að jafnaði gefur hvert
tré í ræktun af sér 120 aldin á ári og uppskera á hektara getur farið í 20 tonn
við góðar aðstæður.