Bændablaðið - 30.11.2017, Side 13
13Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Massey Ferguson 5711
Hagkvæmur vinnuþjarkur – Lipur í ámoksturstækjavinnu
4 cylinder AGCO Power mótor, 4,4L togmikill sem nýtir orkuna vel jafnt á lágum snúningi sem háum. Sérlega
sparneytinn og áreiðanlegur. Gírkassi með 6+6 gírum, hraðastig upp að 12 km/klst akurstilling og upp að 40
km/klst vegastilling. Vendigír vinstra megin við stýrishjól er óháður kúplingu. 98 L vökvafæði til vökvaúttaka og
ámoksturstækja. Þriggja hraða aflúrtak (540-540E og 1000 snú/mín). Dráttarkrókur með vökvaútskoti.
Rúmgott hús með miklu útsýni. Þægilegt aðgengi. Loftfjöðrun á ökumannssæti. Farþegasæti með öryggisbeltum.
Öflug miðstöð. Öll helstu stjórntæki innan seilingar ökumanns. Auka ökuljós á handriðum. Vinnuljós í toppi
framan og aftan. Einföld og þægileg uppsetning stjórnbúnaðar. Með ámoksturstækjum og skóflu
m.v. EUR 120
Kr. 9.535.600 með vsk.
án
v
sk
Verð frá
7.690.000
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Monsanto og bændur í mál við Kaliforníuríki
Monsanto og félög korn-, maís-
og sojabænda á vesturströnd
Bandaríkjanna hafa nú höfðað
mál á hendur Kaliforníuríki
fyrir að krefjast þess að vörur
sem innihalda glyfosat séu
merktar með varúðarmerkingum
um að þau geti verið
krabbameinsvaldandi.
Yfirvöld í Kaliforníu hafa gefið
Monsanto-fyrirtækinu frest fram
til júlí á næsta ári til að merkja
vörur sem innihalda glyfosat með
varúðarmerkingunum. Glyfosat
er meðal annars virka efnið í
Roundup-illgresiseyðinum sem er
eitt af mest notuðu varnarefnum
í heiminum. Komu þessar kröfur
á hendur fyrirtækinu eftir að
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
WHO gaf út þá yfirlýsingu fyrir
tveimur árum að glyfosat væri
sennilega krabbameinsvaldandi.
Bændasamtök á svæðinu sem
eru fulltrúar fyrir maís-, soja- og
kornbændur og Monsanto vísa
þessu hins vegar á bug og segja
að það sé ekki glyfosat sem orsaki
krabbamein. Þess vegna hafa
þau ákveðið að fara í mál við
yfirvöld því þau halda því fram að
varúðarmerkingarnar muni verða
til þess að fölskum upplýsingum
sé haldið að fólki.
Að sögn talsmanna Monsanto
munu þessar merkingarkröfur
ekki eingöngu snúa að Roundup
heldur einnig öðrum varnarefnum
sem innihalda glyfosat frá öðrum
framleiðendum, uppskeru hjá
amerískum bændum sem nota
glyfosat og matvörum sem eru
framleiddar úr hráefnum sem eru
sprautuð með glyfosat.
Haft er eftir Scott Partridge,
framkvæmdastjóra alþjóða-
stefnumótunar hjá Monsanto, að
glyfosat sé tryggt, sjálfbært og
hagkvæmt verkfæri fyrir bændur
og að merkingarkröfurnar muni
ekki gera neitt annað en að þvinga
fyrirtækið til að prenta falskar
viðvaranir og þetta muni einnig
leiða af sér hærra matvælaverð.
Það er einnig erfitt hjá Monsanto
á öðrum vettvangi þessa dagana
því varnarefnið Dicamba, sem
fyrirtækið þróaði eftir að aukning
varð á illgresi sem hafði ónæmi fyrir
glyfosat, er að öllum líkindum það
efni sem olli miklu uppskerutjóni
síðastliðið sumar þar sem það var
notað.
/ehg - Nationen