Bændablaðið - 30.11.2017, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
„Það er alltof lítið gert til að auka
áhuga ungra veiðimanna á veiði,
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
hefur aðeins gert eitthvað með
veiðidögum i Elliðaánum.
Annað er ekki í gangi, félagið
hefur reyndar staðið sig vel,“ sagði
veiðimaður með ungan son sinn sem
tók spjall í veiðibúð fyrir skömmu og
auðvitað var þetta alveg rétt.
Mjög lítið er gert fyrir unga
veiðimenn, veiðileyfin eru dýr
og fáir ungir veiðimenn fara í
laxveiði, þegar dagurinn kostar
kannski 100–150 þúsund, það gefur
augaleið. Þess vegna þarf að gera
eitthvað, Veiðikortið hjálpar og
silungsveiðivötn úti um allt land.
Bryggjuveiði og dorg á þeim ýtir
undir veiðina.
Það þarf að draga liðið frá
tölvunum og út að veiða og hreyfa
sig. Veiði er ein leið til þess, það þarf
bara að aðstoða unga veiðimenn. Það
er heila málið.
„Mér finnst þeim fjölga sem
leggja stund á dorgveiði, þetta
er skemmtilegt sport og styttir
biðina eftir að veiðitíminn byrji
fyrir alvöru,“ sagði veiðimaður
sem ég hitti í veiðibúð fyrir fáum
dögum. Hann meinti greinilega
hvert orð sem hann sagði.
„Maður fer um leið og ísinn er
orðinn nógu traustur, hann er að
verða það sums staðar núna, bíð
spenntur. En biðin styttist, ég fer
mest á Hafravatn, upp í Svínadal
og austur fyrir fjall. Þú kemur bara
með á dorg í vetur, Bender,“ sagði
veiðimaður sem sagðist hafa veitt á
stöng fyrir fimm árum á aðfangadag
og fékk fisk.
„Ísinn er orðinn traustur, eins og
á Meðalfellsvatni, en enginn er samt
farinn að veiða á vatninu ennþá,“
sagði Sigurþór Gíslason á Meðalfelli
þegar Meðalfellsvatn bar á góma.
Veiðimenn voru á Hafravatni
fyrir fáum dögum, en voru reyndar
ekki að dorga heldur með stöng. Það
var smá vök en veiðin gekk rólega
og kalt var í veðri og ég skildi ekki
orð af því sem veiðimennirnir ræddu
um.
Frábært villibráðarkvöld
hjá Keflvíkingum
„Þetta var meiri háttar og fullt út
úr dyrum, maturinn hjá Úlfari
Finnbjörnssyni var frábær,“
sagði Óskar Færseth.
Hann ræddi þar um villibráðar-
kvöldið hjá Stangaveiðifélagi
Keflavíkur sem haldið var fyrir
fáum dögum og tókst vel.
„Það voru sagðar margar
veiðisögur og við afhentum
bikara fyrir stærstu fiskana í
sumar, þetta var skemmtilegur
endir á góðu sumri,“ sagði Óskar
Færset í samtali við tíðindamann
Bændablaðsins.
Eftir að tilkynnt var um dauða
Elvisar 16. ágúst 1977 hafa
gengið sögur um að hann væri
langt frá því að vera dauður
og við góða heilsu. Á hverju
ári berast fréttir víðs vegar
úr heiminum um að til hans
hafi sést allt frá Kópaskeri til
Kalkútta.
Vikublaðið World Weekly
News hefur verið einstaklega
duglegt við að birta frásagnir
af þessu. Blaðið hefur t.d. greint
frá því að Elvis búi á Havaí,
ásamt núverandi eiginkonu
sinni.
Elvis mun hafa greint frá því
í viðtali ekki alls fyrir löngu að
hann hafi verið að bugast undan
frægðinni og álaginu sem henni
fylgdi og dauði sinn hafi verið
settur á svið svo að hann gæti
lifað eðlilegu lífi. Hann segist
reyndar sjaldan búa lengi á sama
stað því hann sé á stanslausum
flótta undan því að þekkjast.
Elvis hefur reyndar breyst
talsvert með aldrinum og í dag
er hann kominn með bjórvömb,
skegg og skalla.
Í annarri frétt í sama blaði
segir að í staðinn fyrir Elvis hafi
verið búin til nákvæm vaxmynd
af kónginum og hún höfð til
sýnis meðan líkið stóð uppi og
að það hafi verið lík óþekkts
Englendings sem fór í gröfina.
Í öðru blaði er því haldið fram
að Elvis sé geimvera og það hafi
sést til hans á tunglinu.
Frá dauða Presleys hafa verið
stofnuð trúfélög sem hafa tekið
hann í guðatölu. Sumir halda
því fram að hann sé frelsarinn
endurfæddur og þess hefur verið
farið á leit að kaþólska kirkjan
taki hann í tölu dýrðlinga.
The Church of Elvis í
Portland Oregon er opin allan
sólarhringinn og þar er hægt
að ganga í hjónaband og
Elvislíki syngur við brúðkaupið.
Önnur birtingarmynd Elvis-
dýrkunarinnar er að á hverju ári
er keppt úti um allan heim þar
sem menn leitast við að líkjast
goðinu í útliti og háttum. Það
eru því til taílenskir, japanskir,
norskir og íslenskir Elvisar.
Fyrir nokkrum árum heiðraði
bandaríska póstþjónustan
rokkgoðið með því að setja
mynd af honum á frímerki og
kraftaverkin gerast enn. Stuttu
seinna lýsti bandarísk kona
því yfir að hún hefði læknast
af krabbameini í hálsi eftir að
hafa sleikt Elvisfrímerki. Og frá
Hollandi hafa borist þær fréttir
að stytta af Elvis gráti blóði eins
og Maríumyndir gera annað
slagið.
Líkt og aðrir dýrðlingar á
Elvis sinn helgireit þangað
sem dýrkendur hans sækja í
stríðum straumum alla daga
ársins þótt fjöldinn sé mestur í
kringum fæðingar- og dánardag
hans. Margir líta á Graceland
sem helgidóm og telja sér skylt
að fara í pílagrímsferð þangað
að minnsta kosti einu sinni á
ævinni, líkt og múslímar sem
verða að fara til Mekka.
Sé litið til vinsælda og
æðisins í kringum Elvis
Presley á undanförnum árum
er engu líkara en að hann hafi
snúið aftur frá dauðum og sé
ódauðlegur. Sala á tónlist hans
hefur aldrei verið meiri og talið
er að búið sé að selja rúmlega
milljarð eintaka, sem þýðir að
sjötta hver manneskja á jörðinni
á plötu með Elvis, hann lifir.
/VH
Elli prestsins
með bumbu
og skalla
STEKKUR
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
HLUNNINDI&VEIÐI
Fleiri veiðimenn leggja
stund á dorgveiði
Mynd / G.Bender
Þarf að auka áhuga ungra
veiðimanna á veiði
Mynd / G.Bender
Myndir / Vilhjálmur Ragnarsson
Nú þegar skammdegið stendur hátt
er ekki úr vegi að víkja að veiðiskap
fyrir komandi vor. Vatnaveiðin
er fjölskyldusport sem hefur átt
vaxandi vinsældum að fagna.
Ein af ástæðum fyrir miklum
vexti í vatnaveiðinni má tileinka
Veiðikortinu sem hóf göngu sína fyrir
um 14 árum. Með möguleikunum
sem Veiðikortið býður upp á er að
veiðimenn geta veitt að vild í vötnum
sem eru í boði hverju sinni. Ungir
veiðimenn, yngri en 14 ára, veiða
frítt með fullorðnum korthöfum
og hafa því nokkuð margir ungir
veiðimenn skotið upp kollinum á ný
en stangaveiði í vötnum hafði farið
mjög halloka fyrir tölvuleikjavæðingu
sem hefur tröllriðið öllu. Vatnaveiði
er góð og afslappandi útivera og fátt
betra en að komast í rólegheit og
afslöppun við vötn landsins.
Nú er Veiðikortið fyrir 2018
að koma út á næstu dögum og við
heyrðum í Ingimundi Bergssyni hjá
Veiðikortinu og samkvæmt honum eru
litlar breytingar framundan. Búið er að
tryggja áframhaldandi samninga við
flest vatnasvæðin sem voru í kortinu
í fyrra. Það liggur fyrir að næsta
sumar verði undirlagt fótbolta, enda er
Ísland að fara að taka þátt í sínu fyrsta
heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Það
verður því nauðsynlegt fyrir landann
að róa aðeins taugarnar og gleyma sér
á milli fótboltaleikja með veiðistöng
í hönd og renna fyrir silung í vötnum
landsins.
Erlendir ferðamenn eru í mun
meira mæli en áður að uppgötva
hreinu vötnin okkar hér á Íslandi
og villtu fiskistofnana sem í þeim
er að finna. Fjöldi veiðimanna er að
aukast talsvert á milli ára gagngert
til að stunda ódýra vatnaveiði, en
fyrir marga hefur Ísland einungis
verið þekkt fyrir dýra laxveiði í
lúxusveiðihúsum, en það er klárlega
bara lítill hluti erlendra veiðimanna
sem hefur ráð á því. Margir eru að
laumast úr skarkala stórborga til að
komast út í guðsgræna náttúruna á
Íslandi til að njóta einveru og veiða í
vötnum landsins.
Það styttist í veiðisumarið og um
að gera fyrir veiðimenn að kynna sér
skemmtilega veiðimöguleika sem
Veiðikortið 2018 býður upp á.
„Sumarið var skemmtilegt,
nokkrir fiskar, bæði lax og
silungur, gat alls ekki verið
betra,“ sagði Jógvan Hansen er
við hittum hann fyrir skömmu,
nýkominn frá Færeyjum.
Það var hundleiðinlegt veður í
Færeyjum, eins og Jógvan orðaði
það.
„Það var helvítis skítaveður. Ég
ætlaði að fara að veiða helling en
komst bara smá. Ég fór líka út á
sjó og við fengum 3 fugla. Daginn
sem ég lenti í Færeyjum var frændi
minn að skjóta héra og fékk 12,
en ég kom of seint. Svona er þetta
bara.
Það var ekki gott veður á sjónum
frekar en upp á fjöllum hérna á
Íslandi. En ég náði mér í jólamatinn
í rjúpunni uppi í Borgarfirði, en
varla meira en það. Það sem ég
fékk skiptir samt miklu máli,“ sagði
Jógvan Hansen.
Bjart framundan
í vatnaveiðinni
Mynd / Sigurjón
Kom aðeins of seint til Færeyja