Bændablaðið - 30.11.2017, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Hrossabændur í Húnavatnssýslu:
Undirbúa stofnfund félags um blóðtöku
úr fylfullum hryssum fyrir lyfjaiðnaðinn
HROSS&HESTAMENNSKA
Allt að 30 bændur í Húnavatns-
sýslu stunda það sem Kristján
Þorbjörnsson kallar hrossabúskap
með blóðtöku og hyggjast
þeir innan tíðar stofna félag
um þessa búskaparhætti sína.
Undirbúningur stendur sem
hæst en blásið verður til fundar
á Blönduósi einhvern næstu daga.
Kristján segir búskap þennan
hafa verið stundaðan um áratugi, en
hver og einn hafi verið í sínu horni.
Nú vilji menn stilla saman strengi,
auka fagþekkingu og gæta sinna
hagsmuna og því standi til að stofna
til formlegs félagsskapar.
Efnið nýtt í lyfjaframleiðslu
Kristján segir þessa framleiðslu
ganga út á að taka blóð úr fylfullum
hryssum og er byrjað á að taka sýni
úr öllum hryssum í hópnum um
8 vikum eftir að stóðhesti hefur
verið hleypt í stóðið. Niðurstaða
rannsóknar á blóðsýninu segir svo
til um hvaða hryssur eru tilbúnar til
blóðtöku.
„Verið er að sækjast eftir efni í
blóði þeirra, en 6-8 vikum eftir að
þær eru fengnar framleiða hryssurnar
sérstakt efni sem unnið er og notað
við fósturvísaflutninga sem og einnig
frjósemislyf,“ segir Kristján. Blóð
er tekið úr jákvæðum hryssum einu
sinni í viku.
Viljum gæta okkar hagsmuna
Kristján segir þeim sem stunda
þennan búskap hafa fjölgað hin
síðari ár, þeir hafi yfir mismunandi
stórum hóp að ráða, en algengt
að þeir séu á bilinu frá 30 til 70,
sums staðar talsvert fleiri en það. Í
Húnavatnssýslunum séu allt að 30
hrossaeigendur sem stundi þessa
grein landbúnaðar.
„Það er ekki fyrir hendi neitt
félag eða samtök sem hafa það beint
á sinni stefnuskrá að þjónusta eða
gæta hagsmuna þeirra sem stunda
þessa framleiðslu,“ segir hann. „Úr
því viljum við bæta og erum því
að undirbúa stofnfund sem haldinn
verður innan skamms á Blönduósi.
Markmið þess félags er auk þess
að gæta hagsmuna þeirra sem eru
í þessari framleiðslu, að stuðla að
fræðslu, og vinna að því að koma
á framfæri upplýsingum, sem bætt
gæti reksturinn, til þeirra sem stunda
þennan búskap.“
Einn kaupandi á Íslandi
Einungis einn kaupandi er til staðar
hér á landi, fyrirtækið Ísteka.
Dýralæknar á þess vegum sjá um
blóðtöku, en eigendur hryssanna um
annað umstang sem fylgir. Kristján
segir að á liðnu hausti hafi verðið
fyrir lítra af blóði verið á bilinu 1.309
upp í 1.800 krónur, en flokkaskipting
blóðs og verð á hverjum flokki er
alfarið í höndum fyrirtækisins. Segir
Kristján að menn séu miskátir með
að félagið geti einhliða ákveðið hvað
greitt sé.
Eins og áður segir eru það
töluvert margir í Húnavatnssýslum
sem stunda blóðtöku, víðar um land
einnig, en Sunnlendingar eru einna
stærstir í þessari framleiðslu. /MÞÞ
Hross i Vatnsdal gæða sér á góðri tuggu. Mynd / HKr.
Frá afhendingunni, Andrea M. Þorsteinsdóttir, formaður Léttis, í miðjunni
með þeim Ólafíu K. Snælaugsdóttur og Viðari Bragasyni. Mynd / Léttir
Hestamannafélagið Léttir:
Söfnun fyrir hjónin á Björgum
sem misstu allt sitt í eldsvoða
Andrea M. Þorvaldsdóttir, for-
maður Hestamannafélagsins
Léttis, hefur afhent þeim Viðari
Bragasyni og eiginkonu hans,
Ólafíu K. Snælaugsdóttur,
söfnunarfé, afrakstur söfnunar
sem Léttisfélagar stóðu fyrir.
Yfirskrifst söfnunarinnar var
„Hjálpum til á Björgum“, en þau
Viðar og Ólafía urðu fyrir því í
byrjun október að íbúðarhús þeirra
að Björgum í Hörgársveit brann til
kaldra kola.
Misstu allt sitt
„Þau stóðu bara í fötunum sem þau
voru í en allar aðrar eigur þeirra
urðu eldinum að bráð,“ segir á
heimasíðu Léttis þar sem greint er
frá afhendingunni.
„Með þessari söfnun vildi
Hestamannafélagið sýna þeim
hjónum samhug í verki.“ Léttis-
félagar eru sannfærðir um að það fé
sem safnaðist muni koma að góðum
notum fyrir Bjargarhjónin við að
endurnýja heimili sitt.
„Þegar erfiðleikar steðja að er
fátt betra en að eiga góða vini og
að finna þessa strauma frá ykkur
er ómetanlegt. Við finnum að við
erum umvafin englum og þökkum
ykkur endalaust fyrir ykkar stuðning.
Mikið ósköp erum við þakklát fyrir
að eiga ykkur að,“ segja þau Viðar
og Ólafía í kveðju til Léttisfélaga.
/MÞÞ
Uppskeruhátíð æskulýðsnefndar Léttis:
Egill Már og Steindór Óli knapar ársins
Egill Már Þórsson stal senunni á
Uppskeruhátíð æskulýðsnefndar
Hestamannafélagsins Léttis um
liðna helgi. Hann hreppti titilinn
Knapi ársins í unglingaflokki,
en afrekaskrá drengsins þykir
algjörlega einstök.
Knapi ársins í barnaflokki var
kjörinn Steindór Óli Tobíasson, en
hann á sérlega gott ár að baki og vel
að titlinum kominn. Margrét Ásta
Hreinsdóttir stóð sig líka einkar vel
á árinu, þykir gríðarlega efnilegur
knapi og mun án efa láta að sér kveða
á komandi árum.
„Það er alveg greinilegt að æska
Léttis er öflug og dugmikil og
verður spennandi að fylgjast með
krökkunum á næstu árum,“ segir
Sigfús Ólafur Helgason hjá Létti.
Að lokinni hátíðlegri athöfn við
verðlaunaveitingar var boðið upp á
pitsur og fóru börn og ungmenni södd
og sæl heim að lokinni ánægjustund
í Skeifunni. /MÞÞ
Viðar Bragason Íþróttamaður Léttis
Viðar Bragason hlaut sæmdar-
heitið Íþróttamaður Léttis 2017
en viðurkenningin var afhent
á uppskeruhátíð Hesta manna-
félagsins Léttis.
Nokkrir voru til kallaðir en
afrekaskrá Viðars þótti með
glæsilegra móti þetta árið og erfitt
getur reynst að toppa þau.
Egill Már Vignisson kom, sá og
sigraði í ungmennaflokki og gerði
það með glæsibrag. Hann hlaut
titilinn Afreksknapi Léttis.
Árið hefur verið Agli einkar
árangursríkt og gefur góð
fyrirheit til framtíðar litið sé
rétt á spilum haldið. Egill Már
fékk harða samkeppni frá Völu
Sigurbergsdóttur sem skaust upp
á stjörnuhimininn með góðum
árangri á árinu. /MÞÞ
Mynd / Sigfús Ólafur Helgason
Mynd / Sigfús Ólafur Helgason