Bændablaðið - 30.11.2017, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Gert hefur verið ráð fyrir að
glyfosat, sem er m.a. virka efnið í
gróðureyðingarefninu Roundup,
verði bannað í landbúnaði í
Evrópu í kjölfar framlengingar til
2022 eins og greint var frá í síðasta
Bændablaði. Áfýjunarnefnd ESB
samþykkti framlengingu á heimild
til notkunar síðastliðinn mánudag
með 18 atkvæðum gegn 9 og einn
fulltrúi sat hjá.
Með þessu lýkur, í bili að minnsta
kosti, átökum sem staðið hafa um
framlenginguna undanfarna mánuði.
Enn eina ferðina eru Íslendingar
minntir á hversu við höfum það
gott í hreinu landi þar sem bændur
nota langflestir ekkert af glyfosat-
tengdum eiturefnum við sína
matvælaframleiðslu, né
sýklalyf eða hormóna
sem vaxtarhvata.
Þessu er ekki alltaf að
heilsa annars staðar í
Evrópu, Banda ríkjunum
og Kanada. Þar eru mjög
hörð skoðanaskipti um notkun
á gróðureyðingarefnum og
skordýraeitri, eða því sem menn
kalla „varnarefni“ í landbúnaði.
Með slíkri notkun reyna
bændur víða um heim a ð
tryggja hámarks-
framleiðslu á
hvern hektara
fyrir markað sem
heimtar stöðugt
ódýrari matvöru. Það e r
m.a. hvatinn á bak við löggjöf og
reglugerðir sem hafa leitt til þess
að EFTA-dómstóllinn hefur nú
bannað Íslendingum að gera kröfur
til að koma í veg fyrir innflutning
sjúkdóma í hráu kjöti og eggjum.
Fylgifiskur notkunar eiturefna í
landbúnaði eru meint eitrunaráhrif
á neytendur, spilling grunnvatns
og ofnýting jarðvegs. Afleiðingin
getur síðan verið niðurbrot
jarðvegs sem verður þá ónothæfur
til ræktunar. Það mun aftur leiða
til stórhækkaðs matvælaverðs og
mögulega matvælaskorts. Enginn
þeirra sem hafa að undanförnu sagst
bera hag neytenda mjög fyrir brjósti
í þessum málum, hefur samt borið
á borð hvar neytendur eigi að leita
ásjár og krefjast ábyrgðar ef illa fer.
Bráðabirgðaleyfi fyrir glyfosat
átti að renna út 15. desember
Bráðabirgðaleyfi fyrir áfram-
haldandi notkun glyfosat í ESB-
löndunum átti að renna út 15.
desember og í síðasta lagi 31.
desember samkvæmt vefsíðu
framkvæmdastjórnar ESB
(European Commission). Ítrekað
hefur banni verið frestað innan
Evrópusambandsins enda miklir
fjárhagslegir hagsmunir í húfi. Þar
hefur legið tillaga um að framlengja
leyfi til notkunar á glyfosati um
fimm ár, eða til 2022, eins og
frétt Guardian byggir á. Mögulegt
virðist hins vegar vera að heimild til
notkunar á glyfosati renni endanlega
út um næstu áramót. Það er eitthvað
sem fjársterk hagsmunaöfl munu
berjast gegn, hvað sem það kostar.
Ekki náðist samstaða á fundi
9. nóvember
Á fundi í Brussel 9. nóvember var
meiningin að afgreiða málið, en ekki
náðist samstaða um slíkt. Þar vildu
14 ESB-ríki með 36,95% íbúa ESB
f r a m l e n g j a
leyfi til notkunar, en 9 ríki með
32,26% íbúa ESB voru á móti.
Þá sátu 5 ríki, með 30,79% íbúa
hjá við atkvæðagreiðslu, þar á
meðal Þýskaland. Lagt var til
að málið fari fyrir áfrýjunar nefnd
sem tók málið fyrir á mánudag, 27.
nóvember.
Samþykkt að framlengja leyfi til
notkunar til 2022
Málið var komið í alvarlega klemmu
en úr því leystist á mánudag. Í
frétt BBC segir m.a. að atkvæði
hafi fallið þannig að 18 fulltrúar
greiddu atkvæði með heimild til
áframhaldandi notkunar til ársins
2022. Níu fulltrúar voru á móti og
einn sat hjá.
Fyrir atkvæðagreiðsluna í
áfrýjunar nefndinni á mánudag var
staðan sú að fulltrúar um þriðjungs
íbúa ESB í framkvæmdastjórninni
voru staðfastir í að heimila áfram
notkun glyfosat, fulltrúar annars
þriðjungs íbúa voru harðir á móti og
síðan þorðu fulltrúar þess þriðjungs
sem eftir var ekki að taka afgerandi
afstöðu til málsins.
Eftir mikil átök innan ESB
var loks samþykkt í júlí 2016 að
heimila um takmarkaðan tíma
áframhaldandi notkun á efnum til
notkunar í landbúnaði sem innihéldu
glyfosat. Þá horfðu menn fram á að
heimildir rynnu út 31. júlí 2016.
Þessi heimild var síðan framlengd
síðastliðið sumar um 6 mánuði eða
í allra síðasta lagi til 31. desember
2017. Nú er enn búið að framlengja
leyfið og það til fimm ára.
Málamiðlun í júlí
Í sumar, eða þann 20. júlí,
lagði framkvæmdanefndin
fram málamiðlunartillögu fyrir
væntanlega atkvæðagreiðslu um
glyfosatmálið í haust. Þar var m.a.
lagt til að verndun grunnvatns
yrði tekin inn í umræðuna sem og
verndun svæðisbundinna dýra og
plantna.
Þrjú skilyrði voru sett sem
hrein málamiðlun fyrir samþykkt
framlengingar á notkunarheimildinni
til 6 mánaða síðastliðið sumar.
• Bann var sett á notkun
hiðarafurðaefna sem innihalda
glyfosat eða svokallaðra POE-
tallowamine efna sem m.a. hafa
verið notuð í sápur og ýmsar
iðnaðarvörur.
• Dregið skyldi úr notkun
gróðureyðingarefna sem
innihalda glyfosat á opnum
opinberum svæðum, eins og
í almenningsgörðum og á
leiksvæðum.
• Skoðuð yrði forvarnarnotkun á
efnum sem innihalda glyfosat á
ræktarlandi.
Með þessum skilyrðum átti
heimildin til notkunar á glyfosati
að renna út 15. desember 2017.
Pöntuð niðurstaða EFSA?
Framkvæmdastjórn ESB fór þess
á leit við Evrópsku matvæla-
öryggisstofnunina (EFSA) fyrr á
þessu ári að skoða áhrif efna eins og
glyfosat á innkirtlastarfsemi manna
með tilliti til reglugerðar um slík
efni. EFSA skilaði skýrslu um málið
í ágúst þar sem niðurstöður eru
um margt á skjön við fullyrðingar
vísindamanna og Alþjóða
heilbrigðis mála stofnunarinnar
WHO, sem áður höfðu sagt að notkun
glyfosat í landbúnaði til framleiðslu
á matvörum væri mönnum skaðleg
og gæti verið krabbameinsvaldandi.
Evrópska matvæla öryggis-
stofnunin fjallar mjög þröngt í
niðurstöðu sinni um áhrifin á
innkirtlastarfsemi út frá grein 31
í reglugerð númer 178/2002 og
segir að nægileg gögn séu ekki
fyrir hendi. Þrátt fyrir að EFSA
segi að gögn skorti, þá gefur
EFSA það samt út í 20 síðna
skýrslu sinni að engar sannanir né
eiturefnafræðilegar rannsóknir séu
fyrirliggjandi um að glyfosat valdi
röskun á innkirtlastarfsemi. Þetta
hafa andstæðingar áframhaldandi
notkunar á glyfosat gripið á lofti og
sagt vera skýrt dæmi um fyrirfram
pantaða niðurstöðu frá EFSA.
Áhættunefnd RAC
segir glyfosat „ekki eitrað efni“
– en sé samt eitrað
Efnafræðistofnun ESB (European
Chemicals Agency – ECHA)
sendi frá sér álit um málið 15.
júní síðastliðinn sem er þó opið
í báða enda. Þar kemur fram
að RAC, áhættunefnd ECHA,
hafi samþykkt að halda sig við
sameiginlega skilgreiningu á hvað
væru hættuleg efni sem gætu m.a.
valdið augnskaða og verið hættuleg
lífi í vötnum og haft langvarandi
eituráhrif. Þar segir að RAC hafi
komist að þeirri niðurstöðu að
engar fyrirliggjandi vísindalegar
sannanir væru fyrir því að skilgreina
glyfosat sem krabbameinsvaldandi,
stökkbreytandi eða yfirleitt sem
eitrað efni. Samt vísar nefndin til
þess tveim málsgreinum síðar að
fyrirliggjandi í augnablikinu séu
vísindalegar sannanir fyrir því að
glyfosat valdi alvarlegum augnskaða
(Causes serious eye damage) og sé
eitrað fyrir vatnalífverur og valdi
langvarandi eituráhrifum (Toxic
to aquatic life with long lasting
effects).
Síðan segir í áliti ECHA að RAC
hafi komist að þeirri niðurstöðu að
fyrirliggjandi vísindalegar sannanir
standist „ekki kröfur samkvæmt
CLP reglum“ til að hægt sé að
skilgreina glyfosat sérstaklega sem
hættulegt efni fyrir líffæri, né að
það sé krabbameinsvaldandi eða
geti valdið stökkbreytingum á
genum og sé ekki heldur hættulegt
æxlunarfærum.
Þetta er athyglisvert í ljósi þess
að Alþjóðaheilbrigðismálastofnnin,
WHO, gaf út þá yfirlýsingu fyrir
tveimur árum að glyfosat væri
sennilega krabbameinsvaldandi.
Mun breyta afstöðu í takt við
pólitískt veðurfar
Í lok þessa álits RAC er síðan sagt
að viðtekin skoðun sem notuð er
til að samræma skilgreiningu á
glyfosati verði svo endurskoðuð í
samræmi við niðurstöðu aðildarríkja
ESB um hvort heimiluð verði
áframhaldandi notkun á glyfosati
eða ekki síðar á þessu ári. Með
öðrum orðum, áhættunefnd RAC
mun breyta afstöðu sinni til þess
hvort glyfosat sé hættulegt eða ekki
í takt við pólitískt veðurfar innan
Evrópusambandsins. Miðað við
þetta er ekki skrítið að andstæðingar
notkunar á glyfosati tali um pantaðar
niðurstöður frá stofnunum ESB.
Beiðni um stöðvun studd
undirskriftum milljóna
Framkvæmdastjórn ESB fékk í
hendur þann 6. október sl. beiðni
svokallaðs frumkvæðishóps
evrópskra borgara um að stöðva
notkun á glyfosati. Var það stutt
undirskriftum einnar milljónar
íbúa í sjö ESB-löndum. Þá hafði
nefndinni líka borist staðfestar
undirskriftir ríflega milljón
íbúa í 22 aðildarlöndum ESB
um að banna glyfosat. Gefa átti
andstæðingum glyfosat úr röðum
frumkvæðishópsins tækifæri til að
ávarpa Evrópuþingið 20. nóvember
og kynna sínar röksemdir. Í
framhaldinu var meiningin að
framkvæmdastjórn ESB tæki
endanlega ákvörðun í málinu. Þó
flestir líti svo á að bann við notkun
glyfosat verði framlengt til 2022,
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fyrirbyggjandi úðun illgresiseyðis á
akur í Evrópu. Einhver stórvirkustu
gjarnan notuð við slíka iðju.
Aðgerðarsinnar Avaaz mótmæla glyfosatnotkun fyrir framan höfuðstöðvar
framkvæmdstjórnar ESB í Brussel í Belgíu þann 9. nóvember 2017.
Mynd / neweurope.eu
Notkun eiturefnisins glyfosat er orðin afar umdeild í landbúnaði víða um heim:
Heimild til að nota Glyfosat framlengd
í ESB í fimm ár eða til ársloka 2022
– Efnasambandið ekki sagt hættulegt af framleiðendum og undirstofnunum ESB nema stundum, en samt sagt eitrað fyrir fiska