Bændablaðið - 30.11.2017, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Súrkál er bráðhollt sælkerafæði
Dagný sýrir flestallt grænmeti og
segir kál og rótargrænmeti gott
sem uppistaða. „Svo nota ég alls
kyns krydd til að lífga upp á. Ég
legg mikla áherslu á að nota íslenskt
grænmeti, því ferskt og hreint
hráefni er lykillinn að vel heppnuðu
súrkáli.“
Mjólkursýrubakteríur sýra
grænmetið
„Aðferðin gengur út á að
skapa þannig aðstæður að
mjólkursýrubakteríurnar sem eru
náttúrulega til staðar í grænmeti nái
að fjölga sér og nái yfirhöndinni svo
hvorki mygla, ger né aðrar bakteríur
nái að spilla fyrir. Til að þetta gangi
vel þarf gerjunin að fara fram við
loftfirrtar aðstæður. Aðeins er notað
grænmeti, salt og krydd og gerjunin
tekur nokkrar vikur – mislangan
tíma þó eftir hráefni, ytri aðstæðum,
hitastigi og þess háttar,“ útskýrir
Dagný.
Sem fyrr segir er Súrkál fyrir
sælkera komið á markað og fæst í
tilteknum verslunum eins og Frú
Laugu, Fræinu í Fjarðarkaupum,
Kjöthöllinni og Búrinu. „Viðtökurnar
hafa verið langt framar vonum.
Ég byrjaði með þrjár tegundir;
Sítrónukálið ljúfa, Curtido og
Kimchi. Þetta er allt ljúffengt en
mjög ólíkt. Á næstu vikum bætist
svo við ein sort sem er gjörólík
þessum þremur og verður fullkomin
með jólamatnum. Ég er með fullt af
hugmyndum að fleiri vörum en ætla
ekki að setja allt í gang í einu.
Alvöru ógerilsneytt súrkál er
bráðhollt. Það er lifandi fæða og
inniheldur alla hollustuna úr hráa
grænmetinu sem í það fer en að
auki er í því mikið magn af lifandi
mjólkursýrugerlum. Það er sagt
hafa afar góð áhrif á þarmaflóruna
og mörg okkar þurfa á því að halda
að hressa upp á hana. Fjölmargar
rannsóknir hafa sýnt fram á
mikilvægi heilbrigðrar þarmaflóru
og því eru margir farnir að ráðleggja
fólki að borða ógerilsneytt súrkál
reglulega.“
Fékk snemma áhuga
á matjurtarækt
Dagný er grunnskólakennari að
mennt og starfaði við kennslu
þar til fyrir stuttu. „Ég hef haft
mikinn áhuga á matjurtarækt
frá unga aldri og er alin upp við
garðrækt,“ segir Dagný um rætur
áhugans á matjurtarræktuninni. „Á
unglingsárum fór ég í lýðháskóla í
Noregi þar sem ég lærði um lífræna
ræktun og sjálfsþurftarbúskap. Á
síðustu öld vorum við fjölskyldan
með stóran garð og þá ræktuðum
við mikið af grænmeti en svo kom
nokkurra ára hlé eftir að við fluttum
í húsnæði þar sem lítill garður
fylgdi. Þá vorum við bara með
kryddjurtir í pottum og bölum – og
jarðarber í trjábeðunum. Svo var
það árið 2011 að móðir mín keypti
sumarhús á stórri lóð og ég fékk að
leika lausum hala á heilum hektara
af landi.
Ég lagðist í að lesa og skipuleggja
og svo helltum við okkur í
framkvæmdir. Ruddum land til
ræktunar, en svæðið sem varð fyrir
valinu var áður kjarri vaxið. Við
byrjuðum á að koma okkur upp
um 200 fermetra kartöflugarði og
smíðuðum 20 upphækkaða reiti.
Ræktunin hefur gengið vonum framar
og við höfum gert alls kyns tilraunir,
prófað marga tugi yrkja af gulrótum,
ræktað alls kyns rótargrænmeti, salat
og kál og kryddjurtir að ógleymdum
kartöflunum.“
Ræktar kartöflur upp af fræi
„Undanfarin ár hef ég verið að rækta
kartöflur upp af fræi í samstarfi
við Jóhönnu Magnúsdóttur á
Dalsá og Jón Guðmundsson á
Akranesi. Verkefnið höfum við
unnið innan Garðyrkjufélags
Íslands. Upprunalegu fræin fékk
ég frá Bandaríkjamanninum Tom
Wagner sem er alger gúrú í að
þróa ný kartöflu- og tómatayrki.
Markmiðið er að fræða sem flesta
um kartöflurækt af fræi og þróa
ný og spennandi yrki sem henta
hér á landi. Við erum komin með
nokkur spennandi yrki sem enn eru
í prófunum.
Undanfarin tvö vor hefur félögum
í Garðyrkjufélaginnu gefist kostur á
að fá kartöflufræ sem ég hef safnað
af mínum yrkjum. Grasagarðurinn í
Reykjavík var með mörg yrki frá mér
í ræktun í sumar og þau sáðu einnig
kartöflufræi. Þegar maður ræktar
kartöflur upp af fræi getur maður
fengið mjög ólíkar kartöflur sem
kemur úr sama aldini. Skemmtilegast
finnst mér að fá litsterkar kartöflur,
svo sem svarbláar eða dökkrauðar
sem halda lit við suðu. Svo fær
maður stundum flekkóttar eða
óvenjulegar í laginu. Það er eins og
að opna fjársjóðskistu þegar maður
er að taka upp. Til er Facebook-hópur
sem heitir ,,Kartöflurækt af fræi“, þar
er að finna myndir og upplýsingar
um þetta.“
Hvítlauksræktun sáraeinföld
„Þá hef ég ræktað hvítlauk með
þokkalegum árangri í aldarfjórðung.
Aðalvandinn er að útvega góðan
sáðlauk, annars er ræktunin
sáraeinföld. Ég hef fengið misgóða
uppskeru og það er greinilega mikill
munur á því hversu vel hin ýmsu yrki
spjara sig hér.
Meðan moldin er ekki orðin freðin
er hægt að setja niður. Einu sinni var
ég of sein að setja niður hvítlaukinn
og svo kom hlýtt veður í janúar og ég
notaði tækifærið og skellti lauknum
niður, fékk bara ágætis uppskeru.
Ég hef ekkert verið að selja
grænmetið, þetta er hobbíræktun
og við erum sjálfum okkur næg
um kartöflur og rótargrænmeti að
mestu leyti. Við gefum vinum og
vandamönnum líka gjarna með
okkur enda er uppskeran oft meiri
en við höfum not fyrir. Þetta er sem
sagt sjálfsþurftarbúskapur.
Við höfum einnig sankað að
okkur berjarunnum og eplatrjám.
Erum með marga tugi berjarunna og
eitthvað á þriðja tug eplatrjáa. Enn
bólar ekkert á eplum en berjaræktin
gengur vel.
Það er áberandi munur á því
hvernig gengur eftir því um hvaða
yrki er að ræða og meðan til dæmis
sum sólberjayrki skila nánast engu
eru önnur dekkhlaðin berjum,“ segir
Dagný.
Hún hefur haldið súr káls -
námskeið á vegum Garð-
yrkjufélagsins þar sem hún kennir
listina að gerja grænmeti.
Á vefnum hennar (www.surkal.
is) getur fólk skráð sig á námskeið
auk þess sem hægt er að sækja sér
fróðleik á Facebook-síðuna hennar
sem heitir Súrkál.
Þá er von á bók eftir hana í janúar
um súrkálsgerð sem verður gefin út
hjá Forlaginu. /smh
V
ið Apavatn eru hjónin Dagný Hermannsdóttir og Ólafur Loftsson
með lítinn landskika þar sem þau rækta útigrænmeti – sem
Dagný hefur svo notað að hluta til fyrir súrsun og súrkálsgerð. Á
undanförnum vikum hefur Dagný sent sínar fyrstu vörur á markað
undir vörumerkinu Súrkál fyrir sælkera.
Alvöru ógeril-
sneytt súrkál er
bráðhollt. Það
er lifandi fæða
og inniheldur
alla hollustuna
úr hráa
grænmetinu
Dagný Hermannsdóttir með fangið fullt af litskrúðugu grænmeti.„
Dagný og maður hennar, Ólafur Loftsson, hafa heilan hektara við Apavatn til að „leika sér með“.
Dagný hefur ræktað upp af fræi.