Bændablaðið - 30.11.2017, Qupperneq 32
Leiðir tiL að auka koLefnisbindingu á ÍsLandi | 30. NÓVEMBER 2017 32
Halldór Þorgeirsson hjá Loftslagssamningi SÞ um loftslagsþingið í Bonn:
Ísland tali fyrir landbótum á heimsvísu
Nýafstaðið loftslagsþing í Bonn
tókst vel, að mati Halldórs
Þorgeirssonar, forstöðumanns
á skrifstofu Loftlagssamnings
Sameinuðu þjóðanna. Halldór
segir að Ísland geti gegnt
mikilvægu hlutverki, ekki síst á
sviði bættra landgæða en það geti
þó haft áhrif á orðspor landsins
ef ekki verði fljótlega ráðist af
alvöru í orkuskipti í samgöngum.
„Það er mikill skriðþungi að
baki Parísarsáttmálanum,“ segir
Halldór. Þrátt fyrir að bandaríska
alríkisstjórnin vilji draga sig út úr
samstarfinu hafi verið mikill kraftur í
öðrum Bandaríkjamönnum, svo sem
ríkisstjóra Kaliforníu, borgarstjórum
bandarískra stórborga, leiðtogum
úr bandarísku atvinnulífi og
fulltrúum félagasamtaka. Það sé til
marks um vægi þingsins í Bonn að
þar komu yfir 20 þjóðarleiðtogar,
m.a. Frakklandsforseti og kanslari
Þýskalands.
Halldór segir að mikilvægur
áfangi hafi náðst í Bonn við
útfærslu samkomulagsins sem
ljúka skal að ári. Margt sé þó
óunnið enn og síðustu metrarnir
í slíkri samningagerð gjarnan
snúnastir. „Erfiðasta málið snýr
að hlutverkaskiptingu milli ríkja,
fyrst og fremst gagnvart því hversu
mikill munur verður á kröfum sem
gerðar verða til þróunarríkjanna
samanborið við iðnríkin.“
Efnahagslífið mun draga
vagninn
„Þungamiðjan í þessu mikilvæga
verkefni hefur færst frá stjórnvöldum
til atvinnulífs, félagasamtaka og
almennings. Meðvitundin er orðin
mjög mikil hjá fólki, ekki aðeins
vegna samkomulagsins heldur
hafa afleiðingar loftslagsbreytinga
verið mjög áþreifanlegar síðustu
misseri, ekki síst hjá þeim
sem eru viðkvæmastir fyrir
veðurfarsbreytingum. Þar nægir að
nefna Karíbahafsríki, flóð sem orðið
hafa í Afríku og mikla erfiðleika á
Indlandi,“ segir Halldór.
„Á endanum verður það
efnahagslífið sem dregur vagninn
í aðgerðunum. Endurnýjanleg
orka er nú í mörgum tilfellum
orðin hagkvæmasti kosturinn og
kostnaðurinn hefur hrunið,“ heldur
Halldór áfram. Fram undan sé barátta
um hversu hratt kolabrennsla skuli
hverfa úr hagkerfinu. Það hafi t.d.
sést á ágreiningi um kolabrennslu
í stjórnarmyndunarviðræðunum
í Þýskalandi. Megintíðindin frá
þinginu séu sameiginleg öllum
þjóðum. „Hér er mjög alvarlegt
vandamál á ferðinni en það eru
lausnir til og alþjóðasamfélagið er
að ná samstöðu um að leysa þetta
vandamál.“
Orkuskipti í samgöngum brýn
Í l ágko lve tn i shagke r f i
framtíðarinnar segir Halldór
að Ísland geti haft miklu að
miðla um endurheimt landgæða,
nýtingu jarðvarma og fleira. „En
Ísland er samt enn nokkuð fast í
jarðefnahagkerfinu þegar kemur
að samgöngum,“ segir hann.
Landið verði að ráðast í orkuskipti í
samgöngum svo að mikil olíunotkun
spilli ekki orðspori landsins í
loftslagssamstarfinu. Styrka forystu
stjórnvalda þurfi til svo markmiðin
náist en einnig mikinn stuðning
atvinnulífs og félagasamtaka.
„Þeir útlendingar sem sækja Ísland
heim vilja sjá land sem byggt er á
endurnýjanlegri orku, ekki innfluttri
olíu. En reynslan hefur sýnt að
Íslendingar eru mjög útsjónarsamir
þegar þeir takast á við hlutina.“
Landbætur og útrýming fátæktar
Eftir þingið í Bonn segir Halldór
að fólk virðist almennt meðvitað
um þau miklu áhrif sem hnignandi
landgæði hafi á lífsgæði stórs hluta
mannkyns. „Raunverulega er mikið
af þeirri fátækt sem við þekkjum í
dag mjög nátengt ástandi lands. Þar
af leiðandi fer saman það mikilvæga
starf að endurheimta landgæði og
útrýma fátækt.“
Halldór segir að einhugur
hafi verið um það á þinginu að
byggja þurfi upp gróður- og
jarðvegsauðlindina enda geti margar
þjóðir ekki lengur framfleytt sér á
landi sem framfleytti þeim áður.
„Þess vegna er mikil áhersla á
útrýmingu fátæktar og mjög margir
sem sjá það tengjast landnotkun þótt
ekki séu allir sem átta sig á þessum
tengslum.“
Þarna telur Halldór að Ísland
ætti að láta mjög til sín taka og
tala fyrir endurheimt landgæða
og útbreiðslu skóglendis.
Að búa sig undir afleiðingar
veðurfarsbreytinga haldist mjög í
hendur við endurheimt landgæða.
Uppbygging kolefnisforða í
jarðvegi gefi aukna frjósemi og
mun meiri möguleika á að mæta
fæðuþörf mannkyns. Vænlegast
sé að byggja upp landgæði í góðu
samstarfi við fólk sem lifir á því
sem landið gefur. „Með því er hægt
að draga úr þeim afleiðingum sem
veðurfarsbreytingar hafa. Bæði
þurrkar og flóð eru hættulegri þar
sem skógareyðing hefur átt sér
stað.“
Aukin áhersla á bindingu eftir
2030
„Langtímamarkmið Parísar-
samkomulagsins er að eigi síðar en
um miðja þessa öld náist jafnvægi
losunar og bindingar á jörðinni,“
segir Halldór. „Binding kolefnis
er hluti af grundvallarmarkmiðum
Parísarsamkomulagsins, sérstaklega
l a n g t í m a m a r k m i ð u n u m . “
Ísland hefur nú þegar haft mjög
mikil áhrif á núgildandi reglur
um bindingarbókhald, fengið
landgræðslu viðurkennda sem
hluta af aðgerðum innan Kyoto-
bókunarinnar og verið í fararbroddi
um að endurheimt votlendis verði
tekin með í spilið. „Ísland þarf
áfram að vera í þessari forystusveit
og það krefst þess að Ísland beiti sér
á alþjóðavettvangi.“
Ísland móti eigin markmið
Loks er Halldór Þorgeirsson spurður
um sameiginlegu markmiðin um
40% samdrátt losunar miðað við
1990 sem Íslendingar hafa gengist
undir með Evrópusambandinu
gegnum EES-samstarfið. Útlit er
fyrir að binding með landgræðslu,
skógrækt og endurheimt votlendis
verði aðeins að mjög litlum hluta
viðurkennd í þessu evrópska
bókhaldi fram til 2030.
Halldór tekur fram að þau hjá
Loftslagssamningi SÞ séu ekki
beinir aðilar að bókhaldi Evrópu
og geti því ekki svarað fyrir það.
Svo virðist sem Evrópusambandið
hafi viljað þrýsta á orku- og
iðnfyrirtæki að breyta um aðferðir,
ráðast í orkuskipti, í stað þess að
grípa til bindingar eingöngu. Þetta
skýri væntanlega það lága hlutfall
bindingar sem útlit er fyrir að
viðurkennt verði í kolefnisbókhaldi
Evrópu fram til 2030. „Þess má þó
vænta að meiri áhersla verði lögð á
aðgerðir í landgræðslu og skógrækt
á næsta skuldbindingartímabili
Parísarsamkomulagsins eftir 2030,“
segir Halldór.
Halldór minnir á að innra bókhald
Evrópusambandsins sé auðvitað
ekki megintilgangur landgræðslu og
skógræktar á Íslandi. Margvíslegur
annar ávinningur sé þar í spilinu.
Vissulega sé miður að þessi staða
skuli hafa komið upp gagnvart
ESB. Ástæðulaust sé þó að slá af
í landgræðslu og skógrækt vegna
ákvæða um kolefnisbókhald
Evrópuþjóða. Mikilvægt sé að
Ísland móti eigin markmið og stefnu
um kolefnisbindingu með bættum
landgæðum og geri það á eigin
forsendum.
„Svo er líka mikilvægt að
undirstrika að allt er breytingum
háð. Ísland getur með góðu samstarfi
við þær þjóðir Evrópusambandsins
sem vilja að meira tillit verði
tekið til bindingar hugsanlega haft
áhrif á umræðuna,“ segir Halldór
Þorgeirsson í Bonn.
/Pétur Halldórsson
Sjálfboðaliðar gróðursetja birki í Þjórsárdal. Ísland gæti látið til sín taka á
alþjóðavettvangi og talað fyrir endurheimt landgæða og útbreiðslu skóg
lendis til þess að binda kolefni. Mynd / Hreinn Óskarsson
Halldór Þorgeirsson, forstöðumaður
á skrifstofu Loftlagssamnings Sam
einuðu þjóðanna.
Landssamtök sauðfjárbænda
kynntu á dögunum verkefni sem
miðar að því að kolefnisjafna
íslenska sauðfjárrækt árið
2022. Verkefnið hefur verið í
undirbúningi frá árinu 2015.
Samtökin hafa notið liðsinnis
sérfræðinga hjá Umhverfisráðgjöf
Íslands sem kortlögðu kol-
efnisfótsporið, gerðu reiknivél sem
einstakir bændur geta notað og unnu
ítarlega skýrslu. Á þessum grunni
var svo unnin aðgerðaáætlun sem
vonast er til að hægt verði að hrinda
í framkvæmd strax eftir áramót.
Oddný Steinunn Valsdóttir,
formaður Landssamtaka sauð-
fjárbænda, segir að meðvitaðir
neytendur geri kröfur til
framleiðsluhátta þeirrar vöru
sem þeir kaupa. „Íslenska lambið
stendur mjög vel að vígi hvað
varðar lyfjanotkun, dýravelferð,
ábyrga umgengni við náttúruna og
umhverfismál í víðum skilningi. En
við viljum auðvitað gera enn betur
og ætlum að verða fyrsta kjötgreinin
á Íslandi sem getur sagt að okkar
framleiðsluvara sé kolefnishlutlaus.“
Bændur vilja axla ábyrgð
Sérfræðingar Umhverfisráðgjafar
Íslands telja að heildarlosunin frá
íslenskri sauðfjárrækt sé 291 þúsund
tonn kolefnisígilda á ári. Þetta eru
28,6 kíló kolefnisígilda á hvert
framleitt kíló lambakjöts. „Sem er
hvorki mikið né lítið,“ segir Oddný
Steina.
„Við höfum upplýsingar um
kolefnisfótspor í öðrum löndum sem
er allt frá því að vera rúm 20 kíló og
upp í tæp 60 kíló á hvert framleitt kíló
af lambakjöti.“ Skýrsluhöfundarnir
telja að raunhæft sé að ná markmiðinu
um kolefnisjöfnun á nokkrum árum
með blöndu aðgerða.
Annars vegar að draga úr
losun með minni notkun á áburði,
minni eldsneytisnotkun og bættri
meðferð húsdýraáburðar og hins
vegar með jöfnunaraðgerðum
eins og uppgræðslu, skógrækt og
endurheimt votlendis.
„Sauðfjárbændur vilja sýna
frumkvæði í þessum málum og
ganga á undan með góðu fordæmi.
Við berum ábyrgð á helmingi losunar
frá landbúnaði á Íslandi sem eru um
7% af heildarlosun landsmanna.
Við teljum þetta vera gott fyrir
markaðssetningu á vörunum okkar
en ekki síður viljum við axla okkar
samfélagslegu ábyrgð í verki.“
Fagmennska í fyrirrúmi
Hluti af þessu öllu er einnig að
bæta búrekstur. „Reiknilíkan Um-
hverfisráðgjafar Íslands mun hjálpa
bænd um að halda vel utan um ýmsa
um hverfisþætti í búrekstrinum og
verður tengt við skýrsluhaldsker-
fið þannig að upplýsingarnar verða
mjög góðar. Hver og einn getur þá
reiknað út sína losun og er kominn
með verkfæri í hendurnar til að sjá
hverju kolefnisbinding skilar, ekki
bara fyrir um hverfi, heldur líka í
rekstri búsins.“
Landssamtök sauðfjárbænda
áætla að kolefnisjöfnun greinarinnar
taki fimm ár að því gefnu að
samvinna náist við þá aðila sem
þarf að vinna með og að stjórnvöld
felli verkefnið inn í loftslags- og
umhverfisstefnu Íslands. „Ég tel
að sauðfjárbændur séu almennt
mjög meðvitaðir um umhverfið og
náttúruna,“ segir Oddný Steina.
Hvetja aðra til að fylgja
fordæminu
„Þeir fjármunir sem í þetta fara eru
lagðir inn á bók komandi kynslóða
og ávaxtast þar. Verkefni sem þetta
myndi treysta allar stoðir sjálfbærni
til lengri tíma,“ segir Oddný Steina.
Samkvæmt stefnumótuninni
eiga allar afurðir frá íslenskum
sauðfjárbændum að verða
vottaðar sem kolefnishlutlausar og
Landssamtök sauðfjárbænda eru
þegar farin að þrýsta á afurðastöðvar
að fylgja frumkvæði þeirra og vinna
skipulega að kolefnisjöfnun.
„Þetta snýst um umhverfi,
efnahag og samfélag. Við verðum
að byggja afkomu okkar með
skynsamlegri og sjálfbærri nýtingu
á gæðum náttúrunnar. Við höfum
tækifæri til að nýta þekkingu og
reynslu sauðfjárbænda við að leysa
þetta stóra samfélagslega verkefni
sem kolefnisjöfnun Íslands er.
Tækifærið er núna.“ /VH
Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, um kolefnisbindingu:
Tækifærið er núna
Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, áætlar að
kolefnisjöfnun sauðfjárræktarinnar taki fimm ár að því gefnu að samvinna
náist við þá aðila sem þarf að vinna með og að stjórnvöld felli verkefnið inn
í loftslags- og umhverfisstefnu Íslands. Mynd / HKr.