Bændablaðið - 30.11.2017, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Um þjóðfræði mannslíkamans:
Þegar dannebrogsmaðurinn mælir Guð
Út er komin hjá Sæmundi bókin
Um þjóðfræði mannslíkamans
eftir Þórð Tómasson í Skógum.
Höfundur fjallar hér um þá siði,
þjóðtrú, orðfæri og hugmyndir
sem tengdust höfði mannsins og
höndum hans. Um er að ræða
einstakt verk og afar frumlega
nálgun.
Blaðið grípur hér aðeins ofan í bók
Þórðar þar sem segir frá hreppstjóra
sem mældi Guð í spönnum og
menn sem læknuðu tannpínu með
meyjarpissi og hlandsteini.
Tannpína
„Það er síst úr vegi að doka við
hjá tannpínu, svo marga sem hún
hefur hrjáð. „Hvað er líf manna?
– Háski, böl – höfuðverkur og
iðrakvöl, – tannpína, tóbaksleysi,“
segir Kristján Jónsson Fjallaskáld
í alþekktri stöku. Ófáir fyrri tíma
menn héldu tönnum sínum til hárrar
elli og ber víst að þakka harðæti
sem var mikill þáttur í matbjörg og
sætinda síst völ. Tannskemmdir og
tannpína mæddu þó margan, enda
tannhirðu ábótavant.
Tanndrætti varð
víðast illa við komið,
að jafnaði langt
til læknis að leita.
Deyfing við tanndrátt
var framan af óþekkt.
Ég minnist sérstæðrar
gamallar konu frá æsku
minni, Ingibjargar
Jónsdóttur á Mið-Skála
undir Eyjafjöllum.
Helgi Jónasson, læknir
á Stórólfshvoli, dró úr
henni tannir án deyfingar
um 1925. „Ég borga þér
ekkert fyrir þessar helvítis
kvalir,“ sagði Ingibjörg að
athöfn lokinni.
Dæmi voru þess
að tanndráttur teldist
hrossalækning. Eiríkur
Ólafsson frá Núpi undir
Eyjafjöllum kom um 1920 til
snillingsins Jóns Jónssonar,
bónda á Seljavöllum,
gleðimanns og þjóðhaga,
og sat við aflinn er Eirík bar
að garði. Eiríkur kvaðst vera
kvalinn af tannverk frá einni
einstæðri tönn. „Það er auðvelt
að ráða bót á því,“ sagði Jón, tók
seglbandsspotta, batt tryggilega
um veiku tönnina og lausa endann
með sama hætti í steðjaaugað. Hann
tók síðan glóandi járn úr afli og bar
að Eiríki sem við það hrökk undan
og tönnin hætti að ónáða Eirík.
Viðleitni til lækningar á tannpínu
konu frá byrjun 18. aldar er einstæð
og baklandið
aftan úr grárri forneskju.
Þorbjörg Jónsdóttir, húsfreyja í
Tjaldanesi í Saurbæ, var árið 1708
illa haldin af mjög kvalafullu tanna-
eða kjálkameini. Maður hennar,
Pétur Bjarnason, lögréttumaður (d.
1718), með böggum hildar, greip
til örþrifaráðs. Kjálkabein látins
manns átti að ráða bót
á meini af þessum toga.
Pétur kvaddi til tvo
menn að grafa upp lík
Ingveldar fóstru hans í
Staðarhólskirkjugarði
og kjálkabein
hennar var lagt að
kjálka Þorbjargar.
Engin saga fer
af lækningunni
en atburðurinn
komst í hámæli og
Oddur Sigurðsson
l ö g m a ð u r
heimsótti Pétur
Bjarnason sem sakamann
árið 1709. Hann tók alla ábyrgð
á verki, leysti sig undan sök með
atfylgi áhrifamanna og 80 ríkisdala
greiðslu til Hallbjarnareyrar
hospitals.
Enginn hefur lýst lækningu á
tannpínu á áhrifameiri hátt en sr.
Árni Þórarinsson gerir í ævisögu
sinni, skráðri af Þórbergi Þórðarsyni.
Alþýðulæknir á Snæfellsnesi er
kvaddur til hjálpar stúlku sárkvalinni
af tannpínu. Læknirinn gerir smyrsl úr
meyjar pissu og hlandsteini og rjóðrar
á tannhold og tannir stúlkunnar. Með
illu skal illt út reka, segir gamall
málsháttur. Heimilisfólk var rekið
í fjár hús úti á túni sökum kvalaópa
sem fylgdu því er lækning var að
hrífa. Sr. Árna segist svo frá: „Þegar
smurningunni er lokið, tekur stúlkan
að hljóða með þvílíkum fádæmum
að fólkið í fjárhúsinu grípur báðum
höndum sem fastast fyrir eyrun til að
deyfa þessa angistarkveinan og er þó
samt nóg boðið. En eftir sjö mínútur
dettur allt skyndilega í dúnalogn.“
Lækningin leiddi til albata en allar
tennur voru lausar um skamman tíma
eftir hrinuna.
Mælingar
Maðurinn hefur frá örófi alda miðað
við sjálfan sig í mælingum. Allir
kannast við faðm, skref og fet. Alin
er að upphafi meðallengd frá olnboga
fram á vísifingur. Hún skiptist í 24
tommur og þar hefur viðmiðun
verið þumlungur, sem er lengd
þumalfingurs frá fingurgómi upp
í lið. Að þumlungast áfram merkir
hægfara göngu. Prjónakonur notuðu
mjög mælingar með spönn og mælu.
Stuttspönn fæst þegar spenntir eru út
þumalfingur og vísifingur, langspönn
þegar spenntir eru út þumalfingur og
langatöng. Hún samsvarar um einum
þriðja af alin. Mæla er frá gómi
löngutangar upp á hnúa. Spönn lifir í
orðtakinu Ég kemst (eða komst) ekki
spönn frá rassi en svo er til orða tekið
ef maður er bundinn af einhverju og
kemst ekki ferða sinna.
Afi sagnakonu minnar, Arnlaugar
Tómasdóttur, gáfaði merkisbóndinn
Einar Sighvatsson á Ysta-Skála
(1792–1878), braut heilann um
margt og fór þar í mörgu sínar eigin
götur. Sóknarprestur hans, sr. Björn
Þorvaldsson í Holti (d. 1874), lýsti
honum á þessa leið: „Þegar Einar
dannebrogsmaður og hreppstjóri á
Skála er að mæla guð, þá nær hann
með faðminn út fyrir báða enda á
guði og hann mælir hann í spönnum.“
Arnlaug var mikil prjónakona
og léttsvæf. Hún notaði mjög
handarmælingar í spönnum og þó
eink um í mælum. Oft var hún búin
að prjóna nokkr ar mælur er aðrir
brugðu blundi.
Higsti
Hiksti er eitt af því óþægilega
sem manni er áskapað. Ráð til
að stöðva higsta er að gera þeim
er hann hrjáir snögglega verulega
bylt við. Við börn var sagt: Þú
hefur sopið á lyfjadallinum eða
þú hefur stolið rjóma. Gamalla
manna mál var að higsta leiddi af
því að einhver væri að tala illa um
mann. Þá var ráðið að reyna að
geta upp á nafni hans. Tækist það
stöðvaðist higstinn. Svipuð trú er
vel þekkt á Norður löndum. Elstu
íslenska heimild sem ég þekki
er að finna í Biskupaannálum sr.
Jóns Egilssonar. Þar segir frá því
er Jón Arason biskup bannfærði
Daða Guðmundsson í Snóksdal í
Hóladómkirkju árið 1549. Sr. Jón
segir að daginn þann hafi Daði legið
uppi á palli í Snóksdal. „Þá kom
svo harður higsti að honum að hann
undraðist, og það var úr hófi, svo
að hann hugsaði að öndin mundi
slíta af sér. Daði mælti þá: „Nú er
eg þar að orði sem eg er ekki að
borði.“ Higstar við matborð voru
ákveðinnar merkingar og fóru eftir
aldri þeirra er sátu að borði. Um þetta
var fastur formáli: Yngsti mat meiri,
elsti menn fleiri, miðlungur mann
frá borði. Higsti hjá þeim yngsta
boðaði björg í bú, hjá þeim elsta að
von væri á nýjum heimilismanni, hjá
miðlungi brottför heimilismanns,
jafnvel feigð. Af higstum er dregið
orðatiltækið að higsta á einhverju
en það gerist þegar maður er í vafa
um úrræði.
Ég held mig við framburð og
skrifa higsti eins og Jón Sigurðsson
gerir í Safni til sögu Íslands I. Sr.
Jón Egilsson hefur sennilega skrifað
higsti.
Nútímamálfræðingar og fræði-
menn skrifa hiksti og bendla orðið
við hik.“
MENNING&LISTIR
Þórður Tómasson í Skógum, höfundur bókarinnar Um þjóðfræði mannslíkamans.
Um árabil hefur Heyrnartækni veitt þjónustu víðs vegar
um landið. Við bjóðum upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja í ólíkum verðflokkum. Kannaðu hvenær Árni
Hafstað heyrnarfræðingur verður næst í nágrenni við þig.
Fáðu heyrnartæki til prufu
Akranes | Akureyri | Borgarnes| Egilsstaðir| Ísafjörður| Reykjanesbær | Selfoss
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is