Bændablaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Þrátt fyrir að avókadó, eða
lárperur, eigi sér árþúsunda
ræktunarsögu í Mið-Ameríku
var aldinið lítt þekkt í Evrópu
þar til eftir heimsstyrjöldina
síðari. Í dag njóta lárperur
mikilla vinsælda og eftirspurn
eftir þeim vex ár frá ári.
Vinsældir lárpera hafa aukist
nánast á hverju byggðu bóli í
heiminum og hefur aukningin
í neyslu þeirra verið um 3% á
ári undanfarna áratugi. Á sama
tíma hefur verð á þeim hækkað
talsvert þar sem aukning í
framleiðslu hefur ekki verið í
samræmi við eftirspurnina. Mest
er neysluaukningin í Bandaríkjum
Norður-Ameríku og Evrópu auk
þess sem neysla á avókadó hefur
aukist hratt í Kína.
Tölfræðideild Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, FAOSTAD, áætlar að
heimsframleiðsla á avókadó árið
2015 hafi verið rúm fimm milljón
tonn og hefur hún aukist jafnt og
þétt frá síðustu aldamótum þegar
hún var 2,7 milljón tonn.
Mexíkó er langstærsti fram-
leiðandi avókadó í heiminum og
framleiddi árið 2015 ríflega 1,5
milljón tonn, á tæplega 170.000
hekturum, sem er rúmlega 30%
heimsframleiðslunnar. Dóminíska
lýðveldið er í öðru sæti hvað
framleiðslu varðar með um 440
þúsund tonn og Perú í því þriðja
með rúm 350 þúsund tonn. Þar á
eftir koma Indónesía, Kólumbía,
Kenía, Bandaríki Norður-Ameríku,
Síle og Brasilía, með framleiðslu
frá rúmlega 300 þúsund og niður í
160 þúsund tonn á ári.
Mexíkó er stærsti útflytjandi
lárpera í heiminum og flytur
út um milljón tonn á ári og eru
Bandaríki Norður-Ameríku stærsti
kaupandinn. Aðrir stórútflytjendur
eru Síle, Indónesía, Bandaríkin,
Dóminíska lýðveldið, Kólumbía,
Brasilía og Perú. Holland er einnig
stór innflytjandi lárpera en um
80% af innflutningnum er fluttur
út aftur.
Innflutningur til Íslands á
avókadó árið 2016 var rúm 883
tonn og fyrstu níu mánuði 2017
var hann 829 tonn. Árið 2016 var
mest flutt inn frá Suður-Afríku,
rúm 245 tonn, Síle, rúm 198 tonn
og Ísrael, rúm 71 tonn. Í kjölfarið
komu svo lönd eins og Mexíkó,
Kenía og Perú með rúm 41 og niður
í tæp 13 þúsund tonn. Fyrstu níu
mánuði 2017 var innflutningurinn
mestur frá Suður-Afríku, tæp 190
tonn og Perú og Síle, tæp 177 tonn
frá hvoru landi. Þar á eftir hefur
verið flutt inn mest af avókadó frá
Spáni, Ísrael og Bandaríkjunum,
frá tæpum 100 niður í tæp 24 tonn.
Svo virðist sem avókadó-neysla
á Grænlandi sé að aukast eins og
annars staðar í heiminum. Árið
2016 voru flutt út frá Íslandi 144
kíló af lárperum til Grænlands
en fyrstu níu mánuði 2017 var
útflutningurinn 189 kíló.
Einstök blómgun
Lárperutré, Persea americana, sem
eru af lárviðartætt eru upprunnin í
Mið-Ameríku og geta náð um 20
metra hæð en eru yfirleitt lægri
í ræktun. Trén eru með trefjarót,
börkurinn gráleitur og hrjúfur.
Blöð trjánna eru stakstæð, 10 til
25 sentímetra löng, dökkgræn og
gljáandi, egglaga og oddmjó, eilítið
bylgjótt og stinn viðkomu.
Blómin hvít, lítil og mörg
saman í hnapp og frjóvgast með
skordýrum. Blómin bera bæði
frævur og fræfla sem þroskast ekki
á sama tíma þrátt fyrir að plantan
sé að hluta til sjálffrjóvgandi. Þegar
blómið opnar sig í fyrsta sinn ber
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS