Bændablaðið - 30.11.2017, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Dagana 4.–5. september sl. var
haldinn ársfundur Evrópuhóps
lífrænna landbúnaðarhreyfinga
(IFOAM EU Group) og í framhaldi
af honum, 5.–8.september, 11.
ráðstefnan um lífrænan búskap
í Evrópu, hvort tveggja í Tallin í
Eistlandi.
Fulltrúi frá Íslandi var sá sem
þetta ritar en hann hefur haft umsjón
með málefnum Íslandsdeildar
Evrópuhópsins síðan 2004.
Fjölþætt starfsemi
Ársfundinn sóttu fulltrúar frá flestum
aðildarþjóðum ESB auk fulltrúa frá
Íslandi, Noregi og Sviss en öll þessi
lönd fylgja reglum ESB um lífrænan
landbúnað sem eiga að tryggja
samræmi í vottun hjá bændum og
vinnslustöðvum. Fundinn í Tallin
sátu 33, þar af nokkrir starfsmenn
skrifstofu hópsins í Brussel en
framkvæmdastjóri hennar er Eduardo
Cuocu frá Ítalíu. Forseti hópsins er
Christpher Stopes frá Bretlandi.
Farið var yfir helstu verkefnin
sem hópurinn sinnir í þágu lífræns
landbúnaðar, mjög fjölþætt að vanda
og snerta bæði tæknileg mál og
stefnumótun.
Lögð var fram samþykkt um
stefnumótun í aðgengilegum
bæklingi undir heitinu Organic Vision
2030 en þar er lýst því markmiði
að 50% allrar búvöruframleiðslu
í Evrópu verði lífrænt vottuð eftir
13 ár (sjá nánar á vefnum www.
ifoam-eu.org).Þau lönd sem lengst
eru komin eru með u.þ.b. 20% en
enn eru nokkur með aðeins um 1%
eins og Ísland.
Vaxandi markaður
Þegar á heildina er litið svarar
framleiðsla lífrænna afurða í Evrópu
ekki vaxandi eftirspurn. Þetta er
neytendadrifinn markaður og það
er ljóst, og hefur reyndar verið um
margra ára skeið, að neytendur
kunna vel að meta kosti lífrænna
búskaparhátta og gæði afurðanna.
Ísland er gott dæmi um þessa stöðu,
þarna er vissulega vaxtarbroddur
fyrir íslenska bændur í ýmsum
búgreinum.
Í nýrri breskri rannsókn kom
fram að í grænmeti og ávöxtum í
máltíðum skólabarna fundust leifar
123 plöntuvarnarefna, eiturefna sem
geta skaðað þroska og heilsu. Þar sem
slík efni eru ekki leyfð við lífræna
ræktun er talið að unnt sé að auka
matvælaöryggi verulega með neyslu
lífrænt vottaðra afurða. Þess sjást
reyndar víða merki, t.d. í eldhúsum
og mötuneytum skóla, og hafa Danir
verið meðal frumkvöðlanna. Slíka
þróun styður Evrópuhópurinn eftir
megni.
Jákvætt framlag til loftslagsmála
Þar sem nú eru ofarlega á baugi
hvers konar aðgerðir til að draga úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá
landbúnaði bendi ég hér á vandaða
skýrslu um hin jákvæðu áhrif sem
lífrænn landbúnaður getur haft og
kynnt var á fundinum. Hún kom út á
liðnu ári á vegum Evrópuhópsins o.fl.
samstarfsaðila og ber heitið Organic
Farming, Climate Mitigation and
Beyond. Hana er hægt að nálgast á
vefnum www.ifoam-eu.org.
Ný Evrópureglugerð væntanleg
Á meðal helstu umræðuefna á
ársfundinum og síðan á ráðstefnunni
í kjölfarið var hin nýja reglugerð
um lífræna landbúnaðarframleiðslu
en drög að henni voru staðfest í
Ráðherranefnd ESB 28. júní sl.
með 16 atkvæðum gegn 11 er
annaðhvort voru á móti eða sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna. Nýjustu
fregnir herma að nú séu lögfræðingar
hjá ESB að rýna textann. Reiknað
er með að ekki verði farið að vinna
eftir reglugerðinni að fullu fyrr
en 2020, eftir er að semja margar
viðaukagerðir og textinn þarfnast
mikilla lagfæringa að dómi
Evrópuhópsins og lögfræðings
hans, Hanspeter Schmidt. Hópurinn
hefur alltaf verið óánægður með
vinnubrögð ESB við endurskoðunina
sem hófst með samningu þessarar
nýju reglugerðar í ársbyrjun 2012,
án samráðs við hópinn.
Hvað Ísland varðar er þessi
nýja reglugerð um lífrænan
landbúnað ekkert fagnaðarefni
miðað við þann texta sem fyrir
liggur. Meiri áhersla er lögð á
markaðs- og viðskiptasjónarmið
en framleiðslutengda þætti en það
er einmitt á þeim sviðum sem þarf
að vinna markvisst til að auka
lífræna framleiðslu í einstökum
löndum og álfunni í heild. Þá er
vaxandi innflutningur andstæður
alþjóðlegum markmiðum um
aðgerðir til að draga úr útblæstri
gróðurhúsalofttegunda í samræmi
við Parísarsamkomulagið 2016. Ný
reglugerð eykur ekki möguleika á
svæðabreytileika, svo sem með tilliti
til veðurfars, og kemur það sér illa
fyrir jaðarsvæði á borð við Ísland.
Andstaða gegn erfðabreyttum
lífverum
Um margt fleira var fjallað
á ársfundinum, svo sem um
óbreytta andstöðu gegn notkun
erfðabreyttra lífvera (GMOs)
við matvælaframleiðslu. Þá var
vikið nokkuð að endurskoðun á
landbúnaðarstefnu ESB (CAP)
þar sem talið er mjög æskilegt að
gera lífrænum landbúnaði í álfunni
hærra undir höfði. Auk þess að
virða óskir neytenda um holl og góð
matvæli verði lögð rík áhersla á að
tryggja bændum viðunandi tekjur
og starfsöryggi þannig að styrkari
stoðum verði rennt undir bæði fæðu-
og matvælaöryggi hverrar þjóðar í
Evrópu.
Efla þarf sjálfbærni –
athyglisverð ráðstefna
Ráðstefnan sem haldin var í kjölfar
ársfundar Evrópuhópsins var vel
skipulögð og efnismikil með fjölda
þekktra fyrirlesara og þátttakenda
í pallborðsumræðum. Voru þeir
bæði úr lífræna geiranum og utan
hans. Áhersla var lögð á breytingar
til að efla sjálfbærni í landbúnaði
og vinnslu matvæla. Var mikill
samhljómur í þeim 200 þátttakenda
hópi sem þarna var saman kominn.
Upplýsingar um ráðstefnuna og efni
hennar liggja fyrir á vefnum www.
ifoam-eu.org.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
Höfundur er sjálfstætt starfandi
búvísindamaður og hefur
verið fulltrúi Íslandsdeildar
Evrópuhóps lífrænna
landbúnaðarhreyfinga(IFOAM
EU Group) síðan 2004
Á FAGLEGUM NÓTUM
Frá Evrópuhópsfundi og ráðstefnu lífrænna landbúnaðarhreyfinga:
Auka þarf framleiðslu lífrænna landbúnaðarafurða
í samræmi við óskir neytenda
Gamli bærinn í Tallin, höfuðborg Eistlands. Mynd / HKr.
Ær með lömb á lífrænt ræktuðu búi í Eistlandi. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson.
Eistnesk Holstein-kýrin Missy er talin mikill kostagripur.
Hotel Europa í Tallin þar sem ráðstefnugestir gistu.
Á lífrænum grænmetisakri.
Bændablaðið
Jólablaðið kemur út
14. desember