Bændablaðið - 30.11.2017, Qupperneq 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Aðalfundur Eigenda- og ræktendafélags landnámshænsna (ERL):
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
gerður að heiðursfélaga
Aðalfundur Eigenda- og
ræktendafélags landnámshænsna
(ERL) fór fram 12. nóvember
síðastliðinn í Félagsheimili
Ásatrúarfélagsins, Síðumúla
15 í Reykjavík. Fundurinn var
auglýstur þann 5. nóvember en
fresta þurfti fundi um viku vegna
veðurs.
Á fundinum fóru fram hefðbundin
aðalfundarstörf. Skýrsla stjórnar fyrir
starfsárið 2017 var lesinn, reikningar
voru samþykktir, kosningar fóru
fram og önnur mál voru rædd. Stjórn
félagsins skipa: Hugi Ármannsson
formaður, Valgerður Auðunsdóttir
gjaldkeri og Magnús Ingimarsson
ritari. Í varastjórn sitja Gréta
Björg Erlendsdóttir og Ingi Vignir
Gunnlaugsson.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson var
gerður að heiðursfélaga í ERL. Hann
hefur átt mikið og gott samstarf við
félagsmenn og stjórn ERL undanfarin
ár og hefur sýnt félaginu og starfi
þess einstakan áhuga og velvild.
Á fundinum var margt rætt, má
þar nefna:
Rætt um námskeiðahald.
Félagið ásamt Endurmenntun
LbhÍ skipulögðu námskeið um
landnámshænuna og hænsnahald sem
féll niður því lágmarksþátttaka náðist
ekki. Stjórn var falið að endurhugsa
fyrirkomulag námskeiðisins og
leggja drög að annarri tilraun.
Á heimasíðu félagsins www.
haena.is hefur verið hægt að senda
stjórn póst eða sækja um vottun á
ræktunarstofni í gegnum þar til gerð
skráningarform. Það hefur þó komið
í ljós að þær tilkynningar sem þarna
hafa verið sendar um nokkurt skeið
hafa ekki borist stjórninni. Stjórn
ERL hvetur því alla sem notað
hafa þetta samskiptaform að ítreka
umsóknir sínar með því að hringja
í stjórnarmeðlimi eða senda póst a
m.ingimars@gmail.com.
Vottun landnámshænsna á
ræktunarbúum kom einnig til tals.
Þetta er langtímaverkefni sem er
stór liður í verndun stofnsins fyrir
blöndun við aðra hænsnastofna.
Félagið hefur boðið félagsmönnum
sínum gjaldfrjálsa úttekt í samræmi
við útlitsstaðal ERL. Þó nokkrir
bíða heimsóknar og var stjórn
falið að skipuleggja 2–4 víðtækar
ferðir vegna vottunar á næsta ári
með skipulögðum hætti. Nú þegar
hafa 29 ræktunarbú hlotið vottun af
hálfu félagsins og halda fugla sem
standast útlit og atferliseinkenni
landnámshænunnar. Sjá má lista
yfir þessa ræktendur í 1. tölublaði
Landnámshænunnar 2017.
MATVÆLASÝNING
Sýningin verður einstaklega fjölbreytt og munu fjölmörg fyrirtæki kynna
og leggja áherslu á hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu.
TÆKJASÝNING
Þá verður stórsýning á tækjum og tólum til landbúnaðar og hvers
kyns rekstrarvörum og öðrum vörum fyrir íslenskan landbúnað.
ÖFLUG DAGSKRÁ
Unnið er að mótun áhugaverðra fyrirlestra og uppákoma er verða
kynnt er nær dregur.
Hér er í uppsiglingu öflug landbúnaðarsýning sem hentar öllum þeim sem selja vörur og þjónustu til landbúnaðarins.
Hafið samband við Ólaf, framkvæmdastjóra olafur@ritsyn.is, 587 7826 eða Ingu, sölufulltrúa inga@athygli.is 898 8022.
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR 2018
Stórsýning í Laugardalshöll 12.-14. október
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
2018
STÓR-
SÝNING
foreldrar að greiða um 6.250 íkr fyrir
sömu dósina.
Hráefniskostnaðurinn sjálfur er
því ekki stórkostlegur þegar allt
kemur til alls og mætti því vel hugsa
sér að hér væri tækifæri fyrir íslenskt
mjólkurduft einnig.
Milljarða samningur
Vegna einstaks árangurs hefur Mille
Foods vakið mikla athygli og sér í lagi
í Kína. Kínverskir fjárfestar leituðu
því til forsvarsmanna Mille Foods um
aðkomu að fyrirtækinu með enn meiri
uppbyggingu í huga og úr varð að
Kínverjarnir munu í ár leggja Mille
Foods til 8 milljarða íslenskra króna
til frekari uppbyggingar. Fjármagnið
verður notað til þess að byggja upp
enn frekari framleiðslu og er yfirlýst
stefna fyrirtækisins að verða meðal
þeirra stærstu á þessum markaði á
komandi árum. Þá hefur nú þegar
verið hafinn útflutningur til fleiri
landa en Kína.
Kaupa allt af Arla
Í dag sér Arla um allt fyrir Mille
Foods, þ.e. um allt hráefni og sér
meira að segja bæði um að blanda
og pakka í dósir Mille Foods. Nú er
hins vegar verið að koma upp nýrri
verksmiðju í Hundested á Sjálandi í
Danmörku og mun þá Mille Foods sjá
um alla framleiðsluna sjálft.
Reyndar stendur enn til að kaupa
mjólkurduft frá Arla til að byrja
með, en á næstu árum verður einnig
komið upp þurrturnum fyrir mjólk og
þá getur Mille Foods einnig séð um
þurrkunina sjálfa.
200 milljón lítrar!
Hin nýja verksmiðja Mille Foods
í Hundested er með umtalsverða
framleiðslugetu og í dag er hægt
að pakka þar 5 þúsund tonnum af
dufti og ef verksmiðjan er keyrð
á fullu allan sólarhringinn getur
hún framleitt 10 þúsund tonn á ári.
Markmiðið er þó enn meira og gera
áætlanir fyrirtækisins ráð fyrir að
innan fimm ára geti árleg framleiðsla
verið komin í 20 þúsund tonn.
Til þeirrar framleiðslu þarf í
kringum 200 milljónir lítra af mjólk
frá dönskum kúabúum. Það magn er
reyndar ekki nema 3,7% af dönsku
mjólkurframleiðslunni en ef það
magn er sett í samhengi við íslenska
mjólkurframleiðslu þá er það meira
en öll árleg framleiðsla hér á landi.
Svo sannarlega undraverður árangur
á einungis örfáum árum sem þetta
fyrirtæki virðist vera að ná.
Byggt á grein í Landbrugsavisen
12. október 2017 eftir Rasmus
Willesen.
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Moohko er eitt dýrasta merkið á kínverska markaðinum.
Almanak
Háskóla Íslands 2018
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N
haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
Almanak (ásamt Árbók)
Þjóðvinafélagsins 2018
ALMANAKHins íslenska
Árbók Íslands
2018
2016
144. árgangur
ALMANAK ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS 2018 - ÁRBÓK
2016
Fást í helstu bókaverslunum um land allt
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson.
Hænur á vappi í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi. Mynd / HKr.