Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 201818
Þróun íslenska
hestsins í 100 ár
Fróðlegur 5 metra langur refill
prýddi tjald Horses of Iceland
hjá félagsheimili Fáks í Víðidal
á Landsmóti hestamanna sem
fór fram í síðasta mánuði. Um
var að ræða sýningu Söguseturs
íslenska hestsins um stöðu
hestamennsku og hrossaræktar
á fullveldistímanum.
Sýningunni er ætlað að varpa
fram þróun og sögu íslenska
hestsins í samhengi við aldarafmæli
sjálfstæðis og fullveldis Íslands.
Hún er uppfull af fróðleik um
íslenska hestinn, notkun hans og
þróun á 100 árum, fjölda, útbreiðslu
og framfarir.
„Með því að skoða sýninguna
fær áhorfandinn beint í æð
framvindu hrossaræktarinnar á
fullveldisöldinni, lýsandi tölfræði,
staðreyndir um helstu atburði og
flæði kynbótastarfsins, með því
að sjá hvaða gripir hafa markað
sporin. Þá er hægt að virða
fyrir sér myndasafn þar sem
fjölþætt hlutverk hestsins koma
fram, áberandi menn og hestar
og afgerandi augnablik,“ segir
Kristinn Hugason, forstöðumaður
Sögusetursins.
Sýningin var gerð með samstarfi
Sögusetursins og RML en styrkt af
100 ára fullveldi Íslands, en sýningin
er enn fremur hluti af dagskrá
hátíðar um fullveldisafmælið.
Heildarhönnun refilsins var í
höndum Ragnar Arnljótssonar
og Maríu Margeirsdóttur hjá
hönnunarstofunni Hnotskógi.
Í haust verður sýningunni
fenginn varanlegur staður og
gerður aðgengilegur á vefsíðunni
sogusetur.is /ghp
Sina Scholz frá Þýskalandi og stóðhesturinn Nói fóru á kostum:
Staðráðna stúlkan
sem fór alla leið
Vaskleg framganga þeirra Sinu
Scholz og Nóa frá Saurbæ á
Landsmóti hestamanna vakti
nokkra eftirtekt. Þau eru einu
keppendur mótsins sem mættu til
leiks í tölti og A-flokki gæðinga,
þar sem þau enduðu í 6. sæti
flokksins eftir glæsilegar sýningar
sem einkenndust að næmu samspili
manns og hests.
Sina Scholz frá Þýskalandi
er útskrifaður reiðkennari frá
Háskólanum á Hólum. Hún kom til
Íslands eftir stúdentspróf því hún vildi
fá að vinna með íslenskum hestum og
kynnast landinu. Nokkurra mánaða
dvöl hefur nú umbreyst í ellefu ára
búsetu. Hún býr nú og starfar við
tamningar á Miðsitju í Skagafirði.
Frá sumardvöl að háskólanámi
„Ég var hestasjúk sem barn en ég
hafði engin tengsl við þá, engin í
fjölskyldunni hafði áhuga á þeim.
Ég var hins vegar svo heppin að eini
reiðskólinn nálægt heimabænum
mínum var eingöngu með íslenska
hesta. Ég byrjaði því strax, 6 ára,
að fara á bak íslenskum hestum,
móður minni til mikils léttis,
því þeir eru svo litlir miðað við
mörg önnur hestakyn,“ segir hún
hlæjandi. Sina segist hafa stundað
reiðskólann stíft en fyrsta hestinn
fékk hún svo 14 ára gömul. Hún
var þá þegar staðráðin að koma til
Íslands til að fá meiri reynslu af
reiðmennsku.
„Ég kom með vinkonu minni
hingað og ætlaði að vera í nokkra
mánuði. Við vorum á yndislegum
stað, Kirkjubæ á Rangárvöllum,
og Eva Dyröy og Guðmundur
Björgvinsson voru ánægð með
hvernig við nálguðumst og þjálfuðum
hestana. Þau hvöttu mig síðan til
að sækja um á Hólum. Mér fannst
ótrúlega spennandi að geta menntað
mig í hestamennsku og var þarna
strax orðin ástfangin af hugmyndinni
um að geta unnið við hesta.“
Kenna hvort öðru
Sina sótti því um Háskólann á
Hólum, fékk inngöngu og stóð sig
með miklum sóma í náminu, hlaut
m.a. reiðmennskuverðlaun FT og
Morgunblaðsskeifuna sem veitt er
fyrir besta samanlagðan árangur í
reiðmennsku.
Eftir að Sina útskrifaðist sem
reiðkennari árið 2013 hóf hún störf
hjá Þórarni Eymundssyni. Þar varð
Nói á vegi hennar.
„Þórarinn ræktaði Nóa. Ég
kynntist honum strax í frumtamningu
og þjálfaði hann þegar ég vann hjá
honum. Mér fannst hann alltaf mjög
efnilegur. Hann var sýndur 5 vetra
í kynbótadómi og fékk þá strax 1.
verðlaun. Ég keypti hann svo þegar
hann var á sjötta vetur, ungan og
óreyndan. Síðan þá hef ég kennt
honum allt sem ég kann og hann
hefur kennt mér rosalega mikið,“
segir Sina stolt.
Nói er 9 vetra gamall, undan
heiðursverðlaunastóðhestinum
Vilmundi frá Feti og fyrstu
verðlaunahryssunni Naomi frá
Saurbæ, en Nói er fyrsta afkvæmi
hennar.
Nói hlaut 8,61 í aðaleinkunn
þegar Sina sýndi hann fyrir
kynbótadómi í fyrra. Hann fékk þá
8,41 fyrir sköpulag og 8,75 fyrir
kosti, þar á meðal einkunnina 9
fyrir tölt, skeið og vilja og geðslag.
„Kynbótadómurinn var stærsta afrek
okkar á síðasta ári en síðan þá hefur
hann bara verið að toppa sig,“ segir
Sina.
Hún lýsir Nóa sem geðgóðum og
meðfærilegum hesti. „Hann er mjög
jafn alhliðahestur, allar gangtegundir
eru ofboðslega góðar. Hann er
rosalega ljúfur og það er gaman að
vinna með honum. Hann vill allt fyrir
mann gera. Svo er hann mjög prúður
og fallegur.“
Það fór ekki framhjá áhorfendum
að milli Sinu og Nóa ríkir mikið
og gott samband. „Við erum orðin
svo gott teymi, þetta er svo mikil
samvinna. Hann reynir að gera allt
fyrir mig og ég reyni að trufla hann
sem minnst. Ég er svo heppin að eiga
svona fjölhæfan hest.“
Óvæntur árangur
Það má segja að Nói og Sina hafi
komist bakdyramegin inn í A-flokk
gæðinga á Landsmóti, því þau voru
skráð til leiks sem varakeppendur
fyrir hestamannafélagið Skagfirðing.
Í firnasterkri forkeppni voru þau í
22. sæti og héldu því áfram keppni.
Í milliriðlum voru þau í essinu sínu
og kom mörgum á óvart þegar þau
skutust upp í 7. sæti og tryggðu sér
öruggt sæti í A-úrslitum flokksins.
Þar sýndi Sina mikla færni Nóa
þegar þau tóku af stað á stökki frá
kyrrstöðu. „Mér finnst mikilvægt að
hafa hestana alltaf alveg undir stjórn
og ég þjálfa Nóa t.d. rosalega mikið í
gegnum fimiæfingar. Þessi skipting,
frá feti upp í stökk, hjálpar honum
mikið, því þá get ég safnað honum
og stökkið verður þá mikið betra. Það
er líka bara gaman að geta sýnt hvað
hann er þjáll, vel þjálfaður og sterkur
hestur. Það geta nefnilega ekki allir
hestar farið í svona miklum burði
upp á stökkið, sérstaklega verandi
alhliðahestur.“
Sina er að vonum í skýjunum
með árangurinn á Landsmóti, hún
hafi komið henni sjálfri skemmtilega
á óvart. Þau Nói stefna þó ótrauð
áfram enda keppnisferillinn bara rétt
að hefjast. /ghp
Sina keypti Nóa ungan og óreyndan. „Síðan þá hef ég kennt honum allt sem ég kann og hann hefur kennt mér
rosalega mikið,“ segir Sina stolt af sínum hesti. Mynd / ghp
HROSS&HESTAMENNSKA
Mynd / Patty van der Kaaij
Allir félagsmenn Bændasamtaka Íslands teljast til
sjóðs félaga og geta sótt um:
# Styrki til endurgreiðslu aukins rekstrarkostnaðar vegna
veikinda þess sem að búrekstri stendur eða slyss.
- Útlagður launakostnaður, verktakagreiðslur og sambærilegur
kostnaður sem leiðir af óvinnufærni.
# Styrki til forvarnarverkefna.
- Verkefni tengd forvörnum og vinnuvernd, slysavarnir og önnur
verkefni sem hafa það að markmiði að bæta velferð sjóðsfélaga.
Nánari upplýsingar á bondi.is og umsóknareyðublöð
má nálgast á félagsmannasíðum á Bændatorginu frá
og með 23. júlí nk.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 27. ágúst nk. á
netfangið: velferdarsjodur@bondi.is.
VELFERÐARSJÓÐUR BÍ
AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM
Bændasamtök Íslands,
Bændahöllinni við Hagatorg,
107 Reykjavík
Kristinn Hugason, forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins, fyrir framan
Mynd / ghp