Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 2018 41
Falleg húfa fyrir veturinn prjónuð
úr Drops Air sem er mjúkt og
stingur ekki. Kjörin á alla krakka
í vetur.
Stærð: 2–3/4–5/8–9/12 ára.
Höfuðmál: ca 48/50 - 50/52 - 52/54 - 54/56.
Garn: Drops Air (fæst í Handverkskúnst). 50-50-
100-100 g. Einnig hægt að nota Drops Nepal og
Drops Big Merino.
Prjónar: Hringprjónn 40 cm og sokkaprjónar nr.
4,5 og 5 - eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur
og 22 umferðir í sléttu prjóni verði 10 cm á breidd
og 10 cm á hæð, á prjóna nr. 5.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
---------------------------------------------------
Húfa:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir
á sokkaprjón þegar lykkjum fækkar.
Fitjið upp 80-80-96-96 lykkjur á hringprjón nr
4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið
síðan A.1 yfir allar lykkjur í 4 cm (= 5-5-6-6
mynstureiningar með 16 lykkjum). Skiptið yfir
á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig:
*Prjónið 6 lykkjur brugðnar, prjónið sléttar lykkjur
yfir næstu 10 lykkjurnar og aukið JAFNFRAMT út
um 2 lykkjur yfir þessar 10 lykkjur*, prjónið frá
*-* alls 5-5-6-6 sinnum = 90-90-108-108 lykkjur.
Prjónið síðan þannig: *Prjónið 6 lykkjur brugðnar,
A.2 (= 12 lykkjur)*, prjónið frá *-* alls 5-5-6-6
sinnum. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18 cm
fækkið um 1 lykkju í byrjun hverrar brugðinnar
einingar, fækkið lykkjum með því að prjóna 2
lykkjur brugðnar saman (= 5-5-6-6 lykkjur færri,
A.2 heldur áfram eins og áður). Endurtakið úrtöku
í hverjum cm, en fækkið lykkjum til skiptis í lokin
og í byrjun á brugðinni einingu, alls 5 sinnum =
65-65-78-78 lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð slétt
þar sem fækkað er um 4 lykkjur yfir hverri einingu
A.2 = 45-45-54-54 lykkjur eftir í umferð. Í næstu
tveimur umferðum eru allar lykkjur prjónaðar 2 og
2 slétt saman = 12-12-14-14 lykkjur eftir í umferð.
Klippið frá, dragið bandið í gegnum þær lykkjur
sem eftir eru, herðið á bandi og festið vel. Húfan
mælist ca 21-22-23-24 cm á hæðina.
Dúskur:
Gerið einn dúsk ca 4-6 cm að þvermáli og festið
dúskinn efst á húfuna.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Mynstur:
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 5 2 9 7
7 6 8 4 3 5
1 5 4
2 5 9 8 3
8 4 6 2 9
3 1 4 2 5
6 2 7
2 9 3 6 5 1
1 4 5 6 2
Þyngst
2 9 6 4
8 5 9 3
9 4 1 7
6 9 2 1
7 3 1 6
5 4 2 9
1 3 6 4
4 5 8 2
5 7 2 8
9 4 7 3
4 5
6 3 1 4 7
7 1
7 2
3 5
5 9 3 7 8
2 6
1 6 2 9
3 7 6
2 9 4 3
5 8 9
1 4
8 2
9 7
8 3 9
6 5 2 3
2 7 5
Öldurnar á Tenerife eru
hærri en geldneytahús
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Kári Daníelsson á Hjálmsstöðum
1 finnst ljúffengt að fá sér
Bartaborgara í ferðamannafjósinu
í Efstadal. Honum líkar vel við
hesta en fyrsta minningin er þegar
systir hans kom í heiminn.
Nafn: Kári Daníelsson.
Aldur: 10 ára, alveg að verða 11
ára.
Stjörnumerki: Meyjunni.
Búseta: Hjálmsstöðum 1 í Laugardal.
Skóli: Bláskógaskóla á Laugarvatni.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Sund og náttúrufræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestur.
Uppáhaldsmatur: Mér finnst Barta-
borgari í ferðamannafjósinu í Efstadal
geggjaður.
Uppáhaldshljómsveit: Rjóminn.
Uppáhaldskvikmynd: Fast and the
furious 7.
Fyrsta minning þín? Þegar litla
systir mín kom í heiminn.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð-
færi? Ég æfi blak, fótbolta, fimleika
og körfubolta. Í körfunni er ég í úr-
valsbúðum. Svo spila ég á hljómborð.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Vélaverktaki.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Á Tenerife, öldugangur-
inn var svakalegur. Stærstu öldurnar
voru hærri en geldneytahúsið okkar.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Ég er að vinna í sveitinni og
fæ borgað fyrir það.
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Vogue
bíður uppá alhl iðalausn fyr i r
hótelherbergið eða gist iheimi l ið.
fyr ir heimil ið
Kaðlahúfa á krakka