Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 2018 39
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaðiKRYDD ÍSHROÐI LJÁR MUNDA HEITI YNDIS ÞEFA
TILVÍSUN
BOX
MÁLM-
HÚÐA
HANGA
DÝRA-
HLJÓÐ
SVELGUR
MÓTMÆLI
TÆMA
SVIPAÐ
BOGI
ÓHEILINDI
Í RÖÐ
SVIF
Í RÖÐKASTA
SEINLÆTI
NÝLEGA
TÝNA
DUNDA
GAUL
ÁN
HYGGST
FRAM-
BURÐUR GILDRAFEGRA
HAMINGJU
KANTUR
HÆLA
HELDUR
BROTT
MINNKA
NEYTA
ÞÓTTI
OFRA
FERÐAST
HLJÓM
MJÖG
NÆRÐAR
HEGNA
RJÁLA
MERGÐFRAM-KOMA
SKÍTUR
MÖGL
MJÖG
GRÖM
ÓSVIKINN
BÓK
ÁI
LOFT-
TEGUND
HÁTTUR
ÞVO
STEIN-
TEGUND
BARDAGI
FRÁ VÖRU-MERKIMULDRA
ESPA
ÍLÁT FÍFLAST
ÚT-
HLUTAÐIR
SKERGÁLA
TVEIR
EINS
89
HEITI ÓVARINN DÓMS ÞRÓTTUR BÁTUR ÞYRPING STEFNA
SUTANYFIR-FLÍK T O R M J A K K I
KHRUKKA I P R A ÓHEILINDILEYSIR F A L S
ÚUTAN-HÚSS T I T E L J A M
I N N S T FLÝTIRERFIÐI A S I
R HLJÓÐ-FÆRI DVÍNATVEIR EINS K U L N A ASKURMUNNI E S K I BLÓÐ-HLAUP
TVEIR
EINS
BROTT-
REKSTUR
F
SKYNJAST
STEIN-
TEGUND
ÁLÍTA
HNUPLA
A L L A N LAND-SPILDA HLIÐENN P O R T ÞRÆLKUN MJAKA MÓSKIPTAN
N Ú L L
BÓT Á FLÍK
BRAGAR-
HÁTTUR L E P P
VAFRA
GRÖM R Á F AEKKERT
A T EINRÆKTAÆSIR K L Ó N A
RUNNI
MÆLI-
EINING E I N I RÓLÆTI
B A R FAGELDSNEYTI I Ð N
SÝNIS-
HORN
ÚTLIMUR Ú R T A K GNÆGÐKRÁ
J
BÓK-
STAFUR
VEGUR E M M FJÖRU-GRÓÐUR Þ A N G
SARG
TALA U R G
A L G E R TÍMABILSRANGL Á R S NÝLEGAHÁTTUR Á Ð A NEINSKÆR
L E I T A R DRYKKURSKÓLI M A L T FRÁ VÖRU-MERKI ÓGÁIR
L
A
I
Ð
N
BOR
A
N
KERALDI
A
Á
F
M
A
U
R
FÍFLAST
ÚT-
HLUTAÐIR
A
G
T
A
A
F
S
S
T
T
MILDA
TIL
88
Forvarnir og áhættumat er sjálfsögð hugsun og lagaleg skylda
Nánast allt sem við gerum hefur
einhverja áhættu í för með sér. Það
er hvers og eins að meta áhættuna
í hvert sinn og það er í lögum
að allir vinnustaðir eigi að gera
áhættumat.
Flestum þykir sjálfsagt að
vera með hjálm á hestbaki,
öryggisgleraugu þegar verið
er að nota slípirokk og fleira.
Sjálfur hef ég óskaplega gaman
af því að keyra mótorhjól, en eini
lögboðni öryggisbúnaðurinn við
mótorhjólakeyrslu er hjálmur. Hjálm
er hægt að kaupa á um 15.000 krónur,
en ég met minn haus dýrari og
kostar minn hjálmur tæpar 100.000
krónur. Svo er það allt hitt sem ég
tel nauðsynlegt til að stunda mitt
sport, en samanlagt kostar það sem
ég kalla „mótorhjólagírinn“ nálægt
400.000 krónum. Aldrei hef ég séð
eftir einni einustu krónu sem ég hef
sett í þennan öryggisbúnað minn,
sérstaklega þegar ég er nýbúinn að
fljúga á hausinn á hjólinu.
Of margir horfa á að forvarnir
kosti peninga
Að vera í réttum öryggisklæðnaði
við vinnu geta hreinlega verið skilin
á milli lífs og dauða. Allt of oft sér
maður vinnandi menn í mikilli hæð
án nokkurs öryggisbúnaðar og aðra
á vinnusvæðum hjálmlausa þar sem
nauðsynlegt er að vera með hjálm.
Þó finnst mér allra erfiðast að sjá
menn vinna með slípirokka og sagir
án öryggisgleraugna, vitandi það að
þessi augu eiga að duga viðkomandi
alla ævi. Rétt eins og þegar ég fer
á mótorhjólið og klæði mig í minn
sjálfsagða öryggisbúnað þá eiga
allir að venja sig strax á að þegar
mætt er til vinnu að vera með allan
öryggisbúnað alltaf við höndina.
Besta „starfsmanna-ávöxtun“ er
að setja pening í forvarnir (hef séð
töluna að króna skili sér þrjátíufalt
í forvörnum).
Leiðinlegar fréttir sem eru
óþarfar
Í síðustu viku var nokkrum sinnum
vitnað til aukinna slysa og slysatíðni
upp úr nýútkominni skýrslu
Vinnueftirlitsins. Það sem vakti hvað
mesta athygli mína var mikil fjölgun
fallslysa. Fallslys er eitthvað sem
á að vera auðvelt að útrýma með
réttum aðferðum. Hin fréttin sem
vakti athygli mína var hversu há
slysatíðni er á meðal lögreglumanna,
en nú er svo komið að starf
lögreglumannsins er hættulegasta
starf landsins. Orsökin er sögð vera
of mikið álag á fáa starfsmenn og of
langur vinnutími (sem sagt: löggan
búin að taka fram úr bændum).
Vinnueftirlitið alltaf að gefa út
eitthvað nýtt og fræðandi efni
Að leggja mat á áhættu dagsins er
góð hugsun með morgunkaffinu.
Í framhaldinu þarf að vinna úr
hugsuninni hver áhætta komandi
dags sé svo að maður komi heill
heim að loknum vinnudegi.
Alltof fáir fylgjast reglulega með
nýjungum í vinnuvernd, en hjá
Vinnueftirlitinu má finna fjölbreytt
og fræðandi efni. Nýjustu tveir
bæklingarnir sem ég fletti í síðustu
viku voru um fallvarnir og líkamlegt
álag og líkamsbeitingu við vinnu.
Mjög fræðandi bæklingar sem allir
hefðu gott af að lesa (er einnig hægt
að lesa þá á vefsíðu Vinnueftirlitsins
á vefslóðinni www.vinnueftirlit.is).
Í fallvarnarbæklingnum er
farið nokkuð víða með góðum
teiknuðum myndskýringum, en þar
má meðal annars sjá á bls. 5 mjög
góða teikningu af vinnupalli sem
gott væri að hafa til viðmiðunar við
vinnupallauppsetningu. Alltof mörg
slys eru vegna rangra vinnuaðstæðna
í hæð þar sem menn falla niður og
slasast. Með réttum vinnubrögðum
er hægt að koma í veg fyrir öll
fallslys.
Í bæklingnum um líkamlegt álag
og líkamsbeitingu er farið um víðan
völl. Það sem upp úr stendur hjá mér
er hversu nauðsynlegt er að taka það
sem í daglegu tali er kallað: „Að fara
í pásu.“ Fræðandi bæklingur sem
allir ættu að lesa. Fyrir mína parta
þá hef ég lengi talað fyrir því að
besta forvörn við streitu og álagi er
að leggjast út af í 10–20 mínútur um
miðjan dag. Að mínu mati þá skerpir
það hugsun, maður verður ferskari
og hressari til vinnu það sem eftir
lifir vinnudags „eftir smá leggju“. Of
margir eru heima vegna veikinda út
af streitu og verkja sem auðveldlega
er hægt að komast hjá með litlum
breytingum á huga og hegðun. Með
því að beita líkamanum rétt verður
heilsan betri og lundin léttari.
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
FRÆÐSLU- OG LEIÐBEININGARIT NR. 38
Líkamlegt álag og
líkamsbeiting við vinnu
FRÆÐSLU- OG LEIÐBEININGARIT NR. 34
Bæklingar Vinnueftirlitsins um fallvarnir og líkamlegt álag og líkamsbeitingu
við vinnu eru góð lesning. Þeir eru aðgengilegir á vefnum vinnueftirlit.is.
Teikning af vinnupalli þar sem
öryggið er í fyrirrúmi.