Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 2018 29
Útbreiðsla og saga
Fyrstu kynni Evrópumanna af
papaja voru snemma á sextándu
öld. Spánverjinn Oviedo sem var
námustjóri á Haítí 1513 til 1525
skrifaði bréf heim þar sem segir að
skipstjórinn Alphonse de Valverde
hafi flutt með sér fræ frá eyjum í
Vestur-Indíum. Seinna kom í ljós að
um fræ papajaplöntunnar var að ræða.
Frá Haíti og Vestur-Indíum fluttu
Spánverjar papajafræ með sér til
Filippseyja og þaðan bárust fræin
með Spánverjum eða Portúgölum
til austanverðrar Malasíu. Ef marka
má hollenska grasafræðinginn Rheed,
sem var um tíma landstjóri Srí Lanka,
barst fræið til Indlands milli 1580
og 1590.
Það var ekki fyrr en rúmum
hundrað árum seinna sem fyrstu
papajafræin bárust til Evrópu með
kaupskipum frá Indlandi.
Árið 1652 pantaði Jan van
Riebeeck, stofnandi Höfðaborgar í
Suður-Afríku, papajafræ frá Indlandi
og hóf tilraunir með ræktun þeirra
þar og er það upphaf papajaræktunar
í Afríku.
Ræktun á papajaaldinum hófst á
Havaíeyjum snemma á átjándu öld.
Nafnaspeki
Latneska tegundarheitið papaya
kemur úr spænsku og er þangað
komið úr Karib sem er tungumál
Kalina-fólksins, papáia, sem er í
dag um 7.500 að tölu og finnst flest
í Venesúela, Trínidad og Tóbagó. Í
Brasilíu kallast aldinið mamao og
fruita de bomba á Kúbu og er um leið
slanguryrði fyrir rassstórar konur. Í
Kúbu er papaya aftur á móti klúryrði
fyrir sköp kvenna.
Kristófer Kólumbus kallaði
papaja aldin englanna.
Aldinið kallast papaya á flestum
tungumálum en auk þess á þýsku
baummelon, á dönsku træmelon og
pawpaw eða pawpae á ensku.
Á íslensku er aldin plöntunnar
kallað pápáaldin í tollskrá og líklega
dregið af enska heitinu pawpaw.
Pawpaw er einnig heiti á trjátegund
sem vex í Norður-Ameríku og kallast
Asimina triloba á latínu og gefur af
sér aldin sem svipar til papaja en er
alls óskyld tegund.
Aldinið kallast sólaldin í
Orðabanka íslenskrar málstöðvar en
papaja í daglegu tali og kæliborðum
verslana.
Ræktun og erfðabreytingar
Fræin spíra auðveldlega og planta
yfirleitt ræktuð upp af fræi og getur
náð tíu metra hæð á innan við þremur
árum og byrjar að mynda aldin á
fyrsta til þriðja ári sem ná fullum
þroska á fimm til níu mánuðum eftir
aðstæðum.
Papajaplöntur eru hitakærar og
dafna best milli 21 til 32° á Celsíus.
Þær þola ekki frost undir -2° á
Celsíus. Plantan kýs vel framræstan
og sandríkan jarðveg, pH 5,5 til 7,0,
og plantan þolir alls ekki að standa í
vatni. Vex best í hitabeltinu en dafnar
á milli 32° norðlægrar og suðlægrar
breiddar. Eingöngu kvenplöntur
eru ræktaðar til aldinframleiðslu og
frjóvgaðar með karlplöntum.
Í ræktun er plöntunum í grófum
dráttum skipt í tvennt. Papaja frá
Mexíkó og papaja frá Havaíeyjum.
Havaípapaja er minna og perulaga,
með gula húð og aldinkjöt.
Mexíkópapaja er stærra, gult eða rautt
og sætara á bragðið og með rauðleitt
eða appelsínugult aldinkjöt. Í báðum
tilfellum er aldinið tínt á meðan það
er grænt og látið fullþroskast eftir
tínslu.
Til er fjöldi afbrigða og yrkja í
ræktun og eru þau misjöfn af stærð.
Dæmi um afbrigði eru 'Maradol',
'Sunrise' og 'Caribbean Red' sem öll
gefa stór aldin með rauðleitu aldinkjöt
og aðallega ræktuð í Mexíkó og Belís.
Aldinkjöt 'Hortus Gold' og 'Honey
Gold' er gulleitt mikið ræktuð í Afríku.
Líkt og í annarri stórræktun
leggjast ýmsar óværur á papaja hvort
sem það eru pöddur, sveppir, bakteríur
eða vírusar.
Talsvert hefur verið fitlað við
erfðaefni papajaplöntunnar og er hún
fyrsta ávaxtatréð þar sem erfðamengið
var kortlagt. Árið 1998 var samþykkt
að setja á markað á Havaíeyjum
erfðabreytt papajaafbrigði, meðal
annarra 'SunUp' og 'Rainbow'.
Afbrigðin voru hönnuð til að þola
ágang víruss sem veldur hringlaga
rotblettum á aldinum og verulegum
uppskerubresti. Í dag er langstærstur
hluti papajaaldina sem ræktuð eru á
Havaíeyjum erfðabreytt.
Aldinin eru viðkvæm og
uppskorin með höndum og verður
að gæta þess að húð þeirra skemmist
ekki við meðhöndlun.
Næringarefnainnihald
Papajaaldin eru 88% vatn og um
11% kolvetni. Þau innihalda enga
fitu og lítið prótein. Hundrað grömm
eru sögð gefa 43 kílókaloríur og um
75% af ráðlögðum dagskammti af
C-vítamíni og talsvert af D-vítamíni
og járni en að öðru leyti er aldinið
næringarefnasnautt.
Nytjar
Papajaaldin var á öldum áður notað
til lækninga á Indlandi og þótti gott
að smyrja aldinkjötinu á legusár
til að græða þau. Te úr papajalaufi
er sagt gott við malaríu, hjarta- og
magastillandi.
Þroskað papaja er sagt gott við
iðraormum og óþroskað til að lækka
blóðþrýsting og fræið er sagt gott
við þembu og verkjastillandi. Plantan
myndar latex eða mjólkursafa sem
hefur verið notað í tyggigúmmí og
annað sælgæti. Úr pressuðum papaja
er unninn ávaxtasafi og bruggaður
bjór. Papajasafi er sagður góður til
að eyða vörtum og siggi.
Úr berki stönglanna eru ofnir
kaðlar og reipi og sagt er að gott sé
að tyggja innra lag hans við tannverk.
Sagt er að konur víða í Asíu hafi
unnið úr plöntunni getnaðarvarnalyf
og lyf til fóstureyðingar. Seinni tíma
rannsóknir hafa sýnt að í plöntunni
er að finna efni sem geta haft áhrif á
hvort tveggja. Papaja er því aldin sem
konur ættu að forðast á meðgöngu.
Í aldininu er efni sem getur valdið
ofnæmisviðbrögðum hjá viðkvæmu
fólki.
Aldinkjötið er gott hrátt til átu
eitt og sér eða í salati og pottréttum.
Í Indónesíu er bæði aldinið og
laufblöðin notuð í salat og blómin
léttsteikt á pönnu með chili og
tómötum. Aldinið er gott í sultur og
sums staðar í Asíu eru blöðin soðin
og borðuð eins og spínat eða þurrkuð
og reykt. Papajaaldin er vinsæll
morgunverðarmatur víða um heim.
Sagt er að gott sé að láta kjöt
liggja í aldinkjöti græns papaja til
að meyra það. Fólk sem borðar mikið
papaja getur orðið appelsínugult.
Fræin eru æt en bragðsterk og séu
þau þurrkuð er hægt að mylja þau og
nota líkt og svartan pipar.
Papaja á Íslandi
Lengi vel þekktist papajaaldin hér
á landi helst sem hitabeltisávöxtur
sem nefndur var í skáldsögum og
ferðalýsingum.
Í auglýsingu í Morgunblaðinu
frá því í júní 1989 auglýsir
Vetrarbrautin, sem var hluti af
skemmtistaðnum Þórscafé, á
matseðli innbakaða sniglakæfu
með papaja og mintusósu,
kjötseyði með linsoðnu ritueggi og
hundasúrukrapís með kampavíni í
forrétt. Gljáða lambahnetusteik með
jarðsveppum í madeirasósu í aðalrétt
og ástríðuávaxta mandarínufrauð
í túlípana. Allt fyrir 2.985 krónur.
Árið 2001 birtist greinarkorn
í DV þar sem því er slegið upp að
papajaávöxturinn geti innihaldið
efni sem gæti nýst í baráttunni við
krabbamein. „Nú keppast hópar
vísindamanna um allan heim við að
verða fyrstir til að búa til eftirlíkingu
af efni sem finnst í papajaávöxtum.
Ástæðan fyrir þessu kapphlaupi er
sú að slíkt efni er talið geta drepið
krabbameinsfrumur.
Stutt er síðan efnið í papaja-
ávöxtunum fannst og er það í
litlum skömmtum í hverjum
ávexti. Reyndar er náttúrulega
efnið baneitrað þar sem það drepur
ekki aðeins krabbameinsfrumur
heldur heilbrigðar frumur líka.
Rannsóknir ganga því út á það
að búa til eftirlíkingu af efninu
sem á eingöngu að virka á móti
krabbameinsfrumunum. Að sögn
dr. Richard Brown, sem stjórnar
rannsóknarhópi við háskólann í
Southampton í Englandi, vonast
hann til að hópnum takist að gera
eftirlíkingu af einu af einfaldari
formum efnisins innan nokkurra
mánaða.“
Þar sem papaja er hitakært er það
vandasamt í flutningum og þolir illa
kæligeymslu og því ráðlagt að geyma
aldinið við stofuhita en ekki í kæli.
Upp úr aldamótunum 2000
fer að bera á papaja og fleiri
suðrænum ávöxtum í umfjöllunum
og auglýsingum fjölmiðla og aldin
sem ekki fyrir löngu þótti forvitnileg
nýjung á makaði þykir sjálfsagt í
dag.