Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 1
18 42 15. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 2. ágúst ▯ Blað nr. 520 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga: Leggur fram hugmyndir um uppstokkun á stuðningskerfi sauðfjárbænda – Endurskoðun sauðfjársamnings flýtt en bændur leggja allt kapp á að ráðast í bráðaaðgerðir Sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra hefur í samráði við Bændasamtök Íslands (BÍ) ákveðið að flýta viðræðum um endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar og skipa samninganefndir á vegum ríkisins og bænda. Í kjölfarið hefjast viðræður um endurskoðun samningsins í stað þess að fara fram árið 2019 líkt og áður var ráðgert. Viðræður aðila munu fara fram á grunni þeirra tillagna sem samráðshópurinn hefur skilað til ráðherra. Þá munu Bændasamtök Íslands í komandi viðræðum leggja áherslu á ályktanir Búnaðarþings og tillögur aðalfundar Landssamtaka sauðfjárbænda. Að sama skapi munu stjórnvöld m.a. leggja áherslu á þær aðgerðir sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Stefnt er að því að ljúka heildar- endurskoðun samningsins síðar á þessu ári. Bændur hafa nú þegar tilnefnt sitt fólk í samninganefnd en frestur til þess rann út 1. ágúst. Fulltrúar þeirra verða Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda og Einar Ófeigur Björnsson, stjórnarmaður í BÍ. Ekki liggur fyrir hverjir muni sitja í samninganefndinni fyrir hönd ríkisins en heimildir úr atvinnuvegaráðuneytinu herma að það verði tilkynnt fljótlega eftir verslunarmannahelgi. Aðgerðir í fimm liðum Í skýrslu samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga koma fram aðgerðatillögur í fimm liðum sem eiga að stuðla að jafnvægi milli framleiðslu og sölu haustið 2019. Þær eru að innleiða fækkunar- hvata sem felast í útleið fyrir bændur 67 ára og eldri, frysta gæðastýringar- greiðslur til að draga úr framleiðslu, lækka ásetnings hlutfall úr 0,7 í 0,5, að bændum bjóðist þátttaka í þróunarverkefni sem felist í ráðgjöf til þeirra við skipulag búreksturs og landnotkunar og að stofnaður verði stöðug- leika sjóður sem stjórntæki til að jafna út sveiflur á mörkuðum. Þá koma einnig fram róttækar hugmyndir um breytingar á stuðningskerfi sauðfjárbænda. Þær byggja m.a. á því að opna kerfið meira og að bændur fái frelsi til að nýta stuðninginn til fjölbreyttari starfsemi. Í stað ærgilda og gæðastýringar verði komið á nýju fyrirkomulagi sem myndi horfa til þeirra fjármuna sem hvert bú eða framleiðandi hafi fengið á undanförnum tveimur til þremur árum á grundvelli þessara tveggja stuðningskerfa. Á þeim grunni yrði til nýr réttur, s v o k a l l a ð u r búsetu grunnur. S a m r á ð s - hópurinn telur mikilvægt að ná fram uppstokkun og einföldun á stuðningi ríkisins og skapa meiri samstöðu meðal sauðfjárbænda. Oddný Steina Valsdóttir, formaður LS, segist leggja áherslu á að farið verði í bráðaaðgerðir fyrir haustið og að samninganefndin hittist sem allra fyrst til að komast að samkomulagi um aðgerðir. „Í meginatriðum snúast aðgerðirnar um að ná jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar. Hugmyndir um búsetugrunn vekja spurningar um markmið búvörusamninganna, t.d. hvort þeir eigi að vera byggðastuðningur einvörðungu eða hvort meginhlutverk þeirra verði áfram að styðja við matvælaframleiðslu og landbúnað,“ segir Oddný. Hún telur að það þurfi að vera í forgangi að koma þeim bráðaaðgerðum sem Landssamtök sauðfjárbænda hafi talað fyrir til framkvæmda sem fyrst og að breytingar á rekstrarumhverfi afurðastöðva myndu styðja greinina til framtíðar. Kristján Þór Júlíusson sjávar- útvegs- og landbúnaðar ráðherra sagði í aðsendri grein, sem birt var í Morgunblaðinu og á bbl.is fyrr í vikunni, að hann bindi vonir við að endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar muni marka nýja og bjartari tíma í greininni. Hann sagði stjórnvöld leggja áherslu á að innleiða sérstaka aðlögunarsamninga um nýja starfsemi til sveita. „Með þeim verði horfið frá núverandi kerfi þar sem stuðningur við bændur er fastbundinn við ákveðið kerfi sem skilyrðir hann við ákveðna framleiðslu,“ sagði Kristján Þór. /TB, BR Minna grillað í vætutíðinni Votviðrið í sumar hefur reynst grilláhugafólki hin mesta þraut. Í samtali við söluaðila á grillkjöti kemur fram að veðrið hafi víða sett strik í reikninginn og salan sé misjöfn eftir landshlutum. Jafnvel hafi menn kastað inn grillsvuntunni og gert sér að góðu að sjóða bjúgu. Guðmundur Ágústsson, sölustjóri Norðlenska, segir sölu á grillkjöti vissulega vera minni en oft áður, en hamborgarasala sé aftur á móti með mesta móti, hvort sem það sé til vitnisburðar um veðrið eða ekki. Greinilegustu merki samdráttar eru vegna þess að fólk einfaldlega fer frekar af landinu þegar veðrið er ekki ákjósanlegt. Hann sé þó bjartsýnn á að tækifæri muni skapast fyrir grillveislur um allt land þegar líður á sumarið. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, tekur í sama streng, salan sé mismikil eftir landsvæðum. Breytingin sé þó ekki mikil á milli ára. Hann sjái þó aukningu í vöruflokkum sem seljist frekar yfir vetrarmánuðina, eins og bjúgum. Einar Long hjá Grillbúðinni segir að sumarið hafi farið vel af stað. Hins vegar sé heldur rólegra í júlí en fyrir ári síðan af augljósum ástæðum. /BR 12 Sjá nánar á bls. 24–25. Mynd / Ragnhildur Aðalsteinsdóttir

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.