Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 201838
Í bílaprófunum mínum hef ég
stundum farið í furðulegar og
tilgangslausar prófanir á ýmsum
farartækjum samanber mótorhjól,
buggy-bíla og fleira. Fyrir nokkru
ók ég fram hjá Kraftvélum og sá
þar fyrir utan mikið breyttan
pallbíl og datt í hug hvort ég mætti
prófa „dýrið“? Um var að ræða
vel útbúinn 40 tommu breyttan,
4X4, Ieco, sjö manna trukk.
Óskar Sigmundsson, sölufulltrúi
atvinnubifreiða hjá Kraftvélum,
tók beiðni minni vel og lánaði mér
bílinn eina helgi til prufuaksturs.
Þarf meirapróf eða gamla
ökuskírteinið til að keyra bílinn
Það fyrsta sem ég sá þegar ég kom
inn í bílinn var að í honum var
akstursmælir (akstursskífa), en kortið
mitt var í vinnubílnum svo að ég ók
honum allan tímann án korts. Fyrir
þann sem hefur tekið bílpróf eftir
1994 þarf hann að auka sín réttindi til
að mega keyra þennan bíl, en þeir sem
eru með „gamla prófið“ (ökuréttindi
frá fyrir 1994) mega aka bílnum þar
sem leyfileg hleðsla bílsins er undir
fimm tonnum. Allir bílar sem eru með
akstursskífu eiga að vera innsiglaðir á
vissan hraða og ef bíllinn er notaður
í útselda vinnu þá verður að vera
aksturskort í tækinu. Þar sem ég var
bara að prófa bílinn taldi ég mig vera
réttum megin við lögin með því að
prufa bílinn án kortsins.
Þægilegur fyrir bílstjórann en
frekar hastur fyrir aðra farþega
Alls ók ég bílnum rúmlega 70 km á
mismunandi vondum og torfærum
vegum. Eins og oft áður bauð ég
konunni með í prufuaksturinn, en
hún prjónar mikið þegar hún situr
sem farþegi í bíl, sérstaklega þegar
eknir eru malarvegir, en í þessum
bíl var lítið prjónað vegna þess að
það einfaldlega gekk ekki vegna
þess hvað bíllinn var hastur á
bögglagrjótsslóðanum sem ég ók.
Hins vegar var sæti bílstjórans fínt
og ég fann varla neitt fyrir holum
og hvörfum í veginum sem frúin
kvartaði undan (ég mæli með að fá
í bílinn fjaðrandi sæti fyrir farþega
í framsætinu sem aukabúnað sem
er í boði). Á malbiki var þetta mun
betra og leið bíllinn áfram á sléttu
malbiki svipað og aðrir bílar fyrir
utan að maður sat töluvert hærra
og óþægilega mikill hvinur frá 40
tommu dekkjunum.
Vel útbúinn og lipur
Þó að Iveco sé innsiglaður
á hámarkshraðann 90 km á
klukkustund er hann ótrúlega lipur
í akstri. Beygjuradíus er góður
við þröngar aðstæður miðað við
stærð bílsins. Séreinkenni bílsins
er að fást við erfiðar torfærur og
að draga þungt (þó má hann ekki
draga þyngri kerru en 3.500 kg á
þeirri 50 mm dráttarkúlu sem hann
er með). Gírkassinn er með hátt og
lágt drif með aukaúrtak fyrir t.d
glussadælu fyrir krana. Einnig er í
honum skriðgír sem er enn hægari og
prófaði ég að gíra bílinn upp í efsta
gír í lága drifinu og var hann þá á 50
km hraða í efsta gír. Bíllinn er að öllu
jöfnu í fjórhjóladrifinu, en hægt er
að læsa drifinu í mælaborðinu, en sú
læsing er glussastýrð (ekki eins og í
flestum bílum, þ.e. rafmagnslæsing).
Sé til dæmis verið að fara yfir mjög
vatnsmikla á þá er hægt að slökkva
á kæliviftunni handvirkt í smá tíma
(pípir í mælaborðinu á meðan), en
þetta er til að maður skemmi ekki
viftubúnaðinn. Í miklu vatnasulli er
hætta á að vatn komist inn á drif, en í
Iveco er öndunin tengd inn í grindina
á bílnum þannig að sáralítil hætta er
á að vatn komist inn í drifin.
Vél og helsti búnaður
Iveco er stærsti og þyngsti bíll
sem ég hef keyrt sem er með
brekkubremsuaðstoð (hill holder
assistance) sem getur komið sér
vel bæði í umferð og í torfærum.
Grunnverðið á Iveco Crew Cab er
11.147.600 kr. (8.990.000 kr. án
vsk.). Vélin er 3,0 lítra og skilar 170
hestöflum og togi upp á 430 Nm.
Bíllinn sem prófaður var er lengdur
og á stærri dekkjum, með aukaljós og
fleira sem gert var hjá Arctic Trucks
fyrir um þrjár milljónir aukalega.
Kostar þá þessi bíll sem prófaður var
15.066.000 kr. (12.150.000 án vsk.).
Allar nánari upplýsingar um bílinn má
nálgast á vefsíðunni www.kraftvelar.
is eða að hafa beint samband við
Óskar sölumann sem veitir allar
upplýsingar.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 5.500 kg
Burðargeta 2.260 kg
Dráttargeta 3.500 kg
Hæð undir lægsta punkt 32 cm
Helstu mál (óhefðbundin)
Eigum til tinda og hnífa í flestar gerðir
heyvinnuvéla, einnig slöngur og dekk
með eða án felgu.
FYRIR HEYSKAPINN
Myndir / HLJ