Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 47 www.versdagsins.is S: 5272600 - www.velavit.is Varahlutir - Viðgerðir Vélavit Sala Þjónusta Varahlutir og viðgerðarþjónusta fyrir JCB lyftara Næsta Bændablað kemur út 23. ágúst Smáauglýsinga- síminn er: 563 0300 Eldri blöð má finna hér á PDF: 551 5000 Ármúla 15, 108 Reykjavík - www.proventus.is - proventus@proventus.is TIL FJÖLBREYTTRA STARFA UM LENGRI EÐA SKEMMRI TÍMA Útvegum starfsmenn Nánari upplýsingar í síma 551 5000 eða sendið fyrirspurn á netfangið proventus@proventus.is Sleipnir hestaflutningar ehf. í Víðinesi 1 í Skagafirði: Valkostur fyrir þá sem vilja hámarka öryggi í flutningi „Viðtökur á þessum fyrstu vikum starfseminnar hafa verið framar vonum og ánægjulegt að finna hversu jákvæðir viðskiptavinir eru gagnvart þjónustunni,“ segir Ingibjörg Sigurðardóttir, sem ásamt manni sínum, Sólberg Loga Sigurbergssyni, stofnaði nýverið fyrirtækið Sleipnir hestaflutningar ehf. Þau búa í Víðinesi 1 í Skagafirði. Sleipnir hestaflutningar býður upp á flutning á hrossum um land allt. Ingibjörg og Sólberg hafa áralanga reynslu af meðhöndlun og umhirðu hrossa og menntun á sviði hestamennsku, Sólberg frá Hvanneyri og Ingibjörg frá Hólum. Ein til tvær ferðir í viku milli Norður- og Suðurlands „Fólk er smátt og smátt að átta sig á að okkar þjónusta er öðruvísi valkostur fyrir hestaeigendur sem vilja hámarka öryggi sinna hesta meðan á flutningi stendur. Undanfarnar vikur hefur verið mikið um flutning á stóðhestum, m.a. á landsmót og svo á hryssum sem eru að fara undir stóðhesta. Núna eru svo að hefjast flutningar á hrossum sem eru að fara í eða koma úr hestaferðum,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg segir að farnar séu ein til tvær ferðir í viku á milli Norður- og Suðurlands auk ferða um land allt eftir samkomulagi. Öryggi og vellíðan hrossa í fyrirrúmi „Hugmyndin að stofnun þessa fyrirtækis kviknaði í fyrrahaust og við höfum verið að undirbúa þetta síðan þá,“ segir hún. Við flutninginn er notaður Dodge Ram 3500, 2018 árgerð og American spirit hestaflutningavagn sem hefur verið endurinnréttaður með það í huga að hámarka öryggi og vellíðan hrossa í flutningi. Hestarnir eru í einstaklingsrýmum. Milliverk er lokað niður í gólf til að lágmarka slysahættu. Hægt er að opna á milli hólfa svo folaldshryssur hafi tveggja hesta pláss. Fjórar myndavélar eru í vagninum sem tryggja að bílstjóri geti fylgst með öllum hestum meðan á flutningi stendur. /MÞÞ Sólberg Logi Sigurbergsson og Ingibjörg Sigurðardóttir með tvíburana, Björn Austdal Sólbergsson og Fjólu Indíönu Sólbergsdóttur. Ram 3500, 2018 árgerð og American verið endurinnréttaður með það í huga að hámarka öryggi og vellíðan HITAVEITU- SKELJAR HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKA 1 SÍMI 777 2000 iblb . s F obca e ok

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.