Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 201822
NÝSKÖPUN
Ný kjötvinnsla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi:
Allt frá fræi til flatböku
Hjónin Petrína Þórunn Jónsdóttir
og Björgvin Þór Harðarson
opnuðu nú í sumar kjötvinnslu
í Árnesi í Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi undir merkinu
Korn grís. Þau hafa lengi gengið
með þann draum að geta verkað
eigin afurðir og selt neytendum
beint. Nú sé draumurinn loksins
að rætast. Þau sjái nú um allt
ferli afurðanna, allt frá fóð-
urframleiðslu og upp á disk
neytenda.
Hefst allt í fræinu
Björgvin og Petrína, sem alltaf er
kölluð Peta, stunda svínabúskap
í Laxárdal í sömu sveit ásamt
foreldrum Björgvins, þeim Maríu
Guðnýju Guðnadóttur og Herði
Harðarsyni. Hörður og Guðný
hafa stundað svínabúskap allt
frá árinu 1978, en Björgvin og
Peta komu inn í búskapinn árið
2001. Þau búa nú með 160 gyltur.
Glöggt er gests augað, segir
máltækið. Þegar Peta kom fyrst
í Laxárdal talaði hún strax um
það við fjölskylduna að sérstaða
bæjarins væri það sem ætti að
byggja á. Bærinn er aðeins rekinn
af fjölskyldunni, hann er talsvert
einangraður frá annarri byggð og
því væri tækifæri fólgið í því að
markaðssetja sig með þeim hætti.
Tíðarandinn í samfélaginu hafi
breyst í þessa átt undanfarin ár.
Neytendur gera auknar kröfur
um uppruna, og aðferðir við
meðhöndlun matvæla.
Ekkert aukadót í kjötið
Í vinnslusalnum eru ýmis tæki og
tól til vinnslu á kjöti. Tækin keyptu
þau úr vinnslu sem hætti starfsemi.
Vinnslunni er skipt í tvö hólf, í öðru er
iðnaðareldhús og aðstaða til baksturs
og undirbúnings fyrir Pizzavagninn,
og í hinu rýminu er kjötvinnslan,
kælir og frystir og kjötborðið þar
sem gestir geta keypt kræsingar
beint frá framleiðendunum. Til
stendur að setja upp tvo reykofna
í beinu framhaldi, en til þess þarf
að byggja við, plássið sé nú þegar
á þrotum.
Sérstaða Korngríssins liggur fyrst
og fremst í fóðruninni, að íslenskt
hráefni sé notað í fóðurblönduna. Í
kjötvinnslunni er leitast við að hafa
sem allra minnst af aukaefnum í
kjötinu. Skinkan er t.a.m. aðeins
söltuð og án bragð- og litarefna.
Beikonið er aðeins þykkara en
gerist og gengur og jafnvel skorið
eftir þörfum og óskum viðskiptavina.
Reynt er að halda vörum eins hreinum
og kostur er.
Heimagert fóður
Í kringum aldamótin fóru bændurnir
í Laxárdal að gera tilraunir með að
rækta bygg og nota í fóðurblöndu
svínanna. Árið 2007 var sú tilraun
færð yfir á annað stig þegar þau
leigðu 200 hektara í Gunnarsholti
þar sem þau rækta bygg, hveiti og
repju. Stærstur hluti ræktunarinnar
er undir byggi, en síðustu ár hafa
verið gerðar tilraunir með repju.
Heildarmagn fóðurs sem framleitt var
á árinu 2017 voru um 750 tonn, þar af
um 50–60 tonn af repju og hveitið um
20 tonn. Bygg er langstærsti hlutinn,
um 650–700 tonn. Yrkin sem notuð
eru mest í bygginu séu Filipa, Kría
og Augusti en meðvitað er reynt að
fækka yrkjum.
Blandan borgar sig
Björgvin segir þessa ræktun vera
hagkvæma og hafi, þrátt fyrir sveiflur
á heimsmarkaðsverði byggs, borgað
sig nánast öll árin. Árin 2013 og 2014
hafi nánast verið á núlli, en þar hafi
farið saman lágt heimsmarkaðsverð
og léleg uppskera. Hann segir að það
séu ekki mörg svínabú í Evrópu sem
nota heila repju í fóðurblöndu. Flestir
pressi olíuna úr repjunni og noti hana
en þau viti ekki til þess að aðrir séu
að nota repjuna með þessum hætti.
Einhver dæmi séu um notkun á repju
í Bandaríkjunum og Kanada. Yrkið
sem Björgvin sáir er sumaryrki, sem
er bragðmildara en vetraryrkin sem
notuð eru í Evrópu. Því hafi repjan
ekki áhrif á lystugleika fóðursins
nema til hins betra. Eina innihald
blöndunnar sem sé aðkeypt sé soja,
til að fá prótein. Gæði fóðursins
segir Björgvin að sé alveg á pari við
aðkeypt fóður. Með því að úða akrana
gegn augnflekk og nota fljótandi
áburð með steinefnum hafi tekist með
ágætum að auka fyllingu kornsins.
Helst vanti aðeins upp á próteingildi
en gott sé að blanda saman repju og
byggi. Þannig fáist gott jafnvægi á
orku og próteini.
Í Gunnarsholti hafa þau Björgvin
og Peta verið að rækta korn og hveiti
til manneldis og stefna á að nota það
í pitsubotna í framtíðinni. Einnig er
stefnt að því að nota kornið í rasp
utan um snitsel og selja neytendum
byggmjöl og hveiti.
Óvissa í greininni
Svínabændur eru uggandi vegna
aukins innflutnings á erlendu kjöti
og velta fyrir sér framtíð innlends
landbúnaðar. Krafa um innflutning
verður æ háværari og eru verðöflin
ansi sterk á þeim vettvangi. Björgvin
hefur þungar áhyggjur af slíkum
fyrirheitum.
„Við erum ekki að keppa á sama
grundvelli, heldur við vöru sem er
framleidd með bunka af sýklalyfjum
með fóðurverði sem er niðri í gólfinu,
laun eru miklu lægri og fleira. Þá er
stór hluti lægri vextir en hér þekkist.“
Hann segir að fjármagns kostnaður
hér sé talsvert meiri en gerist
og gengur í nágrannalöndunum.
Svínabú geti ekki skuldað nærri því
eins margfalda veltu og kúabú til að
mynda. Þau ættu að geta skuldað
u.þ.b. sexfalda veltu en svínabú ræður
rétt svo við hálfa ársveltu.
Víða í Evrópu séu bændur styrktir
til umbóta í samræmi við auknar
kröfur um dýravelferð, allt upp undir
30–40% af fjárfestingu. Slíkur styrkur
hafi virkilega vigt í fjármögnun og
ýti við bændum til framkvæmda.
Regluverkið hér sé þannig uppbyggt
að enginn viti fyrirfram hvað hann
fái út úr styrkumsóknum, því það
ráðist af því hversu margir sæki um
og úr hversu miklum fjármunum er
að spila.
Pizzavagninn að verða 15 ára
Samhliða svínaræktinni og kjöt-
vinnslunni hafa þau hjónin keyrt
um uppsveitir Árnessýslu með
Pizzavagninn í eftirdragi og selt
pitsur í þéttbýliskjörnum og á
mannamótum frá árinu 2004.
Nýja aðstaðan kemur sér einkar
vel fyrir rekstur hans, og auðveldar
allan undirbúning og vinnslu til
mikilla muna. Leitast er við
að hafa sem mest af hráefninu
sem notað er í Pizzavagninum
úr eigin framleiðslu eða úr
nærsamfélaginu.
„Við náttúrlega búum til okkar
eigið pepperoni, skinku og beikon.
Við kaupum svo nautahakk af
bændunum hérna í kringum okkur
og svo auðvitað grænmetið á Flúðum.
Það er frábært að hafa aðgengi að
því, alltaf ferskt og gott grænmeti.“
Þau segja jafnframt að forsenda
þess að geta rekið svona vagn sé
hversu stutt sé á milli bæjarfélaga
í uppsveitum og telja að fólk kunni
vel að meta tilvist hans. /BR
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Regn- og
hlífðarfatnaður
Dynjandi býður upp á hlífðar- og öryggis fatnað
sem uppfyllir ströngustu kröfur.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Hægt er að kaupa vörur frá Korngrís ásamt öðru ljúfmeti frá öðrum bændum
í kjötvinnslu þeirra í Árnesi.
Árnessýslu og býður upp á rjúkandi
Horft heim að Laxárdal. Á bænum hefur verið stunduð svínarækt allt frá
árinu 1978. upp í sölu á afurðum. Hér eru þau að pakka beikoni í umbúðir. Mynd / BR
Sjálfvirkur skurðarhnífur sneið-
ir niður beikon og aðrar vörur frá
Korngrís.
Kornræktin í Gunnarsholti er um-
fangsmikil. Þar rækta bændurnir í
Laxárdal stærstan hluta af sínu fóðri.