Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 20182 FRÉTTIR Útflutningur á heyi til Noregs: Norðmenn gefa út skilyrði til innflutnings Norska matvælastofnunin (Mattilsynet) hefur gefið út lista yfir svæði á Íslandi sem flytja má heyfeng af til Noregs. Listinn byggir á áhættumati sem Mat- væla stofnun Noregs lét gera vegna mikilla þurrka þar í landi. Skilyrði til útflutnings eru að garnaveiki og riða hafi ekki greinst á bæjum á svæðinu síðustu 10 árin. Íslandi er skipt upp í varnarhólf til að varna útbreiðslu sjúkdóma í búfénaði. Mörg hólf uppfylla ekki skilyrði til útflutnings. Þau hólf sem flytja má af eru 14 talsins: Snæfellshólf, Dalahólf, Vest- fjarðahólf eystra, Vestfjarðahólf vestra, Miðfjarðar hólf, Grímsey, Austfjarðar hólf, Öræfahólf, Eyjafjalla- og Vestur-Skaftafells- sýslu hólf, Biskupstungnahólf, Grímsnes- og Laugardalshólf auk Vestmannaeyja. Telja litla áhættu felast í heyinnflutningi frá Íslandi Matvælastofnunin í Noregi telur að lítil áhætta teljist að flytja inn hey frá þessum svæðum á Íslandi, en að áhættan sé mun meiri ef flytja á hey frá Bandaríkjunum og Kanada. Matvælastofnun hefur ekki getað svarað því hvað réði því hvar línan var mörkuð, en stofnunin sé að vinna að þessum málum í samstarfi við Norsku matvælastofnunina. Áður var talað um að tún þyrftu að vera friðuð frá beit í vissan tíma en nú er horfið frá því ákvæði. Samkvæmt þessum tilmælum virðist einnig vera í lagi að selja hey af túnum sem hafa fengið búfjáráburð. Edmund Skoie er staddur hér á landi til að vinna í að koma þessum viðskiptum á koppinn. Hann telur að orðalagi í tilmælunum verði líklega breytt á þann veg að bændur megi kaupa hey af bæjum sem hafa verið sjúkdómalausir í 10 ár. Sjúkdómastaða Íslands sé mun betri en í öðrum ríkjum sem hægt sé að flytja hey frá, eins og Bandaríkjunum og Kanada. Edmund segist hafa mætt mjög jákvæðu viðhorfi meðal bænda á Norðurlandi og hann vonast eftir að viðskiptin verði að veruleika. /BR Kaup og sala jarða á Íslandi: Umræðan snýst ekki aðeins um bújarðir Haukur Arnþórsson, stjórn- sýslufræðingur hjá Reykjavíkur- Akademíunni, segist ekki vilja einangra umræðuna við viðskipti með bújarðir, heldur almennt við kaup og sölu á landi. Hafa þurfi í huga að aðeins fjórðungur landsins sé ræktanlegur, eignarhald á landi sem ekki sé ræktanlegt skipti miklu máli. Hann segir að fullt viðskiptafrelsi með land tíðkist ekki í nágrannaríkjunum. Land hafi svo einstaka og sterka stöðu efnahagslega og pólitískt að óhjákvæmilegt sé að ríkið setji viðskiptum með það skorður. Hann segir að málið teygi sig aftur til ársins 2004 þegar ný jarða- og ábúðarlög voru sett. Þar með hafi auðmenn á EES-svæðinu, þar með talið Íslandi, fengið frítt spil og jarðaverð tekið að hækka. Haukur telur það óhjákvæmilegt að bændur eigi jarðir sínar. Þeir hafi barist fyrir því um aldir gegn lénsherrum, kóngum og kirkjunni og haft betur. Nú stafi hættan ekki af kóngum (ríkinu) eða kirkjunni, heldur af auðmönnum og félögum þeirra. Leiga jarða muni hækka í takt við verð þeirra og gæti hún orðið afar há. Hún gæti orðið svo há að ný landnýting kæmi til skjalanna. Þetta sé í takt við markaðslögmálin; leigufélögin á húsnæði í Reykjavík segi, „við hækkum leiguna af því að við getum það“. Forkaupsréttur sveitarfélaga ein leið Takmarkanir á eignarhaldi brjóta ekki í bága við reglur EES að mati Hauks ef þær ná til allra íbúa svæðisins. Hann segir að hægt sé að setja skilyrði fyrir sölu, kaupum og nýtingu eins lengi og slík ákvæði séu málefnaleg og standist réttmætissjónarmið. Slíkt tíðkist í nágrannaríkjunum. Hvaða leiðir séu færar í því samhengi þurfi að hugsa vandlega. Markmið þeirrar vinnu sé að tryggja lágt verð á landi og einstaklingseign bænda og íbúa í samfélaginu og hindra að hátt verð magni upp leigu og landnýtingu í þágu auðs. Meðal þess sem hægt sé að gera sé að koma á forkaupsrétti sveitarfélaga eins og nefnt hafi verið en hann dugi þó ekki einn og sér. Viðskiptafrelsið hafi slík áhrif á jarðaverð að sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins séu ekki í stakk búin til að kaupa. Áhrifin sums staðar jákvæð Guðmundur Wiium, formaður veiðifélags Selár, segir að jarðakaup í Vopnafirði hafi komið í veg fyrir að jarðir hafi lagst í eyði og að búskap hafi sums staðar verið viðhaldið og jafnvel byggður upp með kvótakaupum og fleiru. Hann segir að dæmi séu um að skuldugir bændur hafi getað selt jörð sína og komið undir sig fótunum annars staðar, þar sem ekkert hafi verið fram undan annað en yfirtaka banka með tilheyrandi raski á búsetu. Hann segir það áhyggjuefni að bændum skuli ekki takast að viðhalda búsetu með þeim hætti að erfingjar taki við búrekstri. Hins vegar sé það betri kostur að jarðirnar séu keyptar og búsetu viðhaldið þar með. /BR Móta umhverfisstefnu landbúnaðarins Á síðasta búnaðarþingi var ályktað á þá leið að greina stöðu umhverfismála í íslensk- um landbúnaði og setja í fram- haldinu markmiðssetta stefnu í umhverfismálum til næstu ára. Nýlega skipaði stjórn Bænda - samtakanna nefnd sem hefur það hlutverk að vinna að umhverfis- stefnunni. Samþykkt var samhljóða að skipa Ingvar Björnsson, fyrrum ráðunaut og bónda á Hólabaki, sem formann nefndarinnar og með honum þau Katrínu Maríu Andrésdóttur, framkvæmdastjóra Sambands garðyrkjubænda, Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra Landssambands kúabænda, Unnstein Snorra Snorrason, framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda og Hlyn Gauta Sigurðsson, framkvæmdastjóra Landssamtaka skógarbænda. Umhverfisstefnunni er ætlað að verða leiðarljós einstakra bænda og búgreina sem og landbúnaðarins alls í umhverfismálum. Henni er ætlað að verða mikilvægt verkfæri við endurskoðun búvörusamninga og við gerð framtíðarsamninga ríkis og bænda. Umhverfisstefna landbúnaðarins mun meðal annars taka á kolefnislosun frá landbúnaði, losun frá ræktunarlandi búpenings og orkunotkunar, landnýtingu, skógrækt og landgræðslu. /TB Haukur Arnþórsson stjórnsýslu- fræðingur telur það óhjákvæmilegt barist fyrir því um aldir. Mynd / BR Matfugl stækkar kjúklingabú „Við erum að horfa til framtíðar,“ segir Sveinn V. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Matfugls, en félagið áformar að stækka kjúklingabú sitt að Hurðarbaki í Hvalfjarðarsveit. Þar eru nú um það bil 80 þúsund eldisrými, en hugmyndir Matfugls ganga út á stækkun upp í um 190 þúsund eldisrými. Sveinn segir að unnið sé að umhverfismati vegna stækkun- arinnar, frummatsskýrsla sé tilbúin og er hún þessar vikurnar í kynningu. „Þetta tekur allt sinn tíma, en við stefnum á að hefjast handa á næsta ári, gætum líkast til byrjað næsta vor,“ segir hann. „Þetta kostar allt umtalsverða fjármuni,“ segir Sveinn spurður út í kostnað við framkvæmdirnar. Söluaukning og ágætis jafnvægi í greininni Til stendur að byggja fjögur ný hús að Hurðarbaki þar sem Matfugl er með sína starfsemi, um 1.800 fermetrar hvert um sig. Núverandi starfsemi fer fram í tveimur 2.500 fermetra húsum. „Það hefur undanfarin ár verið aukning í sölu og ágætis jafnvægi í greininni, framleiðsla og sala hafa haldist vel í hendur. Við erum með þessum stækkunaráformum að horfa fram í tímann. Fyrirtækið hefur stækkað umtalsvert undanfarinn áratug og við sjáum fram á að svo verði áfram þegar horft er til næstu tíu ára,“ segir Sveinn. /MÞÞ Framleiðsla og sala á fuglakjöti er í vexti. Mynd / BBL Bændur í Noregi leita allra leiða til að verða sér úti um heyfeng fyrir veturinn. á dögunum í þeim erindagjörðum að ræða viðskipti. Mynd / Úr einkasafni Íslandi er skipt upp í varnarhólf til að varna útbreiðslu búfjársjúkdóma. Norðmenn vilja ekki hey af svæðum þar sem hefur greinst riða eða garnaveiki á síðustu 10 árum. Úttekt ráðgjafarfyrirtækisins KPMG: Fækka þarf sláturhúsum og minnka framleiðslu Skýrsla KPMG um úttekt á afurða- stöðvum í sauðfjárframleiðslu leiðir í ljós að arðsemi afurðastöðva er óásættanleg. Margt bendir til þess að fjöldi sláturhúsa sé of mikill og að fækka þurfi sláturhúsum til að auka hagræði í greininni og minnka framleiðslumagn kindakjöts að mati skýrsluhöfunda. Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið samdi við fyrirtækið um að gera úttekt á virðiskeðju afurðastöðva en tilgangurinn var að greina kostnað við slátrun, sölu og dreifingu sauðfjárafurða. Í kjölfarið mætti finna leiðir til að lækka sláturkostnað og auka hagræðingu. Ætlunin er að nýta niðurstöðurnar við endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar sem nú er fram undan. Hvar er hægt að hagræða? Í skýrslunni er leitast við að svara spurningum um mögulega hagræðingu í virðiskeðju sauðfjárframleiðslunnar. M.a. er spurt hvort sláturhús séu of mörg og hægt að bæta nýtingu þeirra og hvort skipulagning slátrunar sé nægilega góð. Tilraunir til þess að meta sláturkostnað virðast ekki hafa skilað ábyggilegum niðurstöðum því í skýrslunni kemur fram að hann sé á bilinu 150 krónur til 350 krónur á hvert kíló. Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, segir að það séu vonbrigði. „Við hefðum viljað sjá betri og nákvæmari útreikninga á verðmyndunarferli frá bónda til neytenda en þar er mörgum spurningum ósvarað. Að öðru leyti er hægt að taka undir þær meginlínur sem koma fram í skýrslunni um að hægt sé að ná hagræðingu í afurðastöðvageiranum. Það rímar ágætlega við það sem við höfum haldið fram.“ Fjallað er um það í skýrslunni hvort ávinningur gæti verið að því að hafa sölu og dreifingu sauðfjárafurða frá öllum afurðastöðvum á einni hendi. Allir sláturleyfishafar nema tveir telja að slík samvinna í sölu og dreifingu mundi skila ávinningi, en breyta þyrfti lögum til að það gæti orðið að veruleika. Ráðgjafar KPMG telja að samkeppni á þessum enda virðiskeðjunnar sé líklega að skila ávinningi til neytenda í dag og hún virðist nokkuð virk. Borgar sig að flytja út kjöt? Í skýrslunni segir að ekki hafi verið færð sannfærandi rök fyrir því að til séu markaðir þar sem hægt væri að selja íslenskt lambakjöt sem munaðarvöru á hærra verði en almennt gerist á heimsmarkaði. Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb, segir að víða séu góðir markaðir fyrir íslenskt lambakjöt. Mikilvægt sé að standa vel að markaðssetningu. „Við höfum dæmi eins og Whole Foods og útflutning til Japans þar sem kaupendur eru tilbúnir að greiða hátt verð fyrir íslenskt lambakjöt.“ Svavar leggur líka áherslu á að það verði að gæta þess þegar talað er um meðaltalsverð að sumt af því sem flutt er út eru ódýrir bitar sem ekki seljast hér á landi. „ Fyrir hvern hrygg sem er framleiddur verða líka til slög og frampartar sem þarf að koma í verð.“ Ágúst Torfi Hauksson, fram- kvæmdastjóri Norðlenska og stjórnarformaður Landssamtaka sláturleyfishafa, segir að ekki hafi verið fjallað formlega um skýrslu KPMG á vettvangi sláturleyfishafa. „Skýrslan er um margt áhugaverð en það er kannski ekki margt sem kemur á óvart. Vil þó nefna eitt sem kemur á óvart og ég tel líklegt að sé einhverskonar misskilningur, t.d. ólík framsetning á gögnum, en það er hve mikill munur er á sláturkostnaði, hæsta og lægsta. Mér finnst ólíklegt að þarna sé verið að bera saman sambærilega hluti og að munurinn sé jafn mikill í raun og þarna er sett fram.“ Ágúst Torfi telur að við núverandi aðstæður sér æskilegt að draga úr framleiðslu og þar með útflutningi. „Afkoma af útflutningi er óviðunandi og í raun engin. Við þær aðstæður er eðlilegast að minnka framleiðslu og draga úr útflutningi samhliða.“ Skýrslu KPMG er hægt að nálgast í heild sinni á bbl.is. /TB Kápumynd skýrslu KPMG. Kornþresking. Mynd / Odd Stefán

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.