Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 2018 31
Markmið okkar er að spara
viðskiptavinum tíma,
fyrirhöfn og fjármuni.
VA N TA R Þ I G STA R FS F Ó L K
Handafl er traust og fagleg
starfsmannaveita með
margra ára reynslu á markaði
þar sem við þjónustum
stór og smá fyrirtæki.
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk. | SÍMI 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Fáðu heyrnartæki til prufu
Akureyri | Egilsstaðir | Húsavík | Ísafjörður | Húsavík | Selfoss| Vestmannaeyjar
Um árabil hefur Heyrnartækni veitt þjónustu víðs vegar
um landið. Við bjóðum upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja í ólíkum verðflokkum. Kannaðu hvenær Árni
Hafstað heyrnarfræðingur verður næst í nágrenni við þig.
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
adnBæ
arg ýsinguSm láa 0030365 - -
fráa Ha hf i
Rúmenía:
Stjórnvöld stöðva ólöglegt
skógarhögg í Karpatafjöllum
Laganna verðir í Rúmeníu lögðu
fyrir skömmu til atlögu við
glæpasamtök í landinu sem hafa
stundað ólöglegt skógarhögg í
Karpatafjölum þar sem enn má
finna leifar af frumskógum Evrópu.
Karpatafjöll eru fjallgarður sem
teygir sig frá Mið-Evrópu til Austur-
Evrópu og sá næstlengsti í Evrópu
og er um það bil 1.500 kílómetrar
að lengd. Í fjöllunum er að finna
um það bil þriðjung af öllum
plöntutegundum í Evrópu og leifar
af síðustu frumskógum Evrópu.
Í aðgerðum lögreglu
var meðal annars starfsemi
timburframleiðslu fyrirtækisins
Schweighofer Holzindustrie
stöðvuð en fyrirtækið er í eigu
Ástrala. Auk skógarhöggsmanna
og flutningabílstjóra hefur fjöldi
opinberra starfsmanna einnig lent
í tugthúsinu fyrir að gefa út fölsk
leyfi til skógarhöggs og í sumum
tilfellum í friðlandi.
Talið er að starfsemin teygi sig
aftur til ársins 2011 og að hún hafi
velt tugmilljónum evra. /VH
Talið er að umfangsmikið ólöglegt skógarhögg í Rúmeníuhluta Karpatafjalla
Landbúnaður og ofnýting auðlinda skaðlegri
líffræðilegum fjölbreytileika en hlýnun jarðar
Í niðurstöðu rannsóknar sem birt
var í Nature segir að líffræðilegum
fjölbreytileika í heimunum stafi
mun meiri ógn af landbúnaði, of- og
ólöglegri nýtingu á villtum plöntum
og dýrum en hlýnun jarðar.
Í Nature segir að í umræðunni um
hnignun líffræðilegs fjölbreytileika sé
of mikið gert úr hlut hlýnunar jarðar
og litið framhjá aðalsökudólgnum
sem er landbúnaður og nytjar á
villtum plöntum og dýrum eins og
skógarhögg og fiskveiðar.
Í niðurstöðu rannsóknarinnar
segir að í dag stafi um 75% dýra- og
plöntutegunda í heiminum hætta af
landbúnaði og ofnýtingu en 17%
af völdum hlýnunar jarðar. Á sama
tíma stafar villtum dýrum og plöntum
einnig ógn af útbreiðslu borga
og samgöngumannvirkja, ágangi
ferðamanna, námu- og gasvinnslu.
/VH
plöntutegunda í heiminum hætta af
Ræktun:
Erfðabreytt ræktun á
190 milljón hekturum
Áætlað er að erfðabreyttar plöntur
séu ræktaðar á um 190 milljónum
hekturum lands í heiminum. Mest
er ræktunin í Bandaríkjum Norður-
Ameríku, Brasilíu og Argentínu.
Ræktun á erfðabreyttum
nytjaplöntum er sífellt að aukast
og í dag er áætlað að þær séu
ræktaðar á um 190 milljón hekturum
lands í heiminum. Um helmingur
ræktunarinnar eru sojabaunir, á eftir
fylgir bómull og repjuolíu.
Langmest er ræktunin í
Bandaríkjum Norður-Ameríku þar
sem ætlað er að 75 milljónir lands
séu nýttir undir ræktun erfðabreyttra
nytjaplantna. Í Brasilíu er landnýtingin
áætluð rúmir 50 milljón og í Argentínu
26,3 milljón hektarar. Kanada er í
fjórða sæti með um 13 milljón hektara.
Þar á eftir koma Indland með rúma 11
og Paragvæ og Pakistan með um 3
milljón hektara af landi sem notað er
til ræktunar á erfðabreyttum plöntum.
Fimm stærstu ræktunarlönd
erfðabreyttra plantna, hvort sem
það er til manneldis eða sem fóður,
framleiða um tæplega 95% þeirra á
heimsvísu.
/VH
UTAN ÚR HEIMI