Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 2018 11
Fyrirtækið „Býlið okkar“ auglýsir jurtamjólk án búvörusamninga:
Í fullri samkeppni á mjólkurvörumarkaði
– Hét áður Kú Mjólkurbú og er í eigu Ölgerðarinnar. Framleiða áfram osta og sýrðan rjóma úr íslenskri kúamjólk
Fyrirtækið Býlið okkar ehf. setti
nýverið á markað jurtamjólkina
Heiðu og hefur farið fyrir brjóstið
á mörgum að fyrirtækið auglýsi
vöruna án búvörusamninga og
með stutt kolefnisfótspor.
Guðni Þór Sigurjónsson, fram-
kvæmda stjóri Býlisins okkar,
segir að um 90% af drykknum sé
íslenskt vatn og hluti af umbúðunum
framleiddur úr endurnýjanlegum
hráefnum úr plönturíkinu og
því standi þeir fyllilega við
markaðssetningu á vörunni. Það geri
þeir þrátt fyrir að hluti hráefnisins,
möndlur og hafrar, komi um
þó nokkurn veg og sé að öllum
líkindum ríkisstyrkt af einhverju
tagi í því landi sem það kemur frá.
Hét áður Kú
Býlið okkar ehf., hét áður Kú
Mjólkurbú en nafninu var breytt
um mitt ár 2017 eftir að Ölgerðin
keypti fyrirtækið. Það hefur
aðsetur í Kópavogi og framleiðir
áðurnefnda jurtamjólk en líka
osta og fleiri mjólkurvörur undir
merkjum Kú. Einnig framleiðir
fyrirtækið sérmerktar vörur fyrir
Bónus, s.s. AB-mjólk og sýrðan
rjóma. Kúamjólkin sem notuð er
í framleiðslunni er öll íslensk og
keypt í lausu máli af Auðhumlu.
„Býlið framleiðir, flytur inn, selur
og dreifir gæðavörum úr hráefnum
sem hægt er að rekja beint til býlis.
Býlið leggur sig fram um að hafa
á boðstólum gæðavörur og setur
neytandann í fyrsta sætið, ekki kerfið.
Kú tekur þátt í fullri samkeppni
á mjólkurvörumarkaðnum með
hágæðavörur og er ekki á spenanum.
Býlið leggur á borð fyrir framtíðina
og því má vænta frekari fregna á
næstu mánuðum af nýjum vörum,“
segir Guðni Þór Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Býlisins okkar.
Innflutt þykkni og 90% vatn
Heiða er nýkomin á markað í helstu
verslunum landsins og viðtökurnar
hafa verið mjög góðar, að sögn
Guðna Þórs.
„Heiða er fersk og bragðgóð
jurtamjólk og því algjörlega einstök
á þessum markaði enda hefur
hingað til aðeins verið boðið upp á
G-vörur sem hafa lakari bragðgæði.
Umhverfislega er sömu sögu að
segja, Heiða ber höfuð og herðar yfir
samkeppnina þar sem Býlið flytur
inn þykkni og um 90% af drykknum
er íslenskt vatn. Umbúðirnar, sem
eru úr náttúrulegum brúnpappa, eru
fluttar inn samþjappaðar og er því
ekki verið að flytja vökva né loft
á milli landa. Þessu til viðbótar má
benda á að tapparnir eru framleiddir
úr endurnýjanlegum hráefnum úr
plönturíkinu,“ útskýrir Guðni Þór
og bætir við:
„Heiða er ekki niðurgreidd og
styrkt í gegnum búvörusamninga
eins og hefðbundnar mjólkurvörur á
Íslandi. Býlið flytur inn hafraþykknið
frá Hollandi og hafrarnir eru meðal
annars ræktaðir þar. Samsetning
jurtamjólkurinnar er þannig að um
90% af haframjólkinni er íslenskt
vatn, en í 1 lítra af jurtamjólk þarf
um það bil 0,1 kg af hafraþykkni. Í
1 lítra af kúamjólk þarf hins vegar
umtalsvert meira af kjarnfóðri
ef marka má upplýsingar á vef
Búnaðarsambands Suðurlands, en
þar er talað um allt að 450 grömm
í 1 lítra. Það nægir því í raun að
horfa eingöngu til flutnings á
þessum tveimur þáttum við að það
blasi við að jurtamjólkin Heiða
hefur mun minna kolefnisspor en
hefðbundin kúamjólk og einnig
önnur jurtamjólk.“ /ehg og TB
„Heiða er bragðgóður valkostur fyrir
þá sem vilja drekka og borða meira
úr jurtaríkinu“, segir á vef Heiðu,
www.heiða.is.
LANDBÚNAÐARSÝNING OG BÆNDAHÁTÍÐ
LAUGARDAGINN 18. ágúst í Reiðhöllinni Svaðastaðir í Skagafirði
Sýningin er opin frá kl. 10:00–17:00 og er aðgangur ókeypis.
DAGSKRÁ
Föstudagur 17. ágúst
Fákaflug: Forkeppni í B-flokki,
ungmennaflokki, A-flokki
og tölti.
Laugardagur 18. ágúst
10:00 Sýningin opnuð
Handverksmarkaður,
vélasýning, fyrirtækjasýning og
sveitamarkaður - Beint frá býli,
hoppukastalar, dýragarður
og veitingasala.
10:00-17:00 Fákaflug: Forkeppni í
barnaflokki og unglingaflokki,
Polla-flokkur, 100m skeið,
B-úrslit í A flokki, B-úrslit í B
flokki, úrslit í ungmennaflokki,
úrslit í C1 og B-úrslit í Tölti.
11:00 Leikhópurinn Lotta –
söngvasyrpa úr nokkrum
ævintýrum.
11:30 Setning SveitaSælu 2018
• Tónlistaratriði
• Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra Íslands setur
hátíðina.
• Formaður
Landbúnaðarnefndar
Skagafjarðar, Jóhannes H.
Ríkharðsson, ávarpar gesti.
• Tónlistaratriði
12:30 Hrútadómar/Hrútaþukl.
13:00 Heitjárningar.
13:30 Smalahundasýning.
14:00 Hvolpasveitin mætir í heimsókn.
14:30 Kálfasýning.
15:30 Gunni og Felix stíga á stokk.
17:00 Sýningu lýkur.
Sunnudagur 19. ágúst
Fákaflug: Úrslit í barnaflokki,
úrslit í unglingaflokki,
A-úrslit í B-flokki, A-úrslit í
A-flokki og A-úrslit í tölti!
10:00 Opin bú í Skagafirði
- Kúabúið á Vöglum í Blönduhlíð
frá kl. 10:00-15:00.
- Hulduland Hegranesi
frá kl. 10:00-15:00.
- Sauðfjár- og ferðaþjónustubúið
Brúnastöðum í Fljótum
frá kl. 10:00-15:00.
- Kúabúið Sólheimum í
Sæmundarhlíð
frá kl. 12:00-17:00.
Gestastofa Sútarans og Sjávarleður
verða einnig með opið frá kl: 08:00-12:00
á sunnudeginum. Tilvalið að kíkja og
kynnast aukaafurðum landbúnaðarins.
Búminjasafnið Lindabæ í Sæmundarhlíð
verður opið á laugardeginum frá
kl. 16:00-19:00 og á sunnudeginum
frá kl. 13:00-18:00.
Aðgangseyrir á safnið er kr. 1000
Veitingasala er á vegum Kiwanisklúbbsins Freyju – allur ágóði rennur til góðra málefna í heimabyggð.
Athugið! Þeim sem vilja panta fyrirtækjabása eða handverksborð er bent á að hafa samband
við Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur í síma 659 9016 eða með tölvupósti á vordisin@gmail.com
Búgreinafélögin í Skagafirði
Búnaðarsamband Skagafjarðar
Véla og fyrirtækja sýning : Húsdýragarður : Opin bú í Skagafirði
Sveitamarkaður - Beint frá Býli : Hoppukastalar : Fákaflug
ný
pr
en
t e
hf
/
0
72
01
8
Guðni Þór Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Býlisins okkar, segir um 90%
af Heiðu-drykknum vera íslenskt vatn. Mynd / TB