Bændablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 2018 35
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 760
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Gluggar og hurðir með eða
-8 vikur
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
bb l.is Fa oec ob k
Eru heilu héruðin að falla í
hendur erlendra auðmanna?
Bújarðir og heilu héruðin á Íslandi
munu auðmenn íslenskir eða
erlendir og ekki síður matvæla-
keðjur eignast verði ekkert að gert.
Land verður dýrara en gull í veröld
mengunar og dýrasjúkdóma. Við
Íslendingar gerum okkur ekki
nokkra grein fyrir verðmætunum
sem í landinu okkar liggja til
matvæla framleiðslu eða nútíma
lífshátta á veraldarvísu. Með EES
féllu allir fyrirvarar á brott um
jarðakaup íbúa á EES-svæðinu
og „girðingarlögin,“ sem sett voru
stóðust ekki varnir eða önnur
ákvæði laga. Vandi Alþingis í
þessu máli er mikill og ekkert
einfalt.
EES-samninginn þarf að
endurskoða bæði út frá jarðakaupum
og því að hann stangast á við
stjórnarskrána. Siglufjörður er dæmi
um jákvæða þróun til að tryggja
búsetu, við stjórnmálamennirnir
komum með Héðinsfjarðargöng, og
töldum að þar með væri byggðinni
bjargað. Ef ekki hefði komið
auðmaður utan úr heimi, að vísu
drengur uppalinn á Siglufirði, hefðu
göngin verið nýtt til að koma síðustu
íbúunum í burtu. Þessi athafnamaður,
Róbert Guðfinnsson, kom og tók að
gera það sem stjórnmálamennirnir
staglast á í öðru hverju orði að þurfi
að gera: „Byggja upp innviðina.“
Innviðir eru stórt orð og rúma allt
það sem nútímamaðurinn krefst
að sé til staðar. Það er sýn og
fjármagn sem skiptir svo máli og að
peningar séu lagðir í uppbyggingu
fyrir þjónustu og gróandi atvinnu-
og líf í byggðinni. Leiðirnar eru
margar að því marki og þar standa
nágrannar okkar sig betur eins og
t.d. Norðmenn.
Auðmenn að verki í Fljótunum
og Vopnafirði
Við sjáum svo að auðmenn eru
að verki bæði í Fljótunum og
á Vopnafirði og víðar, erlendir
menn sem skynja auðlind Íslands
sjá hana með allt öðrum gleraugum
en við, þeirra gleraugu eru græn en
okkar svört.
Þeir vita að
landið er
ævintýralegt
f e r ð a -
mannaland,
þeir vita
að hinar
verð lausu
j a r ð i r
bændanna
verða innan
seilingar eitt eftirsóttasta land í
veröldinni. Hér eru laxveiðiár og
vötn, hér eru ferskvatnsauðlindir
og ósnortið land hreint og ómengað
til matvælaframleiðslu. Þessi
kynslóð auðmanna er að fara
vel með landseta sína og skilur
að búseta er mikilvæg hverju
héraði. Hér hafa erlendir menn
svo um langt skeið hugað að því
að koma með garðyrkjurækt og
gróðurhúsaframleiðslu vegna
jarðhitans, raforkunnar og hins
hreina kalda lofts sem er auðlind.
Enn fremur hafa útlendingar velt
fyrir sér að koma með kjúklinga-
og svínabúskap í stórum stíl vegna
hreinleikans og þess að landið er
án dýrasjúkdóma og vaxtarhraði
kjúklinga og svína sá mesti sem
um getur. En þessa framleiðslu
eru stjórnmálamennirnir að
færa erlendum bændum með
tollasamningum af því að þeir
skynja ekki stöðuna og leggja ekki
í umræðuna við heildsalaveldið og
innflutningsauðvaldið íslenska.
Sauðfjárbóndinn vinsæll en
vanvirtur
Bóndinn í sauðfjárbyggðunum
á sér fáa vini í kerfinu. En
þjóðin metur störf bóndans og
fjölskyldubúskapurinn er andstaða
verksmiðjubúskaparins og heillar
neytendur um allan heim. Fólkið
virðir vinnu bændanna og vill
hag þeirra betri, bændurnir gegna
fjölþættu hlutverki í landinu, eru
einnig landverðir um leið og þeir
framleiða eina bestu villibráð
heimsins, lambakjötið sem ætti
að seljast á miklu hærra verði
frá bónda til kaupmannsins.
Matvælaframleiðsla í höndum
bænda um land allt er besta og
eina tryggingin fyrir eignarrétti
okkar sjálfra á landinu.
Landbúnaðarráðuneytið fór illa
í stjórnarráðsbreytingunum árið
2007 og er nú nánast í skúffu
í atvinnuvegaráðuneytinu og
stærsta verkefni þess er að hrinda
í framkvæmd matvælalöggjöf
Evrópusambandsins. Hin verk-
efni þess opinbera sem snúa að
náttúrunni og eða landbúnaði
hafa annaðhvort verið lögð af eða
sett inn í MAST, eftirlitsstofnun
ríkisins, þau eiga ekki þar heima.
Nú er hún Snorrabúð stekkur og
Bændasamtökin sundurhöggvin
að kröfu ESB-reglugerðanna,
bæði félaus og ráðalaus. Því
spurði undirritaður í afmælisveislu
hugsjónamannsins Ögmundar
Jónassonar sem gert hefur sig
gildandi í umræðu um landbúnað
hvort þörf væri á að stofna nýjan
stjórnmálaflokk? Bændum og
byggðum til bjargar? Er það
tilfellið að þingmenn og ráðherrar
átta sig ekki á að nokkur hundruð
bújarðir eru á leiðinni í eyði
verði ekkert að gert í málefnum
sauðfjárbænda, landbúnaðarins
og byggðanna? Tekið skal fram
að Kristján Þór Júlíusson er nýr
í starfi landbúnaðarráðherra og
Sigurður Ingi Jóhannsson nýr
byggðamálaráðherra, þeir geta
enn brett upp ermarnar. Spurningin
er því þessi: Verður endurreisn
landsbyggðanna í höndum
landsmanna sjálfra eða yfirtaka
auðmenn og auðhringir landið?
Ísland er gósenland þótt rigni
sunnanlands og rigningin er
góð miðað við brennandi jörð
nágrannanna. Við eigum að eiga og
ráða okkar landi, Íslendingar, í því er
ekki fólgin andstaða við útlendinga
þeir eiga hins vegar að geta fjárfest
hér samkvæmt samningum þar um.
Höfundur: Guðni Ágústsson,
fyrrverandi landbúnaðarráðherra.
LESENDABÁS
Guðni Ágústsson.
„Matvælaframleiðsla í höndum bænda um land allt er besta og eina tryggingin fyrir eignarrétti okkar sjálfra á
landinu,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra. Mynd / Odd Stefán