Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
Hinn 8. febrúar 1918 var Flóa-
áveitufélagið stofnað í Fjölni á
Eyrabakka. Það er því 100 ára.
Lög um áveitu yfir Flóann voru
samþykkt á Alþingi árið 1917.
Þar var kveðið á um að stofna
skyldi félag um áveituna og yrðu
¾ fundarmanna lögmæts fundar að
samþykkja stofnun áveitufélags.
Fjölmennur fundur
Á stofnfundinn mættu 103 bændur.
Tveir voru farnir þegar tillagan
um félagsstofnunina kom til
atkvæðagreiðslu. Sjötíu og níu
samþykktu tillöguna (78%), tuttugu
og einn var mótfallinn og einn sat
hjá.
Á 19. öld var framfaravakning
meðal þjóðarinnar, sem svo oft
hafði haft knappt til matar. Á síðari
hluta aldarinnar vaknaði áhugi
fyrir áveitum á engjalönd, til þess
að tryggja og auka heyfeng og þar
með framleiðslu búsafurða. Tún
voru þá almennt lítil og meirihluti
heyskaparins var á útjörð.
Þó að Flóinn hafi löngum blautur
verið höfðu Flóamenn áhuga á að fá
áveitu á lönd sín með skipulegum
hætti og kannske ekki síður að geta
síðan veitt því af þegar að slætti leið.
Flóðgáttin opnuð 1927
Flóinn var þrímældur til könnunar
og til að skipuleggja um hann
áveitukerfi. Fyrst var hann mældur
árið 1886, svo 1906 og loks 1914–15.
Framkvæmdir við áveituna hófust
22. maí 1922 og var flóðgáttin við
Hvítá á Brúnastaðaflötum opnuð í
fyrsta sinn og vatni hleypt úr ánni inn
á áveitukerfið 27. maí 1927.
Uppskera jókst með tilkomu
áveitunnar og heyfengur
varð auðteknari. Samkvæmt
forðagæsluskýrslum náði heyskapur
á áveitusvæðunum hámarki árið
1940, 78.000 hestburðum. Talsvert
var um það að utanhéraðsmenn fengju
leigðar slægjur á áveitusvæðunum og
eitthvað var um heysölu af teig. Það
hey er ótalið á forðagæsluskýrslum
úr Flóanum.
Mjólkurbú Flóamanna
Til þess að koma auknum búsafurðum
á markað gekkst Flóaáveitufélagið
fyrir stofnun Mjólkurbús Flóamanna,
sem tók til starfa 5. desember 1929.
Um þær mundir sem Flóaáveitan
komst loks í gagnið voru möguleikar
til túnræktar að aukast. Tilbúinn
áburður og grasfræ var kominn
á markað og plógar og önnur
hestaverkfæri kominn til.
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða
Þegar kom fram á 5. áratuginn fór
áhugi á framræslu og þurrkun lands
til túnræktar vaxandi og þá var þegar
farið að bæta afrennslisskurðina, svo
hægt væri að ræsa í þá, jafnframt því
sem þeir gegndu áfram því hlutverki
að taka við áveituvatninu, þegar því
var hleypt af engjunum fyrir slátt.
Árið 1946 beitti Flóaáveitufélagsið
sér fyrir stofnun Ræktunarsambands
Flóa og Skeiða, sem keypti þá þegar
vinnuvélar til ræktunarstarfa.
Með vaxandi túnrækt á 6.
áratugnum dró svo áfram jafnt og
þétt úr engjaheyskap. Árið 1962 er
talið að ekki dygðu lengur minni
háttar lagfæringar á skurðakerfi
áveitunnar. Samþykkt var að láta gera
heildaráætlun um framræslu Flóans
og á aðalfundi Flóaáveitufélagsins
árið 1964 var samþykkt að hrinda
áætluninni í framkvæmd. Árið
1970 var að mestu lokið þeim
framkvæmdum sem áætlunin gerði
ráð fyrir.
Á kalárunum fyrir 1970 bættu
sumir sér upp grasbrestinn með
engjaheyskap en þegar batnaði var
engjaheyskap á áveituengjum Flóans
endanlega lokið.
Vatnsmiðlun
Hlutverki skurðakerfis Flóa-
áveitunnar var þó ekki þar með lokið.
Það er nýtt sem vatnsmiðlun. Það er
viðtaki vatns úr framræsluskurðum
bænda og fleytir fram leysingavatni
í hlákutíð, jafnframt því sem í
þurrkaköflum á sumrin er hleypt
vatni inn á skurðakerfið til þess
að halda uppi grunnvatnsstöðu og
tryggja búfénaði vatn í högum. Vegna
hraunsins sem er undirliggjandi
hættir Flóanum við ofþornun í
langvarandi þurrkum á sumrin.
Viðhald áveitukerfisins felst í því
að halda við flutningsgetu skurðanna
og stuðla að sem jafnastri dreifingu
vatnsrennslis um þá. Sveitarfélögin
í Flóanum eru fjárhagslegir
bakhjarlar áveitunnar, en áður fyrr
var innheimtur áveituskattur á hvern
hektara áveitulands.
Ég held að skurðakerfi Flóa-
áveitunnar sé hið eina á Íslandi
sem er tvíhliða og virkar sem
vatnsmiðlun. Flóamenn mega ekki
vanrækja þetta æðakerfi sveitarinnar,
það er lífsnauðsyn, hvort sem ganga
úrfelli eða þurrkar.
Aðalfundur og afmæliskaffi í
Félagslundi
Aðalfundur Flóaáveitufélagsins
var haldinn í Félagslundi
miðvikudagskvöldið 21. febrúar
og sóttu hann um 40 manns.
Fundurinn fór hið besta fram
og fundargerð ritaði Margrét
Jónsdóttir á Syðra-Velli. Stjórn
félagsins var endurkjörin en hana
skipa; Björn Harðarson í Holti sem
er stjórnarformaður, Már Ólafsson
í Dalbæ og Grétar Sigurjónsson
í Smjördölum. Umsjónarmaður
Flóaáveitunnar er Guðmundur
Stefánsson í Hraungerði.
Að loknum aðalfundarstörfum
var drukkið afmæliskaffi Flóa-
áveitufélagsins 100 ára og héldu
nokkrir fundarmanna ræður í tilefni
afmælisins.
Meðal gesta var Kirkjuráð
Hrútavinafélagsins Örvars á
Suðurlandi og ávarpaði forseti
félagsins, Björn Ingi Bjarnason á
Eyrarbakka, samkomuna. Hann
færði einnig fundinn og afmælið til
myndar eins hér má sjá.
Guðmundur Stefánsson,
Hraungerði.
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL