Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
2016 en skýrist fyrst og fremst af
breytingu á danska skattkerfinu
og ef sú breyting er tekin út fyrir
sviga lækkaði framleiðslukostnaður
mjólkurinnar á árinu.
Í stefnumörkun fyrir mjólkur-
framleiðslu Danmerkur hefur verið
miðað við að framleiðslukostnaður
mjólkur, til lengri tíma litið, þurfi að
vera að jafnaði ekki meiri en 2,55
danskar krónur á kílóið eða um
42 íslenskar krónur eigi búgreinin
að geta staðið sterk bæði gegn
innflutningi sem og á alþjóðlegum
markaði. Árið 2017 reyndust 70%
allra kúabúa Danmerkur vera með
framleiðslukostnað sem var lægri
en 42 íslenskar krónur á kílóið og
er því þorri búanna afar vel rekinn
nú um stundir.
Skýr framleiðslumarkmið
Gitte Grønbæk, framkvæmda-
stjóri samtakanna, kom inn á
framleiðslumálin í máli sínu og
sagði m.a. að til þess að dönsk
mjólkurframleiðsla gæti staðið
fjárhagslega sterk til lengri tíma
þyrfti meðalnyt kúnna að hækka
enn frekar. Markmiðið væri að
meðalnytin, reiknuð sem orkuleiðrétt
mjólk, færi í 12.000 kg á kúna og
er nokkuð í land þar enda var
orkuleiðrétt meðalnyt danskra kúa
10.603 kg um áramótin. Sé eingöngu
horft til Holstein-kúa sem ekki eru
nýttar í lífrænt vottaða framleiðslu
var orkuleiðrétt meðalnyt 11.246 kg
um áramótin.
Þá sagði Gitte að stefna
þurfi að því að stórauka hlutfall
verðmætaefna mjólkurinnar og sagði
hún að markmiðið þar væri að hver
árskýr myndi framleiða að jafnaði
900 kg vermætaefna en um áramótin
framleiddi meðalkýrin í Danmörku
793 kg verðmætaefna mjólkur.
Þá sagði hún mikilvægt að auka
endingu kúnna og með því að auka
endinguna úr 2,5 mjaltaskeiðum
í 3,5 mjaltaskeið megi vænta
þess að framleiðslukostnaður
mjólkur geti lækkað um 6-16
danska aura eða 1-2,5 íslenskar
krónur á hvert framleitt kíló. Fyrir
danskt meðalstórt kúabú myndi sá
sparnaður svara til 2-5 milljónum
íslenskra króna á ársgrunni.
Innflutningur ógnar
nautakjötsframleiðslunni
Þrátt fyrir að búskapur gangi
í raun vel í Danmörku þá er
framleiðslukostnaður nautakjöts
þar hærri en í mörgum löndum
utan Evrópusambandsins og
nýr fyrirhugaður samningur
um tollfrjáls viðskipti á milli
ESB og Mercosur landanna
Brasilíu, Argentínu, Úrúgvæ og
Paragvæ veldur kúabændum í
Danmörku miklum áhyggjum.
Nautakjötsútflutningur skiptir
þessi lönd afar miklu máli og
hefur ESB þegar boðið löndunum
99 þúsund tonna kvóta í skiptum
fyrir aðgengi með aðrar vörur frá
löndum Evrópusambandsins.
Dagljóst er að ef þetta verður
niðurstaðan í viðræðunum mun
verð á nautakjöti, sem er mun
lægra í framangreindum löndum
Suður-Ameríku en í löndum
Evrópusambandsins, lækka að
því að talið er um 5,5% og er
það mikið áhyggjuefni dönsku
bændanna. Vegna þessa berjast
dönsku Bændasamtökin nú fyrir
því að vernda búgreinina með því
að tryggja opinberan stuðning við
framleiðsluna. Þá vilja þau að sett
verði almennt þak á það hve miklu
magni nautakjöts megi hleypa inn
í ESB án tolla.
Samstaðan skiptir mestu máli
Í máli Christian kom fram sú skýra
sýn stjórnar nautgriparæktarhluta
dönsku Bændasamtakanna
að samstaða bæði bænda og
afurðastöðva nautgripaafurða
væri grundvöllur góðs árangurs
til framtíðar. Skipti þar engu
hvort búin væru stór eða smá eða
afurðastöðvarnar í lítilli framleiðslu
eða mikilli.
Samstaða bændanna og samvinna
bæði þeirra og afurðastöðva landsins
sé lykillinn að áframhaldandi vexti
og sókn greinarinnar bæði innanlands
og á erlendum mörkuðum og til þess
að búgreinin geti staðið sterk til
framtíðar þurfi að hlúa vel að henni.
Dönsku bændasamtökin vilja að sett verði almennt þak á það hve miklu magni nautakjöts megi hleypa inn í ESB
án tolla.
Aðalfundur Íslandsdeildar NJF verður haldinn
þann 4. apríl 2018 á Keldnaholti í Reykjavík
(húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands) og hefst
kl. 13.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Núverandi og nýir félagar velkomnir.
Stjórnin
NJF eru samtök norræns og baltnesks búvísindafólks og fagna
100 ára afmæli á þessu ári.
Bonito ehf. • Praxis • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.praxis.is
Útsala
30-70%
afsláttur
...Þegar þú vilt þægindi
LOKAÐ 26. mars til 10. apríl v. páskaleyfa.
Hægt er að senda pantanir á praxis@praxis.is
www.heimavik.is
Sími 892-8655
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Hvammsvirkjun, landslag, útivist og ferða-
þjónusta, í Skeiða– og Gnúpverjahreppi og
Rangárþingi ytra
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt
lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni
7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Landsvirkjunar er einnig að finna á vef
stofnunarinnar www.skipulag.is.
Álit Skipulagsstofnunar lítur eingöngu að áhrifum á ofangreinda umhverfis-
þætti. Umfjöllun um og mat á aðra umhverfisþætti er að finna í úrskurði
stofnunarinnar frá því í ágúst 2003 sem einnig er að finna í gagnagrunni
umhverfismats á vef stofnunarinnar.