Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
„Þetta heppnaðist ágætlega sem
fyrsti viðburður. Við náðum 12
tækjum inn, gerðum við fimm
og fimm eru í vinnslu vegna
aukahluta, en tvö voru dæmd
óviðgerðarhæf,“ segir Hólmar
Svansson, einn af forsprökkum
Restart vinnustofu sem sett var
upp á Akureyri í liðinni viku. Það
var í fyrsta sinn hér á landi sem
slík vinnustofa var haldin.
Hólmar segir að viðburðir sem
þessi hafi verið að ryðja sér til rúms
að undanförnu á meginlandi Evrópu
og í Bretlandi.
„Þetta er vinnustofa þar sem fólk
getur komið með biluð rafmagns- og
rafeindatæki og fengið leiðbeiningar
sérhæfðra sjálfboðaliðið Restart
vinnustofuna um hvernig það sjálft
getur lagfært tækin. Markmiðið
er að lengja líftíma raftækja og
sporna gegn ótímabærri sóun, en
raftækjaúrgangur fer hratt vaxandi
á þeirri tækniöld sem við lifum,“
segir hann.
Vinnustofan og þjónusta Restart
er öllum opin og ókeypis en að því
er stefnt að slíkur viðburður verði
mánaðarlega. Sá næsti verður eftir
páska, 11. apríl næstkomandi og er
í FabLab stofu Verkmenntaskólans
á Akureyri líkt og sá fyrsti.
Verkefnið er algerlega rekið á
góðgerðarformi hérlendis
líkt og erlendis en nýtur
stuðnings frá áhugasömum
fyrirtækjum, stofnunum
og einstaklingum sem líta
jákvætt til áhrifa þess.
Umhverfisumhyggja,
lærdómur og skemmtun
Fyrirmynd viðburðarins hér
á landi er Restart Project
verkefnið í Bretlandi og
víða um Evrópu. Vinnu-
stofurnar eru opnar í þrjár
klukkustundir í senn og þar eru
sjálfboðaliðar með tæknilega reynslu
á raftækjasviðinu sem taka á móti
og hjálpa samborgurum sínum
að viðhalda smáum sem stærri
raftækjum.
Hólmar segir að með þessu starfi
vinnist margt, nærtækast sé að nefna
umhverfisáhrifin en sem dæmi
tvöfaldaðist magn raftækjasorps í
heiminum á árunum 2009-2014 og
hefur stóraukist síðan þá. Í öðru lagi
læra gestir að gera sjálfir við einfaldar
bilanir og síðast en ekki síst hafa
vinnustofurnar reynst skemmtilegar
uppákomur og eflt baráttuanda fólks
sem lætur sig umhverfismál varða.
Líkt og annars staðar vaknaði áhugi
á þessu verkefni hér á landi og hafa
sjálfboðaliðar á tæknisviðinu boðið
fram aðstoð sína, auk fyrirtækja sem
hafa stutt verkefnið.
Þarf ekki alltaf að kaupa nýtt
Hólmar segir stefnt að því að
Restart vinnustofurnar verði einu
sinni í mánuði en reynslan erlendis
hefur einmitt sýnt að fólk kemur
gjarnan tvisvar með hvert bilað
tæki; fær greiningu og ráðgjöf í
fyrri heimsókninni og stundum
leiðbeiningar um kaup á varahlutum.
Í seinna skiptið er svo gert við. Það
þurfi nefnilega ekki alltaf að kaupa
nýtt tæki. Hann hvetur þá sem fengið
hafa nóg af lélegri endingu tækja
og búnaðar, eiga rafmagnstæki
sem þarfnast aðhlynningar og
langar að læra að gera við til að
mæta með tæki sín í næstu Restart
vinnustofu sem verður í FabLab-
stofu Verkmenntaskólans á Akureyri
miðvikudaginn 11. apríl frá klukkan
17-20.
„Það væri svo mjög gaman að
sjá fleiri sjálfboðaliða taka upp þetta
verkefni á öðrum stöðum á landinu,“
segir Hólmar. /MÞÞ
Raftækjaúrgangur fer hratt vaxandi á tækniöld en viðgerðabylting er á Akureyri í formi Restart vinnustofu:
Markmiðið að lengja líftíma raftækja
og sporna gegn ótímabærri sóun
Aðstandendur Restart vinnustofunnar, Guðmundur Geirsson fremstur, Jón Þór Sigurðsson,
stjórnandi Fab lab, Ólafur Pálmi Guðnason og Hólmar Svansson en á myndina vantar Rut
Konráðsdóttur.
Góð þjónusta á Restart vinnustofunni. Guðmundur Geirsson býður Eyrúnu
Ingvadóttur, einum þátttakenda, upp á gleraugu svo hún sjái betur við hvað
er að fást.
Agnes Erla Hólmarsdóttir að glíma við tengingar.
Guðmundur Baldvin, formaður bæjarráðs
Akureyrarbæjar, kom og hafði augljóslega
gaman af.
Frosti var á meðal þátttakenda og naut liðsinnis Guðmundar Geirssonar sjálfboðaliða.
Óli Pálmi að glíma við einkatölvu.