Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
allra sterkustu
töltarar landsins!
31. mars 2018 í Samskipahöllinni í Spretti
Mótið er fjáröflun íslenska landsliðsins
í hestaíþróttum. Heimsmeistarar, Íslandsmeistarar og
landsmótssigurvegarar taka þátt og leggja
þannig sitt af mörkum!
Peningaverðlaun fyrir efstu 3 sætin:
1. Kr. 300.000 - 2. Kr. 200.000 - 3. Kr. 100.000
Glæsilegir stóðhestar stíga léttan dans í höllinni
og minna á komandi sýningartímabil með hápunkti á
Landsmóti í Reykjavík í sumar!
Happdrættið verður með veglegum hætti þar sem sam-
starfsaðilar LH leggja til ótrúlega vinninga!
Miði kostar kr. 1.000.
Aðgangseyrir kr. 3.500. Húsið opnar kl. 17:00.
Keppni hefst kl. 19:00. Bjórkvöld og stemning!
Miðasala í Líflandi, Top Reiter og Baldvini & Þorvaldi
á hráu kjöti ekki borið með sér neina
búfjársjúkdóma sem hafa borist í
búfé í Færeyjum svo hann viti til,
að minnsta kosti ekki enn.
„Ástandið er aftur á móti verra
þegar kemur að garðyrkju og
mörg vandamál hafa komið upp.
Innflutningur á matjurtum og
plöntum er frjáls til Færeyja og
fyrir nokkrum árum barst okkur
spánarsnigill sem étur allar plöntur
sem hann nær til og veldur miklum
skaða í ræktun.
Um 20% af innanlandsneyslu á
kartöflum eru ræktuð í Færeyjum
auk þess sem við ræktum einnig
korn í tilraunaskyni og lítilsháttar
af grænmeti og þá aðallega með
heimaræktun. Annað er flutt inn.
Þrátt fyrir að matjurtarækt sé
vaxandi er ekki enn sem komið
er ræktað grænmeti eins og
tómatar og agúrkur til framleiðslu
í gróðurhúsum. Á sjöunda og
áttunda áratugnum var lítilsháttar
gróðurhúsaframleiðsla á grænmeti
í Færeyjum en hún lagðist af vegna
ódýrs innflutnings og smæðar
markaðarins.
Skógrækt Færeyja er ríkisrekin og
rekur hún garðyrkjustöð sem ræktar
skógræktarplöntur og garðplöntur
sem eru seldar almenningi. Einnig
er talsvert flutt inn af garðplöntum
og er líklegt að spánarsnigillinn hafa
borist með þeim.
Vespur eru einnig tiltölulega
nýjar í Færeyjum og allt bendir til
þess að þær hafi fylgt með þökum
sem voru fluttar inn til að leggja á
fótboltavöll, eins furðulegt og það
kann að hljóma.“
Sigert segir að plöntur sem fluttar
hafa verið inn sem garðplöntur hafi
í mörgum tilfellum náð fótfestu í
náttúrunni og séu víða talsvert
ágengar og fjölgi sér mikið á
kostnað innlends gróðurs og
gróðursamfélaga.
„Það er því ekki alltaf til bóta að
gefa allt frjálst og hleypa öllu inn í
landið án eftirlits.“
Margir smábændur
Í Færeyjum er mikill fjöldi smábýla
að sögn Sigerts. „Um helmingur
lands í Færeyjum er í einkaeigu
og helmingurinn er í eigu ríkisins.
Bændur sem hafa til þess leyfi og
mega nytja land í eigu ríkisins og
selja nýtingarréttinn en þeir geta
ekki selt landið sem slíkt.
Land í einkaeigu er í eigu
margra og hver um sig á litlar
jarðir eða skika. Margir, bæði
menn og konur, eiga fáeinar
kindur og jafnvel bara eina kind
og við lítum ekki í raun á það fólk
sem bændur heldur áhugafólk um
sauðfjárrækt.
Bændur sem lifa á búskap,
nautgripa- eða sauðfjárrækt eða
stunda aðra vinnu samhliða búskap
eru á milli 50 og 60.“
Styrkir til landbúnaðar
„Ríkið styrkir mjólkurframleiðslu
um 50 aura danskra króna á lítrann
auk þess sem bændur fá einnig
styrk vegna framleiðslu á heyi Ef
allt er tekið saman og miðað við
framleiðslu á mjólk er upphæðin 1
króna og 30 aurar danskar á lítra.
Lambakjötsframleiðsla í
Færeyjum er án allra ríkisstyrkja en
bændur fá 7 krónur danskar fyrir
hvert kíló af nautakjöti.
Þeir sem eiga kindur geta aftur
á móti sótt um niðurfellingu á 75%
af virðisaukaskatti vegna sölu á
lambakjöti.“
Áhersla á aukið eldi og ræktun
„Núverandi landbúnaðarráðherra
vil leggja aukna áherslu á aukna
landbúnaðarframleiðslu, hvort
sem það er í framleiðslu á kjöti
eða kartöflu- eða grænmetisrækt.
Við erum ekki enn farin að ræða
um grænmetisræktun undir gleri
þrátt fyrir möguleika á að vinna
jarðvarma eða beisla vindorku og hita
gróðurhúsin þannig. Möguleikarnir
eru margir en allt veltur á því að fólk
vilji kaupa framleiðsluna og hægt sé
að framleiða vöruna á því verði sem
fólk er til í að borga fyrir hana.“
Sigert segir að í Færeyjum, líkt og
annars staðar í heiminum, vilji fólk
að matur sé ódýr og að það sé tilbúið
að greiða hátt verð fyrir nánast hvað
sem er nema mat.
„Fólk er eða var til í að borga
háar upphæðir fyrir nánast allt
nema það allra nauðsynlegasta,
sem er náttúrulega góður og
hollur matur. Þetta er smám saman
að breytast og ég held að fólk sé
orðið meira meðvitað um mat og
matvælaframleiðslu og hvað góður
matur skiptir miklu máli.
Margir í dag vilja kaupa vistvæna
framleiðslu og það er áskorun fyrir
bændur í Færeyjum að bjóða upp
á hana. Ég sé þó ekki fram á að
við getum boðið upp á vistvæna
framleiðslu í miklu magni í náinni
framtíð. Jarðvegur í Færeyjum er
næringarefnasnauður og þarf áburð
til ræktunar.
Uppeldi á fiskeldisseiðum í
Færeyjum er sífellt meira að flytjast
í kvíar á landi áður en þau fara í sjó.
Sem stendur erum við með tilraun,
í samstarfi við fiskeldisfyrirtæki,
um að nota úrgang sem fæst við
endurvinnslu eldisvatnsins og
mykju sem áburð.“
Framtíðin er björt
Aðspurður segir Sigert að staða
landbúnaðar í Færeyjum sé ágæt
og hann telji framtíðina bjarta.
„Okkar helsta vandamál er skortur
á landi og ekki síst ræktunarlandi.
Í Færeyjum er það þannig að
þegar ríkið selur land vegna
útþenslu þéttbýliskjarna fer hluti
andvirðisins í sjóð sem bændur geta
sótt um fé til vegna framkvæmda
til að brjóta land til ræktunar eða
bygginga gripahúsa.“
Líkt og annars staðar í heiminum
er sífellt meira af náttúrulegu landi
brotið til ræktunar. Sigert segir að
þessu sé svipað farið í Færeyjum.
„Við verðum einfaldlega að brjóta
meira land til ræktunar ef við ætlum
að auka landbúnaðarframleiðslu.
Í dag eru einungis 2% af landi í
Færeyjum ræktað og ólíklegt að
það sé hægt að rækta meira en 6
til 7% vegna þess að mikill hluti
eyjanna er fjalllendi en ég sé
aukna ræktun ekki sem vandamál
í nánustu framtíð. Að vísu er land
víða í beit en ég sé það heldur ekki
sem vandamál.“ /VH
Sigert Patursson afhendir Sindra Sigurgeirssyni, formanni Bændasamtaka Íslands, veglega bók um sauðfé í
Færeyjum. Seinna um kvöldið leiddi Sigert gesti á lokahófi Búnaðarþings í þróttmiklum vikavakadansi. Mynd/TB