Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
Á meðal þess fáa sem haldist
hefur svo til óbreytt frá
upphafi byggðar á Íslandi er
afréttakerfið; göngur, réttir og
notkun marka.
Fyrstu markaskrárnar voru
prentaðar upp úr miðri 19. öld,
áður voru þær handskrifaðar en
mest virðast mörkin hafa varðveist
í munnlegri geymd, mann fram af
manni, öld eftir öld.
Landmarkaskráin
Eftir útgáfu markaskráa um land
allt árið 2012 kom prentútgáfa
landsmarkaskrár út í fjórða skiptið
og þau tímamót urðu þá um
haustið að vefútgáfa hennar kom
út hjá Bændasamtökum Íslands (
www.landsmarkaskra.is).
Hún hefur verið uppfærð eftir
því sem ný mörk hafa verið skráð
og hefur reynst vel. Einkum er um
að ræða eyrnamörk og brennimörk
svo og bæjarnúmer fyrir sauðfé
og geitfé en mikið hefur dregið úr
skráningu frostmarka fyrir hross
sem var veruleg á tímabili.
Skráning marka
Hér fylgir með skrá yfir alla
markaverði í landinu, 22 að tölu
í 17 umdæmum sem hvert fyrir
sig gefur út eigin markskrá.
Landsmarkaskráin er því samsafn
allra þeirra marka, öllum raðað
eftir markaheitum.
Markaverðir taka við mörkum
til skráningar, hver í sínu umdæmi,
þeir úthluta nýjum bæjarnúmerum
eftir þörfum og senda til
Bændasamtaka Íslands. Þetta kerfi
stendur á traustum grunni og hefur
reynst vel.
Nýjar markaskrár árið 2020
Í samræmi við lög um
afréttamálefni o.fl., reglugerð
um búfjármörk og fleira og
fjallskilasamþykktir skal gefa
út nýjar markaskrár í öllum
markaumdæmum eigi sjaldnar
en áttunda hvert ár.
Þannig eiga næstu markaskrár
að koma út fyrir haustið 2020 og
má reikna með að undirbúningur
hefjist ári áður. Þótt tölvuvæðingin
auðveldi mjög aðgengi að öllum
skráðum mörkum hafa prentaðar
markaskrár enn töluvert gildi auk
þess að vera meðal aðgengilegustu
heimilda um nöfn og heimili
sauðfjáreigenda á hverjum tíma.
Guðlaug Eyþórsdóttir
landsmarkavörður
Ólafur R. Dýrmundsson
fv. landsmarkavörður.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Markaverðir 2018
Markaskrá Nafn Heimili Póstnr. Staður Sími Gsm Netfang
Landnám Ingólfs Arnarsonar Ólafur R Dýrmundsson Jóruseli 12 109 Reykjavík 841-1346 oldyrm@gmail.com
Borgarfjarðarsýsla Ingimundur Jónsson Deildartungu 1a 320 Reykholt í Borgarfirði 861-5171 zetorinn@visir.is
Mýrasýsla Þórir Finnsson Hóli 311 Borgarnes 435-0041
Snæfellsness- og Hnappadalssýsla Jónas Jóhannesson Jörfa 311 Borgarnes 435-6782 869-4584
Dalasýsla Arndís Erla Ólafsdóttir Ásgarðslandi 371 Búðardalur 434-1261 erla22@simnet.is
Vestfirðir - A.-Barð. Arnór Grímsson Arnórshúsi 380 Króksfjarðarnes 434-7763 896-7763 soleygv@simnet.is
Vestfirðir - V.-Barð. Barði Sveinsson Innri-Múla 451 Patreksfjörður 456-2019 innrimuli@simnet.is
Vestfirðir - Ís. Aðalsteinn L Valdimarsson Strandseljum 401 Ísafjörður 456-4812 alvald@snerpa.is
Vestfirðir - Str.s. Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir Lækjartúni 15 510 Hólmavík 451-3196 696-3196 hrafnh@snerpa.is
Húnavatnssýslur - V.-Hún. Eggert O Levy Garðavegi 12 530 Hvammstangi 451-2430
Húnavatnssýslur - A.-Hún. Jóhann Guðmundsson Holti 541 Blönduós 452-7127 861-5592 holtsvinadal@emax.is
Skagafjarðarsýsla Lilja Björg Ólafsdóttir Kárastöðum 551 Sauðárkrókur 453-6531
Eyjafjarðarsýsla Ólafur Geir Vagnsson Hlébergi 601 Akureyri 8943230 hleberg@simnet.is
S-Þingeyjarsýsla og Kelduneshreppur Sveinbjörn Þór Sigurðsson Buvellir 641 Húsavík 464-3546 898-8306 buvellir@simnet.is
N-Þingeyjarsýsla austan Jökulsár Árni Davíð Haraldsson Gunnarsstöðum 2 681 Þórshöfn 863-1265 arnihar@hotmail.com
Austurland - N.-Múl. Jón Víðir Einarsson Hvanná 1 701 Egilsstaðir 471-1052
Austurland - S.-Múl. Björn Björgvinsson Sólbakka 4 760 Breiðdalsvík 475-6643 893-1824 breiddal@simnet.is
A-Skaftafellssýsla Guðfinna Benediktsdóttir Volaseli 781 Höfn í Hornafirði 478-1713 895-0026
V-Skaftafellssýsla Jón Jónsson Prestsbakka 880 Kirkjubæjarklaustur 487-4754 891-6009 prestsb@talnet.is
Rangárvallasýsla Sigríður Helga Heiðmundsdóttir Kaldbak 851 Hella 4875133 8692042 kaldbakur@uppsveitir.is
Árnessýsla Loftur Þorsteinsson Ásastíg 10b 845 Flúðir 486-6715 863-7915 hannalb@simnet.is
Vestmannaeyjar Birgir Sigurjónsson Illugagötu 79 900 Vestmannaeyjar 481-2115
Skráning eyrnamarka og útgáfa markaskráa
23. febrúar síðastliðinn var
haldin Starfamessa í Háskóla
Akureyrar fyrir 9. og 10. bekkinga
á Eyjafjarðarsvæðinu. Sóttu vel
yfir 600 nemendur messuna í ár.
Á starfamessunni komu saman
fyrirtæki, framhaldsskólar og
háskólar af svæðinu til að kynna
fyrir krökkunum möguleika
og starfstækifæri sem bíða
þeirra. Lagt var upp með að
þeir sem væru að kynna hverja
atvinnugrein gætu svarað nokkrum
grundvallarspurningum um tiltekna
grein eins og vinnutíma, laun og
mögulegar menntunarkröfur.
Fyrir hönd bænda stóðu
Hermann Ingi Gunnarsson, bóndi í
Klauf, og Sara María Davíðsdóttir,
bóndi í Torfum, vaktina en
markmið þeirra var að vekja áhuga
nemendanna á starfi bóndans
og þeim störfum sem tengjast
þjónustugreinum landbúnaðarins.
Til gamans fengu krakkarnir að
smakka á kjarnfóðri, saltsteinum og
orkudrykk fyrir nýbærur og vakti
það mikla lukku. MS tók þátt í
kynningunni með þeim með því að
gefa nemendunum Hleðslu og má
segja að krökkunum hafi þótt hún
hvað einna best af þeim veitingum
sem bændurnir buðu upp á.
Starfamessa á Akureyri:
Bændur framtíðarinnar kynntu sér landbúnað
Sara María Davíðsdóttir bóndi í
Torfum.
Fjöldi 9. og 10. bekkinga mætti á
Starfamessu í Háskóla Akureyrar.
Lóð undir tjaldsvæði
á Norðurlandi
Óska eftir að taka á leigu landsvæði
til langs tíma í nálægð við þjóðveg 1
á Norðurlandi.
• Æskilegt er að stutt sé í rafmagn.
• Leigutaki mun kosta framkvæmdir
í samráði við landeiganda.
Tillögur óskast sendar á kolbeinn@gmail.com