Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
Á fundi fagráðs í hrossarækt
sem haldinn var 22. febrúar
var farið yfir reglur um
ræktunarbú ársins í hrossarækt,
sem er heiðursviðurkenning
Bændasamtaka Íslands. Þessar
reglur hafa verið að þróast á
síðastliðnum árum og verður sú
þróun kynnt hér, ásamt síðustu
breytingum.
Reglur um þessa viðurkenningu
hafa verið þannig að ræktunarbú
eða ræktendur sem rækta fjögur
hross og að lágmarki tvö með
fyrstu verðlaun sem sýnd eru á
árinu í fullnaðardóm koma til
álita. Upphaflega var reiknuð út
meðaleinkunn hrossanna eins
og hún kemur fyrir, meðalaldur
hrossanna og fjöldi; búunum raðað
upp eftir þessum þáttum og það bú
sem skorar hæst valið ræktunarbú
ársins. (Þegar talað er um bú hérna
er einnig átt við hópa af hrossum
frá ákveðnum ræktendum.)
Reglurnar hafa verið að þróast á
undanförnum árum en árið 2016 var
ákveðið að leiðrétta allar einkunnir
fyrir kyni og aldri líkt og gert er í
kynbótamatinu. Þetta er gert til að
gera einkunnir samanburðarhæfari
áður en búum er raðað upp eftir
meðaleinkunn. Svo er búunum raðað
upp eftir leiðréttri meðaleinkunn og
fjölda sýndra hrossa.
Þá var í fyrra ákveðið að breyta
því hvernig hross sem hljóta fyrstu
verðlaun eða heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi á búinu hafa áhrif á
niðurstöðu búsins til að tryggja að
þessi árangur hafi í öllum tilfellum
jákvæð áhrif á röðun búanna (sjá í
reglunum að neðan). Áður var það
til dæmis þannig að hryssa sem hlaut
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi bætti
einu fimm vetra hrossi með 8.00 í
aðaleinkunn við hópinn, en það gat
dregið meðaleinkunn búanna niður
í sumum tilvikum.
Öll hross með sama uppruna
Nú var ákveðið að skýra betur út
hvaða hópar hrossa liggja valinu
til grundvallar. Reglurnar hafa
verið þannig undanfarin ár að bæði
ræktunarbú eða aðilar (ræktendur)
hafa getað komist í pottinn ef þeir
sýna að lágmarki fjögur hross á
árinu og tvö í fyrstu verðlaun eins
og fyrr segir. Þannig hefur þetta
verið í bland ræktunarbú þar sem
öll hrossin eru frá sama uppruna,
ræktunarbú þar sem uppruni hrossa
er blandaður og einnig hópar hrossa
frá einstökum ræktendum þar sem
öll hrossin eru frá sama uppruna eða
fleirum en einum uppruna.
Nú var ákveðið að einfalda þetta
val og einskorða valið í framtíðinni
við ræktunarbú þar sem öll hrossin
sem mynda hópinn sem liggur
valinu til grundvallar þurfa að hafa
sama uppruna (upprunanúmer).
Tilgangur verðlaunanna er
fyrst og fremst að verðlauna
ræktunarárangur en þessi síðasta
breyting er gerð til að tryggja
að einnig sé verið að verðlauna
uppeldið og utanumhaldið um
hrossin; vegferðina frá hugmynd
að pörun til sýningar. Einnig var
þetta orðið fullflókin og mikil vinna
við valið þegar bæði þurfti að horfa
til uppruna og ræktenda og tryggja
að ekkert hross gleymdist. Enda
að verða flóknari mynd í seinni tíð
hvernig staðið er að skráningu á
uppruna og ræktendum.
Þessi nýja regla kemur ekki í
veg fyrir að til dæmis ræktendur
í þéttbýli geti verið verðlaunaðir,
enda er áfram horft til þéttbýlisstaða
sem uppruna og að sjálfsögðu til
ræktunarnafna. Það þótti sanngjarnt
og rétt að hafa tvær undantekningar
á þessari meginreglu:
Í fyrsta lagi má tengja saman
tvö upprunanúmer ef viðkomandi
ræktendur hafa flust búferlum. Þetta
er gert til þess að ræktendur þurfi
ekki að byrja á núllpunkti ef þeir
flytjast búferlum og kenna hross
sín við annan uppruna á einhverjum
tímapunkti. Einnig má tengja saman
tvö upprunanúmer ef ræktendur
rækta hross á tveimur jörðum
þegar um sama (eða sameiginlegan)
rekstur er að ræða. Til að Fagráð geti
tekið tillit til þannig aðstæðna var
ákveðið að þetta þurfi að tilkynna
fyrir 1. maí ár hvert.
Forval hrossa til dóms
Forval hrossa til dóms er töluvert
eins við þekkjum og nokkuð ljóst er
að ræktunarverðlaunin eins og þau
hafa verið auka heldur á það; þegar
ræktandi er búinn að sýna ákveðinn
hóp hrossa með góða meðaleinkunn
bíður hann í sumum tilvikum með
að sýna hross sem eru kannski alveg
tilbúin til dóms ef það er hætta á að
þau lækki meðaleinkunn hópsins.
Þessi verðlaun eru náttúrulega fyrst
og fremst hugsuð til að verðlauna
ræktendur sem skila hrossum til
dóms sem eru af miklum gæðum
og til þess fallinn að auka á
erfðaframfarir í stofninum. Þessi
verðlaun þurfa í raun ekki að velta
öðrum hrossum fyrir sér og því
síður að draga úr því að þau séu
sýnd. Af þessari ástæðu var ákveðið
að við útreikning á meðaleinkunn
búanna og samantekt á fjölda
hrossa yrði í framtíðinni eingöngu
horft til hrossa sem hlytu 8.00 í
aðaleinkunn þar sem búið væri
að leiðrétta fyrir aldri og kyni
(leiðréttri aðaleinkunn).
Þegar búið er að taka frá
hross sem ná ekki 8.00 í leiðréttri
aðaleinkunn, þá er búunum raða upp
eftir meðaleinkunn og fjölda á sama
hátt og gert er í dag.
Fólk getur skoðað hvernig
leiðréttingin er fyrir aldri og kyni í
kynbótamatinu en það kemur fram í
WorldFeng í flipanum Kynbótamat
sem er á grunnsíðu hvers hests en
þar er skjal sem heitir Alþjóðlegt
kynbótamat. Þar má sjá til dæmis
að fjögurra vetra hryssa með 7.80
og fjögurra vetra stóðhestur með
7.70 í aðaleinkunn eru með 8.00
í aðaleinkunn eftir leiðréttingu.
Þannig að þetta útilokar ekki
efnilegustu fjögurra vetra hrossin frá
útreikningnum. Aftur á móti er sex
vetra hryssa með 7.90 í aðaleinkunn
með 7.95 eftir leiðréttingu og yrði þá
ekki með í útreikningnum.
Þetta er jákvæð breyting og til
þess fallin að gera upp á milli búa á
grundvelli bestu hrossanna en draga
þau ekki niður fyrir að sýna hross af
ýmsum gerðum sem verðmætt er að
fá til dóms.
Skráning á uppruna og ræktanda
Tekið skal fram að reglan er sú að
skráning á uppruna og ræktanda (og
nafni hestsins) er ekki breytt eftir að
hrossið hefur hlotið dóm. Ræktendur
hafa því góðan tíma fram að sýningu
til að leiðrétta þessar skráningar. Það
er gott að hafa það í huga og þessari
reglu verður fylgt eftir í framtíðinni
og ekki síður en gert hefur verið
hingað til.
Í þeim mikla fjölda hrossa sem
eru í pottinum á hverju ári hefur
tímasetning á endanlegri skráningu
t.d. ræktanda vel getað hafa farið
framhjá Fagráði. Það er afar
óheppilegt þó að Fagráð sé ekki
að véfengja breytingar á þessum
skráningum enda þurfa þær í öllum
tilvikum að koma beint frá skráðum
ræktanda.
Þessar breytingar í heild sinni eru
vonandi til bóta, til þess fallnar að
skýra valið og fækka matskenndum
atriðum. Reglurnar í heild sinni eru
hér fyrir neðan.
Reglur um ræktunarbú ársins
Gögnin sem liggja til grundvallar
eru dómar allra fulldæmdra
hrossa á viðkomandi ári, sem eru
Ræktunarbú ársins í hrossarækt – breyttar reglur
HROSS&HESTAMENNSKA
Hafðu samband við sölumann í síma 590 5116 eða sendu línu á iab@klettur.is og kynntu þér þína möguleika.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Nú bjóðum við MultiOne 6.3 SD vélar á enn betra verði en áður og
með fleiri aukahluti innifalda. Um er að ræða frábærar fjölnotavélar
með 1200 kg lyftigetu.
Á MultiOne 6.3 SD situr stjórnandi í aftari hluta þessara lipru og
sveigjanlegu véla. Vélarnar afhendast með skóflu, aukaballest
að aftan og taðgreip.
Ný sending af MultiOne
6.3 SD fjölnotavélum
Oft veltir lítil vél þungu hlassi
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
Frá Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal 2016. Mynd/ghp