Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
fyrir stærri bleikju telur Ágúst vera
þá að hún sé auðveldari og fljótlegri
í vinnslu en minni bleikjan. Hann
segist þó ekki vita nákvæmlega hvar
skynsamleg mörk liggi varðandi
mögulega eldisstærð bleikjunnar.
Þá útheimti slíkt mikið eftirlit og
vandvirkni við fóðrun.
Mjög góð nýting á fóðrinu frá
Fóðurblöndunni
Á undanförnum árum hefur
Fjallableikja náð miklum árangri
í fóðurnýtingu. Er nú svo komið
að rétt rúm 1.000 grömm
af fóðri eru að skila einu
kílói af fiski í stöðinni, sem
þykir mjög gott, ekki síst í
ljósi þess að fóðurstuðull
Atlantshafslax er talinn
vera 1,3 eða 1.300 grömm
af fóðri á móti hverju kg
sem framleitt er af laxi.
Guðmundur Adólfsson
segir að þennan árangur
megi ekki síst þakka mjög
góðu fóðri með hentugri
efnasamsetningu.
„Við kaupum allt fóður hjá
Fóðurblöndunni, sem hefur staðið
sig afar vel,“ segir Guðmundur.
Bleikjunni er slátrað og hún
slægð í stöðinni á Hallkelshólum.
Þaðan er bleikjan flutt í fullkomið
vinnsluhús Fjallableikju að
Eyrartröð í Hafnarfirði. Þar er
hún flökuð, snyrt og beinhreinsuð
og síðan flutt ýmist til íslenskra
kaupenda eða beint í flug til útlanda.
Stærsti hluti matfisksins frá
stöðinni fer á innanlandsmarkað,
til dæmis til Fjarðarkaupa,
Bónusverslana, fiskbúðarinnar
Vegamóta Seltjarnarnesi,
Fiskbúðarinnar Sundlaugavegi og
Fiskbúð Hólmgeirs Mjódd. Einnig
fer drjúgur hluti til Opal Sjávarfangs
ehf., Matvex í Hafnarfirði, Reykhóla
og fleiri matvælafyrirtækja. Þau
selja bleikjuna síðan frá sér í
neytendaumbúðum í ýmsu formi
sem ferska, reykta eða grafna. Þá
er einnig selt til betri veitingastaða
sem eru í föstum viðskiptum.
Matvex hlaut gullverðlaun
fyrir grafna og reykgrafna
Fjallableikju
Sem dæmi um góðan árangur má
nefna gott samstarf Fjallableikju
við matvælafyrirtækið Matvex í
Dalshrauni 14 í Hafnarfirði. Það
fyrirtæki er í eigu feðganna Páls
Aðalsteinssonar, margverðlaunaðs
kjötiðnaðarmanns, og sonar
hans Aðalsteins Sesars sem
er framkvæmdastjórinn. Páll,
sem státar af heilum vegg af
viðurkenningarskjölum og verð-
launagripum fyrir afurðir sem hann
hefur framleitt, segir að þeir hafi til
gamans sent grafna og reykgrafna
bleikju úr fiski frá Fjallableikju
inn í fagkeppni Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna (MFK) sem
haldin var 8. og 9. mars. Þar fengu
báðir vöruflokkarnir gullverðlaun
sem afbragðsvara.
Aðalsteinn stofnaði Matvex ehf. í
ágúst 2012, þá aðeins 19 ára gamall
nemandi í Verslunarskóla Íslands.
„Ég fór að selja bleikju frá
Fjallableikju og það hlóð smám
saman utan á sig,“ segir Aðalsteinn.
„Við fórum svo að framleiða
ýmsa rétti, þar á meðal kjúklinga-
lasagna, tortillur, pastarétti og fleira.
Árið 2015 var ákvörðun tekin um að
Páll faðir minn hætti í Kjötbankanum
þar sem hann hafði starfað og kæmi
alfarið inn í þennan rekstur með mér.
Þá breyttist starfsemin á þann hátt
að við fórum að selja hráefni og
fullunnar samsettar vörur í mötuneyti
og skóla. Það er alls konar matur.“
Nú er Matvex að þjónusta mörg
af stærstu fyrirtækjum landsins og
marga af stærstu skólunum líka.
„Við leggjum mikið upp úr
vandvirkni og að geta afhent vöruna
á réttum tíma. Einnig að varan sé þá
nákvæmlega í því ástandi sem beðið
er um. Héðan fara bílar frá okkur
með vörur klukkan sjö á morgnana
og eru komnir á áfangastaði á
höfuðborgarsvæðinu áður en
mesta umferðin byrjar. Þetta kunna
viðskiptavinir okkar vel að meta,“
segir Aðalsteinn.
Afskaplega stoltir af bleikjunni
„Við erum afskaplega stoltir
af bleikjunni sem við erum að
framleiða, sem er eingöngu frá
Fjallbleikju. Það er auðvelt að
framleiða góða vöru úr svo frábæru
hráefni sem við fáum frá þaðan,“
segir Páll.
Aðalsteinn tekur undir það og
segir að nú séu grafna og reykta
bleikjan einhverjir alvinsælustu
réttirnir í jólakörfunum sem þeir
útbúi á hverju ári í stórum stíl.
„Við getum því verið mjög stoltir
af þessu hráefni sem við erum að
vinna með,“ segir Páll.
Rétt er að halda því til haga að
þótt þessar vörur Matvex hafi þarna
fengið mikinn gullgæðastimpil hjá
dómurum MFK urðu þær samt ekki
hlutskarpastar þegar gert var upp á
milli gullverðlaunahafanna í flokki
þeirra sem skiluðu inn afurðum sem
unnar voru úr silungi. Eins og fram
kemur í umfjöllun um keppnina á
öðrum stað í blaðinu varð Hjörtur
Jóhannesson í Kjarnafæði þar
hlutskarpastur með sinn reykta
silung.
Þó umfangið sé mikið hjá Matvex
er yfirbyggingin ekki mikil og dags
daglega eru þeir feðgar oftar en ekki
aðeins tveir að störfum. Segja þeir
að aðrir fjölskyldumeðlimir séu
einfaldlega kallaðir til þegar mikið
liggur við og aukafólk að auki þegar
mest er að gera.
Hafa þeir komið sér upp mjög
góðri aðstöðu í Dalshrauninu og
hafa meistarakokkar m.a. fengið
að nýta sér hana við að undirbúa
keppnisþátttöku úti í heimi. Vegna
vaxandi umfangs telja þeir þó að
það styttist í að þeir þurfi að stækka
við sig. Eru þeir því farnir að líta
hýru auga á sambyggt húsnæði
Trésmiðjunar Gosa.
Kælingin lykilatriði í vinnslunni
Þegar Bændablaðið leitt inn hjá
fiskvinnslu Fjallableikju í Hafnarfirði
var Jónas Stefánsson með hinum
fasta starfsmannakjarna að ljúka
við snyrtingu og beinhreinsun á
bleikjuflökum sem voru á leið til
viðskiptavina. Sagði Jónas að þótt
leyfi væri fyrir vinnslu á hvers konar
fiskafurðum í húsinu sinntu þeir þar
eingöngu vinnslu á bleikju.
„Frá því að við hófum þessa
starfsemi hér á Eyrartröð í
Hafnarfirði 2016 hefur það verið
grundvallaratriði hjá okkur að vera
með kælinguna eins neðarlega og
mögulegt er. Ég hafði það þá strax
sem markmið að kælirinn færi aldrei
yfir 2 gráður. Það var síðan tekið upp
í reglugerð Matvælastofnunar ári
seinna, en áður var leyfilegt að vera
með hitastigið á bilinu 0 til 4 gráður.
Þetta lága hitastig hjá okkur er stór
þáttur í því hvað afurðirnar okkar
eru ferskar og eru oftast einungis
tveggja daga gamlar þegar þær eru
komnar á áfangastað til kaupenda.
Hiti og súrefni er það sem veldur
mesta vandanum við meðhöndlun
á fiski. Gerlaflóran vex hratt með
auknum hita.
Þetta er lítil vinnsla og við erum
ekki að keppast við að koma miklu
magni í gegn, heldur leggjum við
ofuráherslu á að halda gæðunum á
bleikjunni ávallt í hámarki,“ segir
Jónas.
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
TRAKTOR
SEM LÉTTIR ÞÉR STÖRFIN
GRZZLY 700 EPS MEÐ TRAKTORSSKRÁNINGU
Ný útgáfa með dráttarspili, LED ljósum og
26“ dekkjum. Aukin burðargeta og lækkaður
þyngdarpunktur gerir gott hjól enn betra.
TILBOÐSVERÐ KR. 2.190.000,- M/VSK.
Einnig fáanlegt með aukasæti og innbyggðum
farangurskassa. TILBOÐSVERÐ KR. 2.240.000,- M/VSK.
VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA!
Tímapantanir í síma 540 4980
Vinnuþjarkur!
Hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 540 4980 til að
fá frekari upplýsingar.