Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 12. apríl
Sandblásturskassi m/ryksugu
2 stærðir
Verð frá 361.900 + vsk
Hobby Sandblásturskassi m/ryksugu
Verð 146.900 + vsk
Hobby Borð-Sandblásturskassi
Verð 39.320 + vsk
Sandblásturskútur
38L
Verð 39.320 + vsk
Sandblásturskútur m/ryksugu
80L
Verð 53.200 + vsk
Verkfæraskápur m/205 verkfærum
Verð 99.900 + vsk
Þvottakör
3 stærðir
Verð frá 8.900 + vsk
Ultrasonic Cleaner
36L
Verð 199.900 + vsk
HREINSIEFNI
SANDBLÁSTURSSANDUR
VÉLAHLUTAÞVOTTAVÉLAR
HÁÞRÝSTIDÆLUR
DÆLUR
O.m.fl.
SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA
Aðalfundur og árshátíð
Landssambands kúabænda 2018
verða haldin dagana 6.–7. apríl á Hótel Selfossi. Hefðbundin aðalfundarstörf verða á
föstudags morgninum en eftir hádegi hefst Fagþing nautgriparæktarinnar. Laugardags-
kvöldið 7. apríl verður árshátíð LK þar sem kúabændur og velunnarar munu gleðjast og
skemmta sér saman.
Dagskrá Fagþings nautgriparæktarinnar
Frá heimsráðstefnunni um búfjárkynbætur - Yfirlit nýlokinna verkefna og í vinnslu
Losun gróðurhúsalofttegunda - Erfðamengisúrval, staða verkefnisins og næstu skref
Mælidagalíkan fyrir íslenska kúastofninn - SpermVital: fyrstu tölur um notkun og árangur
Hagrænt vægi eiginleika - Losun gróðurhúsalofttegunda
Árshátíð LK á Hótel Selfossi laugardaginn 7. apríl
Húsið opnar kl. 19:00.
Forréttur: Humarsúpa með humarhölum, hvítsúkkulaðirjóma og dill.
Aðalréttur: Íslensk nautalund með sveppa pomme anna, haricot vert og rauðvínssósu.
Eftirréttur: Heit súkkulaðikaka með vanilluís og ávöxtum.
• Óvænt skemmtiatriði.
• Hljómsveit Hússins heldur uppi fjörinu fram eftir nóttu.
Miðaverð er 7.900 kr. fyrir félaga LK og 8.900 fyrir aðra. Miðapantanir í síma 460 4477.
Tekin hafa verið frá herbergi á Hótel Selfossi í síma 480 2500. Taka þarf fram við pöntun
að viðkomandi sé á vegum LK. Vegna mikillar ásóknar í gistirými er árshátíðargestum
bent á að hafa hraðar hendur við að panta gistingu.
Bráðungir skólastjórar
Þeir hafa stundum verið
nokkuð ungir skólastjórarnir
sem ráðnir hafa verið í þær
miklu ábyrgðarstöður á Íslandi.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
er yngsti starfandi skólastjórinn
á landinu í dag líklega aðeins 34
ára að aldri.
Í síðasta Bændablaði var frétt
um að Sigursveinn Sigurðarson,
kennari við Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi, hefði verið
ráðinn skólameistari í eitt ár við
skólann, frá 1. ágúst 2018 til 1. ágúst
2019. Í fréttinni var einnig sagt að
Sigursveinn væri mjög líklega yngsti
skólastjóri landsins, ekki nema 38 ára.
Sveinn Runólfsson, fyrrverandi
landgræðslustjóri, sendi Bænda-
blaðinu til gamans viðbótar
upplýsingar um unga skólastjóra,
en Sigursveinn er reyndar frændi
hans.
Benti Sveinn á að sonur hans,
Sæmundur Sveinsson, er nú rektor
Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann
er fæddur 29. ágúst 1984 og því
aðeins 34 ára að aldri. Vert er líka
að minnast á að afi hans, Runólfur,
var aðeins 27 ára þegar hann varð
skólastjóri á Hvanneyri og langafi
hans Halldór var 32 ára þegar hann
varð skólastjóri í sama skóla.
/HKr.
Umræddir bráðungu skólastjórar. Vinstra megin er Sigursveinn Sigurðarson
og hægra megin Sæmundur Sveinsson.
Landbúnaðarsafn Íslands hefur notið gjafmildi félaga í Fergusonfélaginu.
Talið frá vinstri: Þór Marteinsson, Ragnhildur H. Jónsdóttir, Sigurður
Skarphéðinsson og Bjarni Guðmundsson.
Fergusonfélagið styrkir varðveislu
gamalla landbúnaðartækja
Fergusonfélagið hefur á undan-
förnum árum veitt söfnum
víða um land styrki til að
standa að varðveislu gamalla
landbúnaðavéla.
Fergusonfélagið er áhugamanna-
félag um gamlar landbúnaðarvélar,
fjöldi félagsmanna telur nú 255 sem
dreifist jafnt um landið. Félagið er
10 ára gamalt, var stofnað á jólaföstu
2007. Á þessu tímabili, m.a. af
hagnaði af sölu á bolum, húfum og
könnum með merki félagsins, hefur
það veitt nokkra styrki til safna sem
varðveita gamlar landbúnaðarvélar.
Á síðasta ári var Samgöngu-
minjasafninu á Ystafelli í Köldukinn
veittur 350.000 króna styrkur.
Áður hafði Landbúnaðarsafnið á
Hvanneyri fengið samskonar styrk
frá félaginu og að auki færðar
vélar sem Fergusonfélagið tók þátt
í kostnaði við uppgerð.
Má í því sambandi nefna
afturenda af gömlum Ferguson
sem hafði verið settur á gluggi, til
að sýna hvernig vökvakerfið sem
Harry Ferguson fann upp vinnur,
en sú uppfinning olli byltingu í
jarðvinnslu fyrir 80 árum síðan,
einnig færði félagið safninu
kartöfluupptökuvél.
Á aðalfundi félagsins sem haldinn
var þriðjudaginn 6. febrúar var
samþykkt að veita Búminjasafninu
í Lindabæ í Sæmundarhlíð 300.000
kr. styrk í viðurkenningarskyni
fyrir frábært starf þeirra hjóna
Helgu Stefánsdóttur og Sigmars
Jóhannssonar við uppbyggingu
safnsins og varðveislu gamalla véla
og muna er tengjast landbúnaði.
Norðurál kaupir nýjan sorptroðara
Norðurál bs. sem rekur urðunar-
staðinn Stekkjarvík við Blönduós
fékk afhentan nýjan sorptroðara
í lok febrúar.
Troðarinn er af gerðinni Bomag
BC772 RS-4 og er tæp 40 tonn að
þyngd. Í honum er mótor af gerðinni
Mercedes Benz, OM471LA.
340kw. Hann er með sérstökum
troðarahjólum með ásoðnum
göddum og skóflugálga eins og á
hjólaskólfum með hleðsluhæð 3,25
m og 4,5 rúmmetra skóflu.
Innkaupsverð á troðaranum
er tæpar 52 milljónir án
virðisaukaskatts. Tækið er keypt
í gegnum Vélafl ehf. sem er
umboðsaðili fyrir Bomag á Íslandi.
Með nýjum sorptroðara aukast
afköst við móttöku á sorpi og betri
þjöppun næst á urðunarreinar. Þetta
kemur fram á vefnum huni.is. /MÞÞ
Þórðarson.