Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
starfsmenn sinna mjög afmörkuðum
sviðum,“ segir Meri.
Lærdómsríkt Búnaðarþing 2018
„Það var mjög mikilvægt fyrir
mig að koma til Íslands núna
á Búnaðarþingi og sjá hvernig
vinnan á því fer fram. Finnar
geta lært ýmislegt af því. Ég var
mjög hrifin af því hversu mikill
hluti starfsins á þinginu á sér
stað í samvinnu þingfulltrúanna
– og reyndar ekki bara á þinginu
heldur líka undirbúningsvinna fyrir
þingið, áður en málin eru lögð
fram,“ segir Meri full aðdáunar.
Hún hvetur líka Íslendinga til að
standa í fæturna varðandi viðbrögð í
svokölluðu hráakjötsmáli – í kjölfar
EFTA-dómsins frá því nóvember
síðastliðnum.
„Ef þessi dómur nær óbreyttur
fram að ganga þá er verið að stofna
í hættu einhverju sem er svo sérstakt
að það verður að vernda – og þá er
ég að tala um íslenska búféð og
sjúkdómastöðuna á Íslandi.
Ef ég mætti nefna eitt sem ég
myndi vilja færa frá Finnland
og yfir til Íslands, hvað varðar
bændur og landbúnaðinn, þá væri
það finnska afleysingakerfið. Ekki
óbreytt, heldur aðlagað íslenskum
aðstæðum.
Það skiptir gríðarlega miklu máli
fyrir bændur að geta átt frí annað
slagið og búið við öruggi ef veikindi
koma upp.
Afleysingakerfið eykur lífsgæði
bænda, það er ekki spurning, en
um leið gefur það nemendum og
tilvonandi bændum frábært tækifæri
til að kynnast fjölbreyttum búskap
og starfsaðferðum,“ segir Meri
þegar hún er spurð um það sem
Íslendingar geti lært af finnskum
starfssystkinum sínum. /smh
ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR, FATASKÁPAR & RENNIHURÐIR
HÁGÆÐA DANSKAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
OPIÐ:
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM VÖNDUÐ GÆÐAVARAGOTT SKIPULAG
Mynd / Úr einkasafni
Mynd / TB
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað
kemur út
12. apríl