Bændablaðið - 22.03.2018, Qupperneq 36

Bændablaðið - 22.03.2018, Qupperneq 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018 „Þetta heppnaðist ágætlega sem fyrsti viðburður. Við náðum 12 tækjum inn, gerðum við fimm og fimm eru í vinnslu vegna aukahluta, en tvö voru dæmd óviðgerðarhæf,“ segir Hólmar Svansson, einn af forsprökkum Restart vinnustofu sem sett var upp á Akureyri í liðinni viku. Það var í fyrsta sinn hér á landi sem slík vinnustofa var haldin. Hólmar segir að viðburðir sem þessi hafi verið að ryðja sér til rúms að undanförnu á meginlandi Evrópu og í Bretlandi. „Þetta er vinnustofa þar sem fólk getur komið með biluð rafmagns- og rafeindatæki og fengið leiðbeiningar sérhæfðra sjálfboðaliðið Restart vinnustofuna um hvernig það sjálft getur lagfært tækin. Markmiðið er að lengja líftíma raftækja og sporna gegn ótímabærri sóun, en raftækjaúrgangur fer hratt vaxandi á þeirri tækniöld sem við lifum,“ segir hann. Vinnustofan og þjónusta Restart er öllum opin og ókeypis en að því er stefnt að slíkur viðburður verði mánaðarlega. Sá næsti verður eftir páska, 11. apríl næstkomandi og er í FabLab stofu Verkmenntaskólans á Akureyri líkt og sá fyrsti. Verkefnið er algerlega rekið á góðgerðarformi hérlendis líkt og erlendis en nýtur stuðnings frá áhugasömum fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum sem líta jákvætt til áhrifa þess. Umhverfisumhyggja, lærdómur og skemmtun Fyrirmynd viðburðarins hér á landi er Restart Project verkefnið í Bretlandi og víða um Evrópu. Vinnu- stofurnar eru opnar í þrjár klukkustundir í senn og þar eru sjálfboðaliðar með tæknilega reynslu á raftækjasviðinu sem taka á móti og hjálpa samborgurum sínum að viðhalda smáum sem stærri raftækjum. Hólmar segir að með þessu starfi vinnist margt, nærtækast sé að nefna umhverfisáhrifin en sem dæmi tvöfaldaðist magn raftækjasorps í heiminum á árunum 2009-2014 og hefur stóraukist síðan þá. Í öðru lagi læra gestir að gera sjálfir við einfaldar bilanir og síðast en ekki síst hafa vinnustofurnar reynst skemmtilegar uppákomur og eflt baráttuanda fólks sem lætur sig umhverfismál varða. Líkt og annars staðar vaknaði áhugi á þessu verkefni hér á landi og hafa sjálfboðaliðar á tæknisviðinu boðið fram aðstoð sína, auk fyrirtækja sem hafa stutt verkefnið. Þarf ekki alltaf að kaupa nýtt Hólmar segir stefnt að því að Restart vinnustofurnar verði einu sinni í mánuði en reynslan erlendis hefur einmitt sýnt að fólk kemur gjarnan tvisvar með hvert bilað tæki; fær greiningu og ráðgjöf í fyrri heimsókninni og stundum leiðbeiningar um kaup á varahlutum. Í seinna skiptið er svo gert við. Það þurfi nefnilega ekki alltaf að kaupa nýtt tæki. Hann hvetur þá sem fengið hafa nóg af lélegri endingu tækja og búnaðar, eiga rafmagnstæki sem þarfnast aðhlynningar og langar að læra að gera við til að mæta með tæki sín í næstu Restart vinnustofu sem verður í FabLab- stofu Verkmenntaskólans á Akureyri miðvikudaginn 11. apríl frá klukkan 17-20. „Það væri svo mjög gaman að sjá fleiri sjálfboðaliða taka upp þetta verkefni á öðrum stöðum á landinu,“ segir Hólmar. /MÞÞ Raftækjaúrgangur fer hratt vaxandi á tækniöld en viðgerðabylting er á Akureyri í formi Restart vinnustofu: Markmiðið að lengja líftíma raftækja og sporna gegn ótímabærri sóun Aðstandendur Restart vinnustofunnar, Guðmundur Geirsson fremstur, Jón Þór Sigurðsson, stjórnandi Fab lab, Ólafur Pálmi Guðnason og Hólmar Svansson en á myndina vantar Rut Konráðsdóttur. Góð þjónusta á Restart vinnustofunni. Guðmundur Geirsson býður Eyrúnu Ingvadóttur, einum þátttakenda, upp á gleraugu svo hún sjái betur við hvað er að fást. Agnes Erla Hólmarsdóttir að glíma við tengingar. Guðmundur Baldvin, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar, kom og hafði augljóslega gaman af. Frosti var á meðal þátttakenda og naut liðsinnis Guðmundar Geirssonar sjálfboðaliða. Óli Pálmi að glíma við einkatölvu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.