Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Síða 14
19. og síðasta þing fagfélagsins LSS haldið dagana
3.4. og 5. apríl sl. að Grettisgötu 89 (húsi BSRB)
Fjöldi mála var til umfjöllunar og af-
greiðslu á þinginu.
Við setningu þingsins voru m.a.
mætt félagsmálaráðherra Jóhanna
Sigurðardóttir, brunamálastjóri Berg-
steinn Gissurarson, slökkviliðstjórinn
í Reykjavík Hrólfur Jónsson og frá
Reykjavíkurflugvelli Birgir Ólafsson.
Þingið sátu a.m.k. 47 aðilar þar af 34
aðalfulltrúar víðsvegar að af landinu.
Stærstu ákvarðanir þingsins voru að
samtökunum skyldi umbreytt þannig
að það starfaði jafnhliða að fag- og
kjaramálum. Einnig voru samþykkt
drög að lögum nýs stéttarfélags, sem
tillaga inn á stofnfund stéttarfélags.
Þingið samþykkti að bæta við starf-
semi félagsins þeim þætti er lýtur að
kjaramálum. Þannig samþykkti þingið
með öllum greiddum atkvæðum að
umbreyta fagfélaginu LSS yfir í stétt-
arfélag. Samkvæmt lögum sambands-
ins þurfti síðan að bera ofangreinda
samþykkt undir allsherjaratkvæða-
greiðslu til staðfestingar.
Niðurstaða allsherjaratkvæða-
greiðslunnar var eftirfarandi:
Á kjörskrá voru 789 félagsmenn,
þ.a. greiddu atkvæði 556/71,2%
JÁ sögðu 526 eða 94,6%
NEI sögðu 22 eða 4,0%
AUÐIR seðlar 8 eða 1,4%
Með niðurstöðu atkvæðagreiðsl-
unnar samþykktu félagsmenn að
leggja niður fagfélagið og að stofnað
skyldi stéttarfélag.
Fyrsta stjórn stéttar-
félags Landssambands
slökkviliðsmanna
Neðri röð frá vinstri:
Magnús Magnússon ritari frá Sand-
gerði, Snorri Baldursson varaformað-
ur LSS frá Hveragerði, Guðmundur
Vignir Óskarsson formaður LSS frá
Reykjavík og Guðmann Friðgeirsson
gjaldkeri frá Reykjavíkurflugvelli.
Aftari röð frá vinstri:
Einar M. Einarsson frá Keflavíkur-
flugvelli, Kristján Pétursson frá
Brunavörnum Arnessýslu, Jón H.
Guðmundsson Reykjavík, Viðar Þor-
leifsson Akureyri í varastjórn og Rún-
ar Helgason einnig í varastjórn.
14
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN