Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Page 28

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Page 28
Eiturefnaflutningar, eftirlit og viðbrögð Úrbóta er þörf Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri í Reykjavík reifar hugmyndir hvað þetta varðar Þar sem nær öll eiturefni flytjast til landsins með skipum, leggjum við til að IMO CODE verði lagður til grundvall- ar hvað varðar merkingu og flokkun efna á landi ístað þess að fara að taka upp erlend merkingakerfí, sem gilda á landi en þau eru margskonar. Framkvæmd verði með þeim hætti að skipum sem eru með IMO flokkaða vöru(eiturefni) verði gert skylt að tilkynna það til hafnsögumanns. Hann tekur við upp- lýsingum og kemur þeim til slökkvi- liðs: UN númer, magn, komutími skips. Slökkviliðið metur hvaða aðgerða sé þörf. 1. Engra aðgerða er þörf. 2. Eftir uppskipun skal vörunni kom- ið fyrir á sérstöku svæði þar til hún verður sótt af eiganda, jafnframt því sem hún skal merkt af slökkvi- liði með viðeigandi merkingu. Gámur, umbúðir. 3. Við uppskipun skal vera vakt frá slökkviliði. Varan skal merkt af slökkviliði og flutt tafarlaust til við- takanda í fylgd slökkviliðs. Jafn- framt þessu skal slökkviliðið halda skrá yfir innflutt eiturefni magn og í þeim tilvikum þar sem farga þarf efninu eftir notkun skal það kann- að annað slagið hvað um efnin hef- ur orðið. Þetta mætti gera í sam- vinnu við Sorpu. Rök sem mæla með því að slökkvi- liðið geri þetta eru fyrst og fremst þau að verði slys með þau bregst það við. Með þessu móti gefst tími til að fara yfir viðbrögð áður en flutningur fer fram. Slökkviliðið fær vitneskju um hvar efnin er að finna gagnvart elds- voða og þekking á meðferð efnanna í slysatilviki verður örugglega til staðar. Kostnaður verður í lágmarki og færist á viðkomandi innflytjanda sem reikn- ingur frá slökkviliðinu. Fyrir því er löng hefð t.d. við sprengiefnaflutning og innflutning á gasi svo dæmi séu nefnd. Ef undanbrögð yrðu á framkvæmd reglna af hálfu innflutningsaðila þá yrði það lögreglu að grípa í taumana. Að öðru leiti sé ég ekki nauðsyn á að hún komi inn. Með auðveldum hætti er hægt að flokka allar hafnir landsins t.d. í þrjú þrep. Höfn sem lenti í þriðja þrepi mætti ekki taka á móti eiturefnum nema gera sérstakar ráðstafanir þar sem búnaður hjá viðkomandi slökkvi- liði er ekki fyrir hendi. Höfn í öðru þrepi mætti taka á móti efnum að ákveðnu marki enda væri fyrir hendi hjá viðkomandi slökkviliði ákveðinn skilgreindur búnaður til að takast á við eiturefnaslys. Til að komast í fyrsta þrep þyrfti að vera til staðar fullkominn búnaður og sérfræðiþekk- ing. Með þessu móti ætti að vera hægt að leysa þessi mál með auðveldum og skilvirkum hætti fyrir allt landið. Ef það er hagkvæmt að skipa upp eitur- efnum í flokki eitt, í höfn sem aðeins uppfyllir flokk tvö, er auðvelt að leysa það með því að slökkviliðið sem væri næst viðkomandi höfn legði til búnað og mannskap tímabundið. Hvernig snýr flutningur hættulegra efna að slökkviliði og þá slökkviliði Reykjavíkur? Þetta er sú spurning sem ég ætla að reyna að gera grein fyrir hér. Hvað varðar eiturefni og hættuleg efni þá er hvergi getið um hlutverk slökkviliða gagnvart slysi nema í al- mannavarnaskipulagi Reykjavíkur- borgar. Þar segir að ef mengunarslys verður í slíku umfangi að almanna- varnaástand skapast skal slökkvilið sjá um að stöðva útbreiðslu mengunar- innar eftir því sem kostur er og hreinsa efnið upp. Það er hins vegar ljóst að mengandi og eitruð efni eru oft einnig eldfim. Oft á tíðum verða efni líka eitruð eða mengandi við bruna. Segjum að lítill sendibíll aki á olíu- bíl á leið austur fyrir fjall með þeim afleiðingum að gat kemur á tank hans. Bensín flæðir út án þess þó að 28 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.