Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Side 38
Frá golfmótinu á Akranesi í fyrra. Mælt út hver komst nœst holu nr. 5.
íslandsmót LSS í golfi að Flúðum
Við viljum hvetja alla slökkviliðs-
menn til að mæta á Islandsmót slökkvi-
liðsmanna í golfí sem haldið verður að
Flúðum 29. ágúst 1992 kl. 10.°°. Farið
er fram á við fólk að það hafi með sér
golfsettin og góða skapið. Þá er það
næsta víst að við komum til með að eiga
góða helgi í góðum félagsskap.
Þeir sem hafa þátttökurétt eru:
1. Félagar í LSS.
2. Fyrrverandi slökkviliðsmenn sem
starfað hafa í 10 ár eða lengur.
3. Allir slökkviliðsmenn sem komnir
eru á eftirlaun.
Fyrirkomulag keppninnar
1. Höggleikir einstaklinga með for-
gjöf samkv. reglum St. Andrews.
2. Liðakeppni. Liðin þurfa að skipa
lágmark 3 menn, þ.e. 3 bestu í
hverri sveit telja.
3. a. Fámenn slökkvilið geta sameinast
um eina sveit til að ná tölunni 3.
b. Eiginkonur slökkviliðsmanna
geta einnig fyllt upp í lið til að ná
tölunni 3.
Þá skal á það bent að hægt er að
njóta ýmisskonar útivistar að Flúðum
og nágrenni. Þeir sem áhuga hafa á
því er bent á að panta sér gistingu í
tíma, þar sem mikil aðsókn er í
gistrými það sem fyrir hendi er á
Flúðum. Nú, eða taka bara með sér
tjald eða tjaldvagn og eyða góðri helgi
í góðum félagsskap.
Allir velkomnir
Kraftsmót
Félag slökkviliðsmanna á Reykjarvíkurflugvelli
stóð fyrir innanhúsknattspyrnumóti atvinnu-
slökkviliða, þann 25. apríl s.l. í Digranesskóla.
Átta lið mættu til leiks, og voru þau Reykjavík a og b,
Reykjavíkurflugvöllur, Hafnarfjörður a og b, Keflavík
og Keflavíkurflugvöllur a og b. Þessi mót eru mjög sterk
og er mikið kapp í leikmönnum. A lið Keflavíkurvallar
sem varð í fyrsta sæti og a lið Reykjavíkur sem varð í
öðru sæti hafa staðið uppúr á þessum mótum en b lið
Hafnfirðinga sem lenti í fjórða sæti hefur sótt mjög á og
er til alls líklegt í haust. í þriðja sæti lenti b lið Reykja-
víkur.
Eftir mótið var mönnum boðið í Flugröst, félags-
heimili Flugmálastjórnar, þar sem verðlaunaafhending
fór fram og til þess var mættur Björn Erlingsson frá
Krafti h.f. umboðsaðila MAN slökkvibifreiða. Léttar
veitingar voru á borðum fram eftir kvöldi.
Mikill hugur er í mönnum að fá Akureyringa til þess
að halda utanhússmót í haust norðan heiða.
Sjáumst á vellinum.
38
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN