Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Page 53
verður „rafbruni" sem þarfnast sér-
stakrar meðferðar. Loks eru áverkar
sem hljótast af völdum sýru, basa og
annarra ertandi efna s.k. „kemiskir
brunar“.
Mikilvægt er að vita hvort slysið
varð innan- eða utanhúss og hvort um
sprengingu var að ræða eða ekki.
Segja má að fyrsta meðferð á slys-
stað sé alltaf kalt vatn. Kæla ber
þannig að sjúklingnum líði vel þ.e.
ekki svo mikið að honum verði kalt
en þó það mikið að verkir hverfi. Best
er að nota rennandi vatn. Ef farið er
eftir áverkaflokkun þá mikilvægast að
skola með köldu rennandi vatni alla
kemiska bruna, loga bruna, bruna af
Fullþykktar og hlutþykktar bruni eftir
rafstraum (háspennu). Straumur fór
inn fyrir ofan gagnauga og út um öxl.
völdum heitra fastra efna og bruna af
völdum heitra vökva. Minna atriði er
að kæla rafbruna nema um sé að ræða
ljósbogabruna.
Oftast eru brunar af völdum opins
elds og snertingu við heita hluti, dýpri
og alvarlegri en brunar af völdum
heitra vökva. Ef sjúklingur hefur hlot-
ið brunaáverka innanhúss eða ef um
sprengingu hefur verið að ræða, má
auk yfirborðsáverka á húð, reikna
með brunaáverka í öndunarfærum.
Mjög mikilvægt er að hefja strax skol-
un með vatni eftir áverka af völdum
sýru, basa eða annarra ertandi efna,
en eyða ekki dýrmætum tíma í leit að
mótefni, enda oftast ómögulegt að
skammta slíkt svo gagn sé að. Hafa
ber í huga að rafbrunar geta haft áhrif
m - íf i ■ . V
m v •_ '.1, V -;l
Hlutþykktar bruni á öllum líkamanum eftir stríðsgös (sinnepsgas). Fórnarlamb
úr stríði milli Iran og Irak. Kemiskur bruni.
Fullþykktar bruni eftir snertingu við heitan málm. Sjúklingur sofnaði upp við
gufubaðseliment.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
53