Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Síða 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Síða 7
Eðlilega var svo rætt um málefni fatlaðra vítt og breitt og formaður bandalagsins þakkaði vel fyrir það tækifæri sem hér gæfist til skoðanaskipta. Síðan var haldið rakleitt í Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki þar sem okkur var vel fagnað af þeim Önnu Dóru Antonsdóttur sérkenn- ara og Gunnlaugu Hart- mannsdóttur sérkennara. Þær greindu okkur frá námsbraut fyrir fatlaða nemendur, þriggja anna braut, sem nefndist atvinnu- lífsbraut. Þær sögðu fjár- magn sótt í sérkennslusjóð ráðuneytis og þar væri ekki á vísan að róa með ákveðið fjármagn sem þyrfti í raun en í þennan sjóð sæktu hinir ýmsu skólar sem vildu taka upp sérkennslu af einhverju tagi og væri gott samstarf milli þessara skóla og m.a. árlegir fundir um framkvæmdogfyrirkomulag. Námið er eftir sérsaminni eigin námsskrá og skiptist í skólakjama og starfsnám á vinnustað, en markmiðið með starfsnámi þessu er að nemendur fari út á almennan vinnumarkað. A vinnustöðunum eru ýmist greidd byrjunarlaun eða þá nemakaup. Þær lýstu báðar yfir nauðsyn þess að bæta fjórðu önninni við, kváðu hins vegar almenna námsáfanga nýtta sem mögulegt væri. Þær vom báðar býsna ánægðar með árangur. Á atvinnulífs- braut væru nú fjórir og þar af væru tveir að ljúka við sitt nám. Þær sögðu að til viðbótar góðri og gagnlegri þekkingaröflun þá fengju nemendur aukið sjálfstraust og þroskuðust á margan veg. Hér er aðeins getið um brot af þeirri fræðslu sem við fengum þarna en að henni lokinni var haldið á svæðisskrifstofuna og þar gaf á að líta veizluborð veglegt og girnilegt í senn, enda gnótt góðra gesta í heim- sókn, auk fólks af Sauðárkróki og grennd voru gestir frá Blönduósi, Gauksmýri og Siglufirði - hið fríðasta lið sem fagnað var með veitingum góðum og viðmóti enn betra. Klukkan 16.30 hófst svo samstöðuhátíðin við heimilið að Fellstúni 19 og var allmikill fjöldi þar samankominn, og þó nokkuð væri napurt úti, þá var hitt ljóst að hátíð var í sinni. Nokkrir ungir blásarar léku í upphafi jólalög af list og þokka og Anna Sigríður Helgadóttir söng silfurskærri rödd og þannig vorum við hrifin út úr næðingnum yfir í helga birtu hátíðarinnar í nánd. Ólöf Ríkarðsdóttir formaður Öryrkja- bandalagsins bauð fólk velkomið til samstöðuhátíðar á Sauðárkróki og gaf því næst varaformanni bandalagsins, Hauk Þórðarsyni, orðið, en hann flutti hugvekju góða, sem hér er birt. Þá var gengið að trénu góða sem tendra skyldi á ljósin og gerði það einn íbúa hússins Þórunn Gunnlaugsdóttir og fékk að launum lófaklapp gott. Blásarasveitin og Anna Sigríður færðu okkur á ný fegurð tónanna og svo tók séra Stína Gísladóttir til máls og flutti þarfa hugvekju og holla okkur öllum. Hún lagði út af lítilli sögu frá bernskuárum sínum er dönsku konungshjónin komu í heimsókn til landsins og lítill bróðir hennar beið þess að þau kæmu heim til þeirra, en þótti lítið til koma, þegar honum var gert ljóst, að af því yrði ekki. Konungur kærleikans - Jesús - kemur hins vegar til allra og okkar er að taka fagnandi í móti honum og fara eftir boðum hans um frið og fagurt mannlíf. Hún bað öllum blessunar Guðs og óskaði öllum gleðilegra jóla, árs og friðar og lauk hugvekjunni með bæn. Sunginn var hinn sítæri sálmur jólanna: Heims um ból, en að lokum flutti formaður svæð- isráðs, Valgarður Hilmarsson ávarp og færði fram þakkir heimafólks til handa Öryrkjabandalagi Islands fyrir samstöðuhátíðina, jólatréð góða og þann hlýhug til starfseminnar nyrðra sem þarna kæmi svo glögglega fram. Valgarður kvað brýna nauðsyn þess að allir sem að málum þessum ynnu sýndu órofasamstöðu í baráttunni fram á veginn. Þakkaði öllum fyrir komuna, ámaði aðkomufólki heimferðar góðrar og heim- komu með jóla- og nýárs- óskum. Hátíðin fór því hið bezta fram og vakti öllum ágæt hughrif, ekki sízt þegar jólaljósin ljómuðu okkur frá trénu fyrir tilverknað hennar Þórunnar. Að þessari athöfn lokinni var á ný haldið til húsakynna Svæðisskrifstofu og þar upphófust umræður góðar milli okkar gesta og starfsfólks skrifstof- unnar. Rætt var um framtíðarsýn í málefnum fatlaðra, hugsanlegan flutning málaflokksins til sveit- arfélaga frá ríkinu, stöðu Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra, málefni einstakra hópa fatlaðra og mis- munandi viðhorf þeirra til atvinnu-, menntunar-, og húsnæðismála. Fjöldamargt þessu tengt og fleiru bar á góma og voru allir sammála um að viðræðurnar hefðu verið hinar gagnlegustu fyrir báða aðila og opnað okkur nýja sýn um margt í þessum víðfeðma málaflokki. S vo var þakkað fyrir sig og haldið heim á leið með húsvískri viðkomu á nýjan leik og lofttöku um leið. Alúðarþakkir eru færðar þeim norðanmönnum fyrir það hve mynd- arlega var að samstöðuhátíðinni staðið, hversu móttökur allar voru hlýjar og miklum fróðleik um mæta starfsemi miðlað. Okkur öllum sem norður fórum þótti allt takast svo til sem óskabyr réði ferð og fengur mikill að þessari hátíð sem og heimsókninni allri. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 7

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.