Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Side 29

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Side 29
arnemenda og kennara. Kolbrdn Dögg Kristjánsdóttir flutti svo ávarp f.h. útskriftarnemenda, þakkaði ljúfa og lærdómsríka leiðsögn, ágæta við- kynningu og vináttu góða í gegnum tíðina. Skólastjóri og kennarar fengu blómakörfu sem þakklætisvott frá þeim sem brautskráðust. Ölium viðstöddum var svo boðið til veitinga góðra í boði Starfsþjálf- unar fatlaðra og var góður fagnaður blandinn feginleik þeirra sem fengið höfðu próf sín. Ritstjóri færir fyrir f.h. Öryrkjabandalags Islands útskriftar- nemum öllum beztu óskir um farsæld í framtíðinni um leið og starfseminni er áfram árnað góðs brautargengis. H.S. Svör við gátuvísum á bls. 23 1. krókur. 2. föt, fat. 3. lag. 4. biti. 5. bekkur. 6. bakki, Bakki. 7. mark. 8. slóði. 9. egg, Egg. 10. harpa. Félag heilablóðfall s skaðaðra Þann 22. nóvember s.l. var í Oddshúsi við Sléttuveg stofnað formlega Félag heilablóðfallsskaðaðra, en hér var um framhaldsstofnfund að ræða. Stofnfélagar munu um 50 talsins. Nokkur hópur heilablóðfallsskaðaðra hafði hitzt og borið saman bækur sínar, boðað til fundar í októberbyrjun og í framhaldi af þeim fundi undirbúið félagsstofnun frekar, unnið drög að lögum fyrir félagið, en þau voru svo samþykkt á framhaldsfundinum. Markmið félagsins er að vinna að ýmsum hagsmunamálum þeirra sem orðið hafa fyrir áföllum af völdum heilablóðfalls m.a. með öflun upplýsinga, miðlun fræðslu m.a. með fræðslufundum og kynningarstarfsemi meðal þeirra sem orðið hafa fyrir heilablóðfalli, kynningu á möguleikum þeirra og réttarstöðu. Stjórn félagsins skipa: Hjalti Ragnarsson, formaður; Harpa Jónsdóttir ritari og Friðþjófur Eyjólfsson gjaldkeri. í varastjórn eru: Sigþór Rafnsson og Ingvar Björnsson. Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á málefnum þess og í umræðu er hvort félagið sæki síðar um aðild að Sjálfsbjörg sem þá sjálfstæð eining þar. Byrjunin lofar góðu og félaginu er allra heilla árnað, enda mikið verk sem bíður þess. Eftirmáli: Við þessa stuttu frásögn af stofnun félagsins er því einu að bæta að 19.janúar s.l. boðaði félagið til síns fyrsta almenna fundar, en ætlun stjórnar er að halda slíka kynningarfundi einu sinni í mánuði. Á þessum fyrsta almenna fundi héldu iðjuþjálfar frá Reykjalundi erindi um iðjuþjálfun og svöruðu fyrirspurnum fundarmanna. Fræðsla inn á við sem út á við er markmið félagsins og hér er vel af stað farið. H.S. AFALNÆMISSAM- TÖKUNUM Á ÍSLANDI Alnæmissamtökin á íslandi hafa nú fengið hinn bezta samastað fyrir starfsemi sína að Hverfisgötu 59 í Reykjavík. Reykjavfkurborg hefur séð samtökunum fyrir húsnæði þessu og formleg afhending þess fór fram mánudaginn 5. des. á liðnu ári. Þarna er hin ágætasta aðstaða, en félagsfólk í samtökunum hefur unnið vel að því að gera allt sem vistlegast og vina- legast innan dyra. Formaður Alnæmissamtakanna, Björgvin Gíslason, bauð gesti vel- komna og kvað ánægju mikla meðal félaga, hversu hér hefði vel til tekizl og væntu menn alls hins bezta af hinni nýju aðstöðu. Það var svo Guð- rún Ágústsdóttir, forseti borgar- stjórnar, sem afhenti Björgvin lykilinn að húsinu og afhenti það þar með samtökunum til afnota. Hún kvað það mega vera stolt borgarinnar að hýsa þessa þörfu starfsemi, árnaði samtökunum allra heilla í framtíð- arstarfi að erfiðu og krefjandi verk- efni. Björgvin Gíslason þakkaði rausnarskap borgarstjórnar og gat í leiðinni um hið myndarlega söfnunar- átak unglinga í félagsmiðstöðvunum á Stór-Reykjavíkursvæðinu - mara- þondans til styrktar samtökunum. Þetta söfnunarátak var gert í samráði við íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur og skilaði samtökunum vænni fjárfúlgu. Hann færði öllum miklar og góðar þakkir sem þar hefðu komið að verki. Landlæknir mælti nokkur orð og færði fram heillaóskir, ræddi nokkuð um baráttuna gegn alnæmi og kvað hana ganga bezt þar sem sam- félagsleg ábyrgð væri helzt í heiðri höfð, opinber þjónusta væri mest svo og minnstir fordómar gagnvart sjúk- dómnum. Var bjartsýnn á það, að unnt yrði síðar að stemma stigu við vá þessari. Öryrkjabandalag Islands samfagn- aði félagi sínu með þennan góða bar- áttuáfanga og gaf fagran blómvönd sem angaði vel þarna inni. Undir þær blómstrandi blessunaróskir er einlæglega tekið hér. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 29

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.