Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Síða 37
Hækjustandarinn
handhægi
Fyrir allnokkru birtist hér í
blaðinu smágrein sem nefnd-
ist: Þrífótur á hækjur.
Þar var greint frá búnaði hug-
vitsmannsins Axels Eiríkssonar,
sem hann þá nefndi þrífót á hækjur,
en kallar nú fremur hækjustandara.
Tilgangurinn með þessum hagan-
lega umbúnaði á hækjunum er fyrst
og fremst sá, að hækjurnar geti
staðið á fæti þegar þær eru ekki í
notkun í stað þess að vera í sífellu
að flækjast fyrir og detta um koll.
Þeir sem notað hafa búnað
Axels hafa látið afar vel af honum
og hingað borizt beiðnir um frekari
kynningu, enda búnaðurinn verið í
þróun og mundi nú fjórfótur á
hækjur vera meira réttnefni, en
hvoru tveggja þó til.
Axel hefur sömuleiðis verið að
koma ísbroddi fyrir á hækjunum
samhliða standaranum, en það er í
þróun nú.
Axel hefur nú fengið hækju-
standarann viðurkenndan inn á
hjálpartækjalistann hjá Trygginga-
stofnun ríkisins, sem er mikil viður-
kenning og verðug, enda greiðir
T.R. 50% af verði hækjustandarans,
að hámarki 1500 kr.
Axel hefur kynnt þessa uppfinn-
ingu sína erlendis og fengið afar
góðar viðtökur og viðurkenningu
um leið m.a. frá Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Þýzkalandi og
í þessum löndum öllum er áhugi
fyrir því að koma búnaði þessum í
framleiðslu til hagsbóta fyrir þá
sem hækjur nota.
Axel er með fleira á döfinni sem
létt gæti sjúkum og fötluðum lífið
og m.a. er hann að þróa málmliða-
mót á spelkur, sem auðveld og
meðfærileg væru í notkun.
Við óskum ýmissa er orðið að
vekja athygli hér á enda hafa nú hátt
á annað hundrað manns hækju-
standara á hækjum sínum og full-
yrða að mikið hagræði sé að
búnaðinum.
Fréttabréf Öryrkjabandalagsins
hefur frá upphafi vega hafnað
öllum auglýsingum, en kynning
sem hlutlausust á öllum búnaði
fyrir öryrkja er sjálfsögð og ef
einhver veit skil á nýjum búnaði
eða öðrum nýjungum er ritstjóra
kært að mega kynna slíkt.
H.S.
upphæð var ágóði af kvennakvöldi
klúbbsins.Formaður foreldra- og
styrktarfélagsins Ingibjörg Maríus-
dóttir færði hamingjuóskir og færði
legokubbaborð og legokubba í
leikhom fyrir böm á Laugavegi 26.
Asgerður Ingimarsdóttir flutti
einlægar kveðjur og heillaóskir
Öryrkjabandalags íslands, kvað
samvinnuna og samstarfið ánægju-
legt, enn væri ótal margt sem að þyrfti
að vinna. Táknmálstúlkaþjónustu
þyrfti að bæta, texta eða túlka barna-
efni sjónvarps o.m.fl. Sagðistfullviss
þess að við styrkveitingar bandalags-
ins í ár yrði afmælis félagsins minnzt.
Bandalagið færði félaginu fagra
blómakörfu.
Sverrir Guðmundsson frá Klúbbi
37 færði mynd í tilefni dagsins frá
göngunni miklu á liðnu hausti.
Ámý Guðmundsdóttirflutti heilla-
óskir frá nemum í táknmálsfræðum
við Háskóla íslands. Anna Jóna
greindi frá fallegri blómakveðju frá
textavarpi sjónvarpsins.
á greindi Jóna Skúladóttir frá vali
ámanniársins 1995, en Jónafékk
einmitt slíka tilnefningu fyrir 5 árum.
Nú varð Berglind Stefánsdóttir fyrir
valinu fyrir ötult starf að táknmáls-
rannsóknum og fyrir kennslu tákn-
máls við MH. og HÍ. Berglind þakk-
aði og sagði: Eg er ánægð með hversu
þið eruð ánægð með mig.
Anna Jóna Lámsdóttir veitti síðan
þrjár viðurkenningar: Friðjóni
Erlendssyni fyrsta formanni Félags
daufblindra, Rúnari Þóri Ingólfssyni
fyrsta heyrnarlausa matreiðslumeist-
aranum og Þorsteini Þorgeirssyni,
áttræðum sjómanni í Garðinum sem
enn er að.
Danski látbragðsleikarinn Ródtop
sýndi svo listir sínar við mikinn
fögnuð viðstaddra og áttum við
táknmálslaus býsna erfitt með að átta
okkur á efninu, sem flutt var af ærnu
listfengi. En þeim mun betur átti hann
leið að hjarta heyrnarlausra. Um
kvöldið var mikil og fjölsótt
hátíðarsamkoma með góðum atriðum
og tókst hið bezta að sögn.
Ritstjóri árnar Félagi heyrnar-
lausra alls hins bezta í nútíð og fram-
tíð. Megi ávinningar margir og góðir
verða ykkar, til heilla fyrir alla
heyrnarlausa, til heilla fyrir
samfélagið allt. H.S.
HLERAÐ I
HORNUM
Séra Jón hélt ráðsmann, sem stal mjög
úr sjálfs síns hendi og lét prestur sem
hann vissi ekki af því. Á sumardaginn
fyrsta útdeildi klerkur gjöfum til hjúa
sinna og þegar að ráðsmanni kom,
sagði hann. - Svo ert það þú Halldór
minn. Þú verður að fá þess meira en
hin hjúin, sem þú gegnir ábyrgðar-
meiri stöðu. Þess vegna ætla ég að
gefa þér allt, sem þú ert búinn að stela.
*
Eitt sinn var Jón prestur að fara heim
úr kaupstað, blindfullur, og lagði þá
hnakkinn öfugan á hest sinn. Þegar
meðreiðarsveinninn vildi laga þetta
fyrir klerk, sagði hann: - Láttu það
vera greyið mitt, þú veist ekkert í
hvora áttina ég ætla að fara.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
37