Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Page 38
• • /
Arnþór Helgason fv. form. OBI.:
Tölvufjarskipti blindra
og sjónskertra
s
Islendingar hafa um nokkurt skeið
tekið þátt í margvíslegum rann-
sóknum á vegum alþjóðlegra stofn-
ana. Þegar þjóðin ánetjaðist evrópska
efnahagssvæðinu opnuðust ýmsar
gáttir að sjóðum sem styrkja marg-
vísleg mál. Ein þeirra mörgu áætlana
sem unnið er að um þessar mundir er
hin svo kallaða “Telematics” áætlun
sem ætlað er að efla hlut tölvusam-
skiptinga við að efla iðnað, heilsu-
gæslu, menningu, listir og ýmislegt
sem má verða til þess að efla hlut
einstaklingsins í nútíma samfélagi.
Um leið er hugað að hagsmunum
ýmissahópa. B-hluti áætlunarinnar, 8.
liður, fjallar sérstaklega um hlut
fatlaðra og aldraðra. Undirritaður var
beðinn að taka saman upplýsingar og
hugleiða tölvufjarskipti blindra og
sjónskertra hér á landi. Fer nokkur
hluti þeirra hugleiðinga hér á eftir.
Stöðugt bætast við nýjar upplýsingar
og má því vera að höfundur sjái sér
leik á borði að bæta einhverju við um
þessi mál á síðum Fréttabréfsins.
Einnig væri æskilegt að fleiri sem hafa
áhuga á tölvufjarskiptum fatlaðra létu
í sér heyra.
Nú eru hér á landi 9 einstaklingar
sem nýta sér blindraletur til þess
að lesa af tölvuskjám. Er hér um að
ræða námsmenn, skrifstofufólk og
einstaklinga sem vinna að bókagerð
og ýmsum félagsmálum. Þá fer þeim
einstaklingum fjölgandi sem nýta sér
stækkunarbúnað og talgervla.
Notendur blindraleturs og tal-
gervla vinna eingöngu í DOS-
umhverfi. Nú er kominn hingað til
lands sérstakur búnaður sem gerir not-
endum nýjustu útgáfu blindraleturs-
tækjanna kleift að vinna að einhverju
leyti í Windows-umhverfi. Flérerum
að ræða sérstakan búnað frá fyrir-
tækinu F. H. Papenmeier sem túlkar
táknmyndir með því að sýna heiti
þeirra á skjálínunni. Notandinn getur
séð útlínur lögunar skjáumhverfisins
Arnþór Helgason
á lóðréttri línu sem er vinstra megin á
blindraletursskjánum. Ekki er komin
reynsla á þennan búnað. Það er þó
vitað að Windows-umhverfið verður
blindu fólki aldrei jafn vingjarnlegt og
sjáandi fólki og enn eru fjölmörg
vandamál óleyst í sambandi við það.
Gera þarf sérstök forrit til þess að
túlka táknmyndir ólíkra forrita innan
Windows-umhverfisins. Tölvurnar
þurfa að hafa a. m. k. 16 mb í minni
og vera 66 mhz til þess að vinnsla
verði sæmilega hröð. Myndrænt efni
skilar sér ekki.
Nauðsynlegt er að taka tillit til
vandamála sem fylgja mynd-
rænni framsetningu þegar hugað
verður að tölvufjarskiptum blindra og
sjónskertra. Sú einhæfa áhersla sem
íslendingar hafa um sinn lagt á Win-
dows-umhverfið veldur því að ekki er
fyrir hendi hér á landi búnaður sem
nýtist blindu fólki á þeim sviðum sem
tölvur gætu einna helst komið að
gagni. Má þar meðal annars nefna
ritvinnslu, gagnavinnslu ýmiss konar,
tónlistarforrit, o.s.frv. Hér á eftir
verður gerð stutt grein fyrir nokkrum
þeim sviðum sem tölvufjarskipti gætu
nýst þessum hópi og fleirum:
1. Fjarvinnsla: Víða í Banda-
ríkjunum hefur tekist að útvega
fötluðu fólki og öldruðu verkefni á
vegum fyrirtækja og stofnana. Eru
verkefnin unnin á heimili viðkomandi
einstaklinga. Sú gagnrýni hefur heyrst
að slík störf séu einangrandi. Það
hefur hins vegar komið í ljós að marg-
ir telja sig hafa fengið mikla lífsfyll-
ingu með því að hafa eitthvað fyrir
stafni.
2. Fjarnám. Þar sem námsefni er
að mestu eða öllu leyti unnið á tölvu
gefur fjarskiptatæknin blindum
nemendum ótrúlega möguleika til
þess að tileinka sér ýmislegt námsefni
sem ef til vill er ekki aðgengilegt í
skólastofnuninni sjálfri. Þá er gagna-
leit ótvíræður kostur sem þessum hópi
opnast með tilkomu tölvutækninnar.
3. Gagnasöfn. Um nokkurt skeið
hefur íslenska lagasafnið og greina-
safn Morgunblaðsins verið aðgengi-
legt tölvunotendum. Gera má ráð fyrir
að slíkum gagnasöfnum fjölgi hér á
landi og þeim fjölgi sem vilja nýta sér
þau.
4. Ymis þjónusta. Gera verður ráð
fyrir að þjónustufyrirtæki gefi við-
skiptavinum sínum í ríkara mæli kost
á að leita sér þjónustu eða upplýsinga
í gagnabönkum. Má þar nefna versl-
anir, samgöngufyrirtæki, banka, leik-
hús, bókasöfn, símaskrá, þjóðskrána
og fleiri. Textavarp Ríkissjónvarpsins
hefur tekið að sér nokkurn hluta
þessarar þjónustu. Það er hins vegar
lokaður heimur blindu og sjónskertu
fólki. Kominn er á markað erlendis
búnaður sem gerir kleift að lesa
upplýsingar úr textavarpi með tölvu.
Gera verður þá kröfu að textavarpið
sé einnig aðgengilegt hér á landi, t.d.
með notkun Internets. Það væri
stórum hópi fólks til mikils hagræðis
að geta nýtt sér þá möguleika sem
tölvutenging þjónustufyrirtækja hefur
í för með sér. Ekki er þess langt að
bíða að ýmsir þeir sem hafa tekið þátt
í tölvuvæðingunni hér á landi komist
á eftirlaunaaldur og vafalaust mun sú
kynslóð gera kröfu til þess að tölvu-
38