Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Side 43

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Side 43
Fréttir frá Tölvumiðstöð fatlaðra Vinahjálparfrúr ásamt forstöðumanni. Tölvumiðstöð fatlaðra hefur fengið nokkur ný forrit og hliðarbúnað sem öllum er heimilt að skoða og prófa hjá okkur. Panta þarf tíma hjá okkur í síma 5 62 94 94. Forrit frá Námsgagnastofnun Frá Námsgagnastofnun höfum við nýlega fengið nokkur forrit sem einkum eru ætluð til að þjálfa lestur, skrift, hugtök og örva til ritaðs máls. Forrit þessi eru : Veröldin mín: Þjálfar skilning orða og hugtaka til að þjálfa lestur og skrift. Notandinn byggir upp mynd og ef hljóðkort er í tölvunni les hún upp heiti hlutanna sem notaðir eru í myndinni. Síðan er hægt að skrifa heiti hlutanna. Myndir og orð: Forritið er einkum ætlað þeim sem þurfa sérstaka mál- þjálfun. Markmiðið er að þjálfa málnotkun á grundvelli stakra orða. Forritið hentar vel til þjálfunar fullorðinna. Lestu og skrifaðu: Lestrar og skrift- arþjálfun. Notandinn fær myndir, orð og setningar á skjáinn og þarf að lesa til að tengja við myndirnar. Myndrún: Myndasöguforrit, not- andinn býr til sínar eigin myndasögur. Markmið forritsins er að þjálfa notandann í móðurmálinu, auka orða- forða, efla málskilning og málþroska. Sögusmiðjan: Forritið er hugsað sem fyrsta ritvinnsluforrit sem börn kynnast. Það er með ýmsum aðgerð- um sem ætlaðar em að veita innblástur og örva til ritunar. Form: Forritið þjálfar notandann í að þekkja liti og form, einnig ætlað að örva viðbrögð. Notandinn byggir upp mynd með því að velja réttan hlut (form eða lit). Myndin birtist að lokum sem hreyfimynd. Búnaður frá Jetpro Frá Jetpro höfum við fengið forrit sem heitir Púsluspil. Eins og nafnið ber með sér er forritið púsluspil. Hægt er að velja milli tuttugu mynda sem hægt er að setja saman úr 4 til 36 stykkjum. Forritið er með skemmtilegum hljóð- um og hreyfingu. Það er hægt að stjórna því með lyklaborði, mús,- snertiskjá og einum eða tveimur rofum. Við höfum einnig fengið frá Jetpro lyklaborð sem búið er að bæta við rofastýringu. Þannig að hægt er að tengja tvo rofa við lyklaborðið. Forritum sem stjórnað er með t.d. millibili og valhnappi lyklaborðs er þá hægt að stjórna með rofum. Jetpro getur útfært þannig lyklaborð fyrir fólk, ef þess er óskað. ForritfráSvíþjóð Einnig höfum við fengið nokkur forrit fyrir börn frá Svíþjóð sem örva eiga viðbrögð, barnið ýtir á hnapp á lyklaborði, rofa eða mús og mynd byggist upp. Einnig eru verkefni með pörun. I forritunum eru skýrar myndir, hljóð og hreyfing. Snertiborð frá Kanada Snertiborð kemur í stað lyklaborðs tölvu. Með snertiborðinu er hægt að fá stóra skýra fleti í stað hnappanna á lyklaborðinu. Við höfum nýlega fengið snertiborð frá Kanada sem heitir Intellikeys og er bæði hægt að nota við Macintosh og PC tölvur. Með snertiborðinu fylgja nokkrar arkir með lyklum en einnig á að vera hægt að fá forrit til að búa til sínar eigin arkir eftir þörfum. Forrit frá Kanada Tölvumiðstöð fatlaðra hefur fengið forritið Key-rep sem vinnur með Win- dows ritvinnsluforritum, það felur í sér orðasafn sem flýtir ritun þeirra sem skrifa með rofum eða af öðrum ástæðum skrifa mjög hægt á tölvu. Þegar skrifað er birtist á skjáinn orðalisti með allt að tíu orðum og í stað þess að stafa sig fram er hægt að velja heilu orðin úr listanum og flýta þannig fyrir ritun. Góð gjöf Nýlega afhenti félagið Vinahjálp styrkupphæð góða til Tölvumiðstöðvar fatlaðra sem fór þar á bæ til kaupa á búnaði sem kom í býsna góðar þarfir. Vinahjálp er ágætur félagsskapur kvenna hér í borg, sem starfað hefur allt frá 1963. Vinahjálp hefur haft stuðning við hvers konar mannúðarmál mjög á stefnuskrá sinni og hefur veitt hinum ýmsu aðilum ágæta styrki gegnurn tíðina og nú varð Tölvumiðstöð fatlaðra fyrir valinu. Forystukonur félagsins komu svo fyrir skemmstu hingað til að líta árangur styrkveitingarinnar. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 43

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.