Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Blaðsíða 48
Reykjalimdur -
höfubból heilsubóta
1. febrúar síbastliöinn átti Reykjalundur 50 ára afmæli og var þess minnzt meö margvís-
legum hætti. Hinni merku sögu þessa mæta staöar eru gerö nokkur skil inni í blaöinu svo
og þeirri stórkostlega fjölbreyttu starfsemi er þar fer nú fram. Á Reykjalundi er nú rekin
stærsta og öflugasta endurhæfingarstöö landsins, fjölþætt starf sem til fjölmargra sjúk-
dóma og fatlana tekur. Þar njóta endurhæfingar á ári hverju um 1300 manns og reynsla
manna af dvölinni þar, þjálfun, meöferö og viömóti öllu, hin bezta.
Þar nær margur aö öölast aukinn styrk, nýja færni, meiri bjartsýni og trú á möguleika sína
í lífinu. Starfsemi endurhæfingarstöövar á Reykjalundi hefur vissulega hlotiö veröugt
þjóöarlof, en þangaö hafa erlendir aöilar einnig sótt fyrirmynd sína og öfundaö okkur af
slíkri öndvegisaöstööu.
En Reykjalundur er líka afkastamikill framleiöslustaöur margra mætra vörutegunda. Þar
fer fram verömæt framleiösla á fjölmennum vinnustaö þar sem bæöi vinna fullhraustir
sem fatlaöir og svo þeir sem í endurhæfingu eru aö feta sig þar fyrstu sporin meö þátttöku
í atvinnulífinu fyrir augum.
Megi blómleg starfsemi blómstra áfram til blessunar svo ótalmörgum sem á þurfa aö
halda sér til heilsubótar og hjálpar á ævivegi.
H.S.