Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Síða 3
Helgi Hróðmarsson fulltrúi:
Eitt samfélag fyrir alla
Starfsemi hagsmunasamtaka
fatlaðra á íslandi hefur að
undanförnu óvenju mikið litast
af varnarbaráttu. Sífellt er verið að
vega að réttindum og kjörum öryrkja
og því ekki vanþörf á að halda vöku
sinni.
ÞEKKING
Hollt er að setjast niður og aðgæta
hvaða leiðir er best að fara til að
ná fram baráttumálum sínum, hvort
sem um er að ræða einstaklinga eða
samtök. Nauðsynlegt er auðvitað að
trúa á málstaðinn og vera tilbúinn til
að berjast fyrir honum af dugnaði,
víðsýni og þekkingu. Þekking t.d. á
uppbyggingu ríkisvalds og framkvæmdavalds er nauð-
synleg til að skilja þá veikleika sem þar kunna að vera.
Sem aftur er nauðsynlegur grunnur til að benda á breyt-
ingar.
LEIÐIR TIL AÐ NÁ SETTU MARKI
Við skulum ekki gleyma því að framfarir í þjóðfélaginu
hafa oft á tíðum orðið til fyrir dugnað og áræði
einstaklinga og hópa. Þar sem réttur hefur ekki endilega
reynst sjálfgefinn, er oft nauðsynlegt að berjast fyrir
honum. Margt af því sem við teljum sjálfsagt í dag hefur
fengist vegna þess að hinn almenni borgari hefur staðið
upp og lýst nauðsyn þess að ná fram úrbótum. Þetta er sá
bakgrunnur sem við höfum fyrir okkur, bakgrunnur sem
gefur okkur stöðuga von um áframhaldandi framfarir í
þjóðfélaginu.
Til að ná fram baráttumálum sínum er nauðsynlegt að
takmarka baráttuna við ákveðið málefni og skilgreina skýrt
markmiðin. í öðru lagi þarf að vita hverja best er að fást
við til að ná fram markmiðunum. í þriðja lagi verðum við
að sannfæra viðkomandi um að okkar málstaður sé
verðugur. I fjórða lagi verðum við að kynna málefnið og
taka saman höndum við aðila sem eru tilbúnir til að styðja
okkur. í fimmta lagi verðum við að vera tilbúin til að
halda baráttunni áfram í stað þess að slaka á. Það sem
skiptir máli er að yfirvöld eða þeir sem ráða ferðinni hverju
sinni telji ekki bara æskilegt heldur nauðsynlegt að
framkvæma það sem beðið er um.
ÁKVEÐNI, SANNGIRNI, TRÚNAÐUR
Nauðsynlegt er að erindið sé borið fram af einurð og
ákveðni. En þrátt fyrir það verður að gæta sanngirni
og kurteisi. Ekki er vænlegt til árangurs að tala til manna
með hnefunum. Öll ofangreind atriði byggja þó á því að
sannleikur og heiðarleiki ráði ferðinni. Trúnaðarbrestur
er eitthvað það versta sem upp getur komið í samskiptum.
Ef trúnaðurinn er ekki með í för er hætta á að öll önnur
vinna við annars góð málefni sé á
brauðfótum. Vissulega getur trúnaður
verið harður húsbóndi, þ.e. það getur
verið erfitt að segja satt við ákveðnar
aðstæður en sannleikurinn stendur
hinsvegar með okkur og styrkir þegar
á reynir og upp er staðið.
Helgi Hróðmarsson.
SAMSTARF
"ögulegt er að sameinast öðrum
einstaklingum eða samtökum
með svipuð markmið. Hvort sem
baráttan er innanlands eða á alþjóða-
vettvangi er samvinna ávallt styrkur. Þá
eru fjölmiðlar nauðsynlegir í þessu
sambandi. Fjölmiðlarþarfnast frétta og
einstaklingar og samtök þarfnast fjöl-
miðlanna til að koma fréttunum til skiia.
Ofangreindar leiðirhafa m.a. verið hafðar að leiðarljósi
í samtökum sem nefnast Mobility International og eru
alþjóðleg samtök ungs fatlaðs fólks. Öryrkjabandalagið
og Þroskahjálp eru aðilar að þessum samtökum og hefur
undirritaður verið fulltrúi Öryrkjabandalagsins í
samtökunum undanfarin ár. Þetta sýnir okkur að alls staðar
er barátta nauðsynleg og víða er verið að vinna að því að
ná fram bættum kjörum og jafnrétti fatlaðra á við aðra
þjóðfélagsþegna. Þannig má segja að ofangreind aðferða-
fræði sé alþjóðleg.
RÉTTUR NÁUNGA OKKAR
Mikilvægt er að hafa í huga fyrir þá sem stjórna og
hafa þannig mikil áhrif á skiptingu þeirra gæða sem
við njótum, að gera sér grein fyrir að náungi okkar er ekki
baraeinhver. Náunginn erhluti af okkur. Þess vegna eiga
öll þau lífsgæði sem við teljum sjálfsögð fyrir okkur sjálf
að verajafn sjálfsögð fyrir náunga okkar. Þannig má flokka
það undir mismunun ef ákveðnir hópar hafa minni
möguleika en aðrir á því að nálgast lífsgæðin. Ekki er
nægilegt að tala fallega og sýna áhuga þegar það hentar,
heldur verður að vinna á hagnýtan hátt, þannig að ljóst sé
að það sem framkvæmt er skili sér örugglega í formi bættra
kjara og meiri lífsgæða.
m;
ÞROUN
' argar þjóðir heims hafa náð ótrúlega langt á stuttum
. tíma. Sú kynslóð sem nú er um sjötugt hefur séð
fleiri stórviðburði gerast og upplifað meiri breytingar en
nokkur kynslóð á undan henni. Það eru t.d. að verða 30 ár
síðan menn voru fyrst sendir til tunglsins. Þrátt fyrirþetta
virðast menn stundum gleyma svo einföldum og
sjálfsögðum réttindum manneskju í hjólastól að komast
leiðar sinnar svo eitthvað sé nefnt. Hver er forgangsröðin?
Sjá næstu síðu
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
3