Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Page 5
Tómas Helgason form. stjórnar Hússjóðs:
Skýrsla Hússjóðs
Öryrkjabandalagsins 1995
Hússjóður Öryrkjabandalagsins er sjálfseignarstofnun,
sem nokkur félög Öryrkjabandalagsins stofnuðu
1966. Tilgangur sjóðsins er að eignast og reka íbúð-
arhúsnæði fyrir öryrkja. Til þess að ná þessu markmiði
hefur sjóðurinn á undanförnum árum fengið tvo þriðju
hluta lottótekna Öryrkjabandalagsins. Jafnframt hefur
sjóðurinn fengið lán frá Húsnæðisstofnun ríkisins á
hagstæðustu kjörum sem hún hefur veitt á hverjum tíma.
Þangað til íslensk Getspá hóf rekstur lottós var byggt fyrir
framlög úr Erfðafjársjóði, en þó að langmestu leyti fyrir
lánsfé. Þetta leiddi til mikillar skuldasöfnunar, sem hefði
orðið illviðráðanleg ef leigja átti á kjörum sem voru
viðráðanleg fyrir öryrkja. Eftir að lottótekjumar komu til
hefur það verið stefna sjóðsstjómar, að lánshlutfall svaraði
til helmings fasteignamats eða kaupverðs eigna. Með
þessari stefnu hefur tekist að halda leigunni niðri. Hins
vegar hefur hún takmarkað hraða íbúðaöflunarinnar, en
þó ekki meira en svo, að keyptar hafa verið 25 - 30 íbúðir
á ári. Verðmæti eigna Hússjóðsins var um síðustu áramót
1,6 milljarður króna, en skuldir 800 milljónir. Leigutekjur
voru 101 millj. króna. Rekstrarkostnaður var 68 millj.
króna og vextir og afborganir 51 millj, eða samtals 119
millj. Leigutekjur eru því 18 milljónum króna of lágar til
að standa undir lágmarksútgjöldum. Þetta er nokkurt
áhyggjuefni, því að mikið af eignum eru komnar til ára
sinna og krefjast síaukins viðhalds. Til þess að íbúðirnar
séu boðlegar leigjendum, verður viðhald þeirra að vera
gott.
Frá síðasta aðalfundi hafa verið keyptar 30 fbúðir, þar
af 8 utan Reykjavíkur og nágrennis. Sjóðurinn á því
nú 520 íbúðir. Fjárfestingar á árinu 1994 voru samtals um
202 milljónir króna, eða sem svarar til nærri tvöfaldrar
upphæðar sem fékkst frá lottóinu. Þrátt fyrir þennan
íbúðafjölda vantar enn mikið á að þörf fatlaðra fyrir
húsnæði við þeirra hæfi á viðráðanlegum leigukjörum sé
fullnægt. Biðlisti Hússjóðs hefur sífellt lengst. Þess vegna
var ákveðið að biðja alla, sem áttu umsóknir hjá sjóðnum
á síðasta ári, að endurnýja þær. Jafnframt var óskað eftir
ítarlegri upplýsingum til þess að unnt væri að meta hverra
þörf væri brýnust. Þrátt fyrir að unnt hafi verið að leysa
vanda um 70 einstaklinga á þessu ári, hafa nú þegar um
200 í viðbót endurnýjað umsóknir sínar og vitað er um
allmarga, sem ættu að vera búnir að því.
I fyrri ársskýrslum hefur verið minnt á húsnæðisþarfir
þeirra sem þurfa mikla aðstoð, heimilishjálp, liðveislu og
frekari liðveislu eða jafnvel hjúkrun um tíma. Nauðsynlegt
er, að húsnæðisútvegun og heimildir svæðisstjórna og
félagsmálastofnana til að ráða nauðsynlega starfskrafta,
fylgist að. Að undanfömu hefur frekar staðið á heimildum
til mannaráðninga en húsnæðisöflun fyrir þessa mest
fötluðu einstaklinga. Til þess að mæta litlum hluta þessa
vanda hafa farið fram viðræður við sjálfseignarfélögin
Skjól og Eir, og verður tekið upp samstarf við þessar
stofnanir þegar þær fá leyfi til stækkunar.
✓
Isíðustu ársskýrslu var sagt frá því, að Þroskahjálp vildi
fá hlut í lottótekjum til jafns við Öryrkjabandalag
íslands. Slík skipting mundi skerða mjög verulega
möguleika annarra fatlaðra til að fá húsnæði. I framhaldi
af þessari ósk Þroskahjálpar var skipaður starfshópur úr
dóms- og félagsmálaráðuneytunum og er útlit fyrir að
niðurstöður hans verði tilbúnar innan tíðar. Nú búa 148
þroskaheftir í 104 íbúðum og einbýlishúsum, sem Hús-
sjóður á. Þannig hefur yfir 20% af íbúðum Hússjóðsins
verið ráðstafað til þroskaheftra. Það er því ekki hægt að
segja að hlutur þroskaheftra hafi verið fyrir borð borinn.
Mikilvægt er að öll félög Öryrkjabandalagsins fylki sér
þétt saman til þess að halda utan um lottótekjurnar, þannig
að áfram verði gætt sanngirni um lausn á íbúðavanda fatl-
aðra.
Að lokum ber að þakka framkvæmdastjóra Hússjóðsins
og öðrum starfsmönnum mikið og gott starf í þágu hans.
Tómas Helgason.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
5